lau. 19.1.2008
Vika í stærsta þorrablót Mosfellinga frá upphafi
Í dag er vika þar til að haldið verður stærsta þorrablót okkar Mosfellinga fyrr og síðar. Fjöldi fólks hefur lagt á sig ómælda vinnu til að gera þetta að ógleymanlegri stund og ber að þakka slíkt framtak af heilum hug.
Þorrablót eru sérstaklega skemmtilegur siður og það er gaman að ekkert lát virðist á vinsældum þeirra. Hér í Mosfellsbæ hafa þau verið haldin reglulega en aldrei virðist hafa tekist jafn vel til og nú ef marka má selda miða næstkomandi laugardagskvöld í íþróttahúsið að Varmá.
Sjáumst hress og kát kæru Mosfellingar og aðrir gestir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
lau. 19.1.2008
Jurt ársins
Ég hef ákveðið að hafa það árlegt hjá mér á blogginu að velja jurt ársins. Að þessu sinni hef ég kosið Risahvönn. Ástæða þess er að vara fólk við áhrifum hennar.
Eru hættulegar jurtir allt í kringum okkur?
Sumir virðast halda að allt, eða a.m.k. flest, sem kemur úr náttúrunni, og þá sérstaklega úr jurtaríkinu, sé hollt og heilnæmt. Þá gleymist að mörg af lúmskustu og sterkustu eiturefnum sem við þekkjum koma einmitt úr jurtaríkinu. Fáein dæmi um vel þekkt eiturefni úr jurtaríkinu eru blásýra, nikótín, kókaín, ópíum, digitalis, koffín og kannabis en þar að auki er mikill fjöldi eitraðra efna sem eru minna þekkt.
Fyrir utan þessi eiturefni eru ýmis sem valda ofnæmi með útbrotum, snertiexemi eða gera húðina svo viðkvæma fyrir ljósi að jafnvel innilýsing getur valdið bruna (annars stigs) með vessandi blöðrum og sárum. Plöntur sem geta valdið útbrotum af ýmsum toga er að finna nánast alls staðar í umhverfi okkar, sem stofublóm, garðagróður, grænmeti eða villtar jurtir úti í náttúrunni. Sumar af hættulegustu plöntunum, t.d. risahvannir, er auðvelt að þekkja og þess vegna auðvelt að varast.
Það vill svo til að það er eins á komið með jurtum og mönnum, sumar þeirra eru hollar og heilar í gegn og gott og gaman að umgangast, aðrar baneitraðar, varasamar og í raun best að koma aldrei og hvergi nálægt. Þær geta haft lokkandi yfirbragð sem villir um fyrir mönnum en kemur óvænt í bakið á þeim við nánari kynni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)