Almúgablogg

Ég hef fylgst með blogginu um nokkurra mánaða skeið og undanfarnar vikur tekið þátt í því og haft sérstaklega gaman af. Auðvitað eru svartir sauðir inn á milli sem kunna engin mörk á einu eða neinu eins og alstaðar. Ég hef reynt að hvetja marga bloggvini mína til að láta slíka bjána ekki komast upp með að skemma fyrir okkur hinum sem reynum að gera allt okkar besta til að skrifa um allt og ekkert og hafa gaman af .

Ég held að bloggið sé ein skemmtilegasta og jafnframt magnaðasta leið seinni tíma til að viðhalda íslenskri tungu, menningu og texta.

Eflaust eru margir á öðru máli enda hafa margir kosið að hverfa á braut en ekki alla leið heldur á önnur bloggmið. Bloggmið sem að þeirra mati eru ekki almúgablogg heldur eitthvað allt annað.

Ég kýs áfram almúgabloggið, því þar eru bloggararnir sem hafa að mínu mati púlsinn á okkar tilveru.

 Tilverunni sem við búum í.


Bloggfærslur 14. ágúst 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband