Gaman í Mosfellsbæ

Kæru bloggarar. Gleðilega þjóðhátíð. 

 

Hátíðarhöldin í Mosó gengu vel, þau hófust með hátíðardagskrá í bæjarleikhúsinu okkar. Þar flutti ég hátíðarræðuna og læt ég hana fylgja með hér að neðan. Álafosskórinn söng og stóð sig að vanda vel undir öruggri stjórn Helga Einarssonar, fjallkonan  var glæsileg og að lokum var bæjarlistamaður Mosfellsbæjar heiðraður. Það var að þessu sinni myndlistarkonan Ólöf Oddgeirsdóttir. Ólöf er sérlega vel að sæmdarheitinu komin. Hún hefur látið mikið til sín taka í menningarlífi okkar Mosfellinga undanfarin ár. Innilegar hamingjuóskir Ólöf.

 

Að hátíðardagskrá lokinni var fjölmenn skrúðganga að Hlégarði þar sem fram fór fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.

 

 

Hér kemur hátíðarræðan:

 

 

Ágætu Mosfellingar og aðrir þjóðhátíðargestir.

 

Fyrir hönd bæjarstjórnar Mosfellsbæjar óska ég ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og vona að við eigum eftir að eiga saman ánægjulegan dag.  Enn á ný erum við saman komin til að halda hátíð, þjóðhátíð í bænum okkar sem var sveit fyrir örfáum áratugum - en: 

 

Munum öll að Mosfellssveitin

mótar enn sín fósturbörn.

Sundin fríðu, fellin, leitin

furðugil og heiðartjörn.

Manstu kvöld í mánabliki,

morgunglóð við fjörusand

hörpu slegna í vatnaviki

vafið töfrum griðaland.

 

Þannig orti Pétur Þorsteinsson kennari og síðar sýslumaður Dalamanna. Hann byggði sér hús á sínum tíma við Lágholt sem var önnur þéttbýlisgata sveitarfélagsins. Þá var ljóst að ör byggðaþróun varð ekki umflúin og árið 1987 lauk Mosfellshreppur aldalangri sögu sinni og Mosfellsbær fagnar 20 ára afmæli sínu í ágústmánuði næstkomandi.

 

Tvítugt bæjarfélag þarf ekki að líta langt um öxl til að sjá hér kýr reknar í haga, brúsapalla við sérhvern bæ og þá var Mosfellsheiði hvít á sumrin - ekki af snjó heldur sauðfé. Þessi tími er liðinn og nú er svo komið að einungis eitt kúabú er starfrækt í sveitarfélaginu en bankaútbúin eru hins vegar helmingi fleiri en kúabúin í dag. Og iðjagræn tún og beitarhagar hafa sum hver breyst í götur og blómum prýddar lóðir sem ekki þarf að reka sauðfé úr á miðri nóttu eins og algengt var á þeim tíma.

 

Í Dal og Hverfi, Holti og Túnum

heimilið ég byggja vil.

Í þessum faðmi fagurbúnum

finnst mér best að vera til

Undur vors og angan seiða,

einnig haust með hrímgan svip.

Sakna mundi hafs og heiða

hér bý eg mitt draumaskip. 

Í Mosfellsbæ hafa fjölmargar fjölskyldur smíðað sín draumaskip á síðustu áratugum. Þessi skip hafa orðið að fríðum skipaflota sem við köllum íbúðahverfi. Og enn er verið að smíða ný draumaskip því um þessar mundir eru miklar byggingaframkvæmdir hér í bænum. Þegar slík umsvif standa yfir er mikilvægt að við sýnum hvert öðru þolinmæði og tillitssemi. Vissulega hafa slíkar framkvæmdir í för með sér ónæði á meðan á þeim stendur en allt hefur sitt upphaf - og endi.

Góðir þjóðhátíðargestir.

 

Mikið vatn hefur runnið til sjávar hér í Mosfellsbæ frá því að haldið var fyrst upp á 17. júní. Það var árið 1964 og þá var Varmárlaug vígð, Klara Klængsdóttir fyrrverandi kennari þreytti vígslusundið og nú rúmum 40 árum síðar vígði Klara einnig hina stórglæsilegu Lágafellslaug. Klara iðkaði einnig og kenndi sund í fyrstu innisundlauginni í Mosfellsbæ sem var að Álafossi þar sem hljómsveitin Sigurrós hefur nú hreyðrað um sig. Einnig tók Klara sundspretti í stýflunni sem Sigurjón Pétursson á Álafossi lét úbúa í Varmánni á sínum tíma. Já Klara er en að. 

 

Við hin fyrstu þjóðhátíðarhöld kom nýstofnuð skólalúðrasveit fram undir stjórn Birgis D. Sveinssonar og hefur hún allar götur síðan verið órjúfanlegur hluti af hátíðarhöldum í sveitarfélaginu. Þennan dag var efnt til víðavangshlaups á hátýðarhöldunum og einn liðsmaður lúðrasveitarinnar var svo önnum kafinn að hann þreytti hlaupið í hvítri skyrtu með slaufu sem var fyrsti einkennisbúningur lúðrasveitarinnar.

 

Ágætu Mosfellingar.

 

Í dag minnumst við sjálfstæðisbaráttu íslensku þjóðarinnar. Hún virðist vera langt í burtu en samt er hún nútímalegri en margan grunar því í raun er hún sígild. Sjálfstæðisbarátta getur verið bundin við annað en þjóðir, einnig sveitarfélög eða manneskjuna sjálfa. Og hvort sem sveitarfélagið heitir sveit, bær eða borg kunnum við vel að meta hana Mosfellssveit sem breyttist í bæ á undraskömmum tíma. Hér viljum við iðka okkar víðavangshlaup í guðsgrænni náttúrunni í sátt við menn og dýr,  jafnvel í stuttbuxum og hvítri skyrtu  - með slaufu.

 

Gleðilega þjóðhátíð!

 

 

Hér kemur Bretinn viðkunnanlegi.

 

Að verða fyrir áhrifum tónlistar og tónlistarflutnings er einstaklega notaleg tilfinning. Ég varð fyrir þessum áhrifum í morgun áður en ég hélt út í veðurblíðuna til að taka þátt í hátíðarhöldum okkar Mosfellinga. Þetta var góður innblástur fyrir daginn. Þessi viðfeldni og magnaði söngvari vann hug minn allan. Hann hefur undanfarin ár fengist við símasölu.

 

Já, þeir leynast víða snillingarnir.

 

Ég læt þetta flakka með þó þetta tengist ekki beint þjóðhátíð okkar Íslendinga.

 

Góðar stundir kæru félagar.

 

Karl Tómasson.

 

 


Bloggfærslur 17. júní 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband