Engu líkur

Foss á SíðuÞað er ekki hægt annað en að heillast af honum, slíkur er krafturinn þrátt fyrir lítillætið.

 Það er svo sem engin stórkallabragur yfir honum, hann lætur í raun lítið fyrir sér fara svona öllu jafna. Virkar ekki montinn við fyrstu kynni en þegar maður kemst í tæri við hann fer ekki á milli mála að hann er Vestur Skaftfellingur. 

Það er ekkert skrítið að fólk sem hefur slíkann nágranna verði fyrir ævarandi áhrifum.

Foss á Síðu er stórbrotið bæjarstæði um 10 km. fyrir austan Kirkjubæjarklaustur. Fallegur foss fellur ofan af klettunum ofan við bæinn, úr vatni sem nefnist Þórutjörn.

Þetta stórkostlega sjónarspil fangar athygli allra sem leið eiga um.

Greiðfær gönguleið er upp að Þórutjörn og þaðan er fallegt útsýni yfir Síðuna.

Í klakaböndum er hann engu líkur. Einu sinni sá ég mynd af honum þannig.

Foss á síðu er í uppáhaldi hjá mér.


Bloggfærslur 25. júní 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband