Það er ekkert sem réttlætir lítilsvirðingu og dónaskap

Öll höfum við okkar skoðanir og tjáningarfrelsi, sem betur fer. Þær eru einnig misjafnar rétt eins og við erum mörg. Oft þurfum við að taka ákvarðanir sem okkur finnst erfiðar. Jafnvel að taka ákvörðun um eitthvað þar sem allir kostir eru slæmir en ákvörðunina verður að taka. Þá hlýtur það að segja sig sjálft að við reynum að velja skásta kostinn að okkar mati.

Í Mosfellsbæ var fyrir rúmum tuttugu árum ákveðið að nýtt hverfi, svokallað Helgafellshverfi, myndi rísa. Strax í upphafi var ráðgert hvar vegur inn í það hverfi ætti að liggja. Umtalaður vegur hefur verið mikið í fjölmiðlum undanfarið ár. Þegar að því var komið að hefja framkvæmdir risu upp mótmæli vegna legu vegarinns. Helstu gagnrýnendur voru nýstofnuð samtök, Varmársamtökin.

Í fyrstu voru athugasemdir samtakanna málefnalegar en á ótrúlega skömmum tíma breyttist það. Samtökin gerðust pólitísk og töluðu máli eins flokks. Samtökin gerðu einnig látlausar athugasemdir við vinnubrögð bæjaryfirvalda og það sem verst var, persónugerðu atlögurnar í tíma og ótíma. All flestum er þessi saga kunn og ætla ég ekki að fara nánar út í hana.

Nú liggja fyrir nýjar niðurstöður helstu og færustu sérfræðinga m.a. frá Umhverfisstofnun um það að fyrirhugaður vegur sé besta leiðin fyrir náttúruna, umhverfið og Mosfellinga flesta þrátt fyrir að hverfið sé nú mun stærra en ráð var fyrir gert í upphafi. Varmársamtökin hafa látið þær rannsóknir sem vind um eyru þjóta og halda samt sem áður áfram, oft á tíðum með ómálefnanlegri umræðu, í krafti t.d. auðvelds aðgangs að fjölmiðlum.

Það er ábyrgðarhlutur að halda úti heimasíðu og flestir sem standa í slíku vanda sig í þeim efnum. Varmársamtökin benda á sem annan link á sinni heimasíðu, á eftir Landvernd, einhverja síðu sem gerð er út af manneskju sem ekki er til. Sá hinn sami er kallaður Valdi Sturlaugz (Varmársamtaka-Valdi). Á þessari síðu er einhverra hluta vegna aðal umræðuefnið gamalkunnugt af síðu Varmársamtakanna. Það er að níðast á persónum með lítilsvirðingu og dónaskap sem Varmársamtökunum eru ekki hliðhollar eða ekki á sömu skoðun og þau. 

Alvarlegast er þó þegar farið er að tala um geðfötlun fólks án þess að nokkur fótur sé fyrir henni eins og gert hefur verið ítrekað á umræddri síðu. Að segja fólk geðfatlað, hvort sem er til að leggja áherslu á orð sín eða í einhversskonar tvískinnungi er engri manneskju eða samtökum samboðið.

Það er heldur ekki samboðið samtökum sem vilja láta taka sig trúanleg að benda á síðu sem inniheldur slíkan málflutning. Það eykur ekki vegsemd þeirra eða virðingu.

Karl Tómasson.


Bloggfærslur 10. september 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband