Bloggarar eru fólkið í landinu

Ég verð að viðurkenna að fátt hefur komið mér meira á óvart undanfarið en þær fjölmörgu athugasemdir sem ég fæ vegna áhuga míns á blogginu. Svo virðist sem fjölda fólks finnist bloggið ekki samboðið sinni virðingu.

Ósjaldan hef ég verið spurður að því hvort mér finnist þetta merkilegt eða skemmtilegt og þess virði að taka þátt í. Merkilega oft er þetta fólk sem vill, svona út á við vera "alþýðufólk" sem spyr mig þessara spurninga. Getur verið að það hafi ekki kjark til þess að vera á meðal okkar "almúgans" en vilji svona út á við láta sem það sé þess samboðið að vera á meðal okkar, svona öðru hvoru að minsta kosti?

Það sem mesta athygli mína vekur er að flest þetta fólk virðist vita um allt sem er að gerast á blogginu. Hvernig stendur á því??? Í mínum huga er bloggið samfélagið okkar, samfélag okkar íslendinga, samfélag í meiri nærmynd en við höfum átt að venjast í svo mörg ár.

Bloggið er að mínu mati eitt það besta sem komið hefur, fyrir íslenska menningu, tungu og samfélag í áratugi.


Það er erfitt að gera einfalda hluti vel

Bítillinn Paul Mc Cartney sagði einu sinni að það væri erfiðara að semja einfalt og gott lag en flókið.

Ég má til að skella inn einu slíku frá einum af mínum uppáhalds hljómsveitum. Þetta er eitt dæmi um það sem bítillinn sagði, algjört meistaraverk í einfaldleika sínum. Eruð þið ekki sammála?

 


Bloggfærslur 23. september 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband