Ágúst, gefum honum tækifæri!!!

Ég held að við megum ekki gefa upp alla von um hann.

Mörgum kann að finnast reynslan sína annað. Í mínum huga er að halda í vonina og trúa á að hið ómögulega gerist. Konan mín segir að hann sé alltaf kaldur. 

Auðvitað eru allar hrakspár því miður oft mótandi og gera því í raun ekkert annað en að valda áhyggjum.

Ágúst er í mínum huga hlýr þrátt fyrir að öðrum kunni að finnast annað.

Ég fíla ágúst. Það er minn mánuður enda á ég afmæli þá.

Honum fylgir rómantík. Ekki satt?!!!


Svandís blómstrar

Mikið er gaman að fylgjast með Svandísi og hennar fjölskyldu. Tryggðin og samheldnin er aðdáunarverð og allt gengur eins og í sögu.

Yfirbragð fjölskyldulífsins er eitthvað sem við öll megum taka okkur til fyrirmyndar. Ég og mín fjölskylda höfum farið undanfarnar helgar til að kanna hvernig vegnar hjá þeim skötuhjúum sem komu nú 15. árið í röð til Íslands til að efla stofn sinn.

Allt virðist ganga eins og í sögu hjá þeim hjónum og afkomendurnir blómstra sem aldrei fyrr.

Ég skora á alla að gera sér ferð á Seltjarnarnes að litlu tjörninni við golfvöllinn og kíkja á hjónin lukkulegu. Það er tilvalið að fá sér í leiðinni besta ísinn í bænum sem seldur er rétt hjá KR vellinum.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.  


Bloggfærslur 11. júní 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband