fös. 20.7.2007
Hann hafði sannarlega rétt fyrir sér
Kæru bloggvinir og aðrir lesendur.
Þá er bókstaflega frábærri ferð fjölskyldu minnar til Köpen lokið. Við erum komin heim á skerið.
Alltaf verð ég jafn snortinn þegar vélin er lent og í hátalarakerfi vélarinnar er sagt: Velkomin heim til Íslands. Ég veit að þetta er svakalega væmið en ég veit líka að þetta hefur svo mikil áhrif á mig vegna minnar slæmu flughræðslu. Léttirinn er óbærilegur þegar vélin er lent.
Einu sinni gerði okkar frábæri grínisti Jón Gnarr það að umtalsefni sínu í uppistandi til hvers við værum látin læra dönsku í grunnskóla. Hann hafði sannarlega rétt fyrir sér að það væri með öllu tímasóun og tómt rugl. Ég komst endanlega að því í ferðinni að þetta eru orð að sönnu.
Í gamla daga talaði ég dönsku upp á tíu enda bjó ég í landi frænda vorra í eitt ár. Auðvitað gerði ég mínu fólki grein fyrir því áður en upp í ferðina var lagt að þau gætu algerlega treyst á mína dönskukunnáttu ef eitthvað kæmi upp, þessum orðum treysti fjölskylda mín að sjálfsögð og hafði engar áhyggjur. Þegar við vorum lent í Köpen var ákveðið að fá sér hressingu og auðvitað sá ég um að panta fyrir mannskapinn.
Ég byrjaði á því að panta tvo kaffi. Þá sagði kellan á flugstöðinni: Ha?!, Já sagði ég, to kaffi og aftur sagði hún: ha?. Það var ekki fyrr en ég sagði kaffeeee að hún áttaði sig. Mínu fólki var skemmt.
Verra var þegar ég pantaði í ferðinni einn pakka af Kent sígarettum. Auðvitað bað ég bara um Kent. Va mener du?. Kent síkaretten sagði ég. Va mener du sagði kall fíflið aftur. Þá reyndi ég að breyta framburðinum og sagði Kunt, ekki gekk það, þá sagði ég Kint, ekki gekk það, þá sagði ég Kunte. Aldrei fattaði kallinn neitt og fólkið fyrir aftan mig orðið pirrað og ég líka, ekki síst vegna hlátraskallanna í kellu minni og börnum sem glumdu um alla búð. Hvernig í fjáranum á að bera Kent fram á dönsku? Getið þið sagt mér það? Ég átti bara eftir að segja Kunta Kinte.
Það er gersamlega óþolandi að fara til Köpen og telja sig frábæran dönskukunnáttumann og vera nýbúinn að gera öllum fjölskyldumeðlimum grein fyrir því en geta ekki pantað kaffi, sígarettur, brauð eða beðið um reikninginn öðruvísi en að enda á því að tala táknmál með alla hlæjandi í kringum sig.
Ég mæli samt með Köpen, þangað er alltaf jafn gaman að koma.
Eigið góðar stundir.
Bloggar | Breytt 21.7.2007 kl. 01:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)