Vellíðan í marga daga á eftir

Þarna er lausnin fundin, loksins. Hvern dreymir ekki um vellíðan í marga daga á eftir góðri líkamsrækt í hvaða formi sem hún er? Fram að þessu hafa flestir talið það gott að finna muninn í einhverja klukkutíma. Nú er bara að skella sér beint út í djúpu eða djúpa og byrja að synda.

Samkvæmt reyndum sjósunds mönnum er um margra daga sælu að ræða eftir góðan sprett.

Á forsíðum allra blaða í dag voru myndir af harðduglegu sjósundsfólki sem þreytti Viðeyjarsund í gær. Hátt í 40 manns tóku þátt.

Nú er bara að endurtaka leikinn að ári og fá í það minsta 100 þátttakendur. Ég skal vera á bátnum sem togar upp þá sem eru að drukkna, frjósa úr kulda eða drepast úr hræðslu.


Bloggfærslur 31. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband