Bloggleikurinn sem er að gera allt vitlaust

Fyrir hálfum mánuði lét ég mér detta í hug að fara í smá leik við bloggvini mína og aðra gesti. Í stuttu máli þá er það nú þannig að þessi leikur hefur farið sem eldur í synu í bloggheimum.  Já eins og ég hef margoft sagt þá eru bloggarar skemmtilegt fólk.

Vinkona mín Anna Kristjáns virðist af öllum ólöstuðum nánast ósigrandi í þessum leik og hefur tekið við keflinu oftar en nokkur annar en hún er ekki ósigrandi, það sanna dæmin.

Þá er komið að því.

Ég hugsa mér mann!!!


Bannað að reykja undir stýri

Sennilega lýður ekki að löngu þar til reykingar verða bannaðar undir stýri. Nýjustu fregnir herma að bretar hyggist ríða á vaðið. Ég man þá tíð að börn sátu óbundinn í aftursætinu, eða stóðu á milli framsætanna í reykjamekki. Það þótti nú ekki tiltökumál í þá daga. Jafnaldri minn og góður vinur frá því í gamladaga þurfti meira að segja stundum að troða í pípuna fyrir pabba sinn í lengri ferðum.

Erum við ekki stundum á réttri leið?

 


Bloggfærslur 28. september 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband