fös. 8.6.2007
Hratt og öruggt
Árin líđa hratt og hrađar eftir ţví sem viđ eldumst. Góđur bloggvinur minn, Ingvar Valgeirsson tónlistarmađur, hefur ekki fariđ leynt međ áđdáun sína á kanadísku Toronto-hljómsveitinni Rush.
Ţessi hljómsveit var í miklu uppáhaldi hjá mér fyrir tćpum 30 árum. Já, 30 árum. Plata ţeirra Permanent Waves (vonandi skrifa ég ţetta rétt) kom út ađ ég held í kringum 1980 og olli straumhvörfum hjá mér.
Svakalegir hljóđfćraleikarar og trommarinn Neil Peart á einhverri annarri plánetu í trommuleik, enda hafa fáir trommuleikarar fengiđ viđlíka viđurkenningar og hann í gegnum árin og hann verđur bara betri og betri međ árunum. Í framhaldinu keypti ég hverja vínylplötuna á fćtur annari sem kom út međ ţeim félögum.
Svo kom sá tími ađ ég fjarlćgđist ţá kappa og tók hlé á ţví ađ hlusta á ţá. En Ingvar minn, ţú hefur kveikt hjá mér gamlan áhuga og ég vil ţakka ţér fyrir ţađ. Handleggir mínir voru undirlagđir gćsahúđ ţegar ég rifjađi upp gömul kynni viđ Rusharana nú á dögunum.
Ađ ţví tilefni set ég hér inn ađ gamni myndband frá félögunum viđfeldnu og jarđbundnu í Rush sem virđast láta fátt raska sinni ró í listinni og eru ekkert áfjáđir í ađ vera á forsíđu Séđ og heyrt.
Góđa skemmtun kćru vinir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:21 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
fös. 8.6.2007
Meistarabragur alla leiđ!!!
Ég held ađ hann hafi ekki notiđ sannmćlis. Ég held líka ađ hann hafi goldiđ ţess ađ vera í skugganum á samferđamönnum sínum sem áttu meira upp á pallborđiđ á ţeim tíma.
Ţađ er nú partur af ţessum bransa. Ţađ er ekki ţađ ađ ţeir voru líka flottir söngvarar en mikiđ svakalega var David Byron góđur söngvari.
Hann var sannkallađur meistari.
Hann eins og félagi hans Gary Thain bassaleikari í Uriah Heep dó langt fyrir aldur fram.
Sennilega hafa ţeir fariđ full geyst í lífiđ.
Hér kemur eitt meistaraverkiđ sem ber söngvaranum og hljómsveitinni gott vitni.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)