Vinstri græn flökta ekki eins og strá í vindi

Nú þegar einungis sex dagar eru til kosninga er brýnt að allir hugsi til þeirrar baráttu sem Vinstri græn hafa staðið fyrir síðastliðin fjögur ár. Einungis fimm þingmenn hafa starfað fyrir flokkinn á alþingi Íslendinga með  slíkum dugnaði og elju að stór partur þeirrar baráttu er orðin að keppikefli allra stjórnmálaflokka að flagga sem sínu.

Stofnaður var nýr stjórnmálaflokkur til að berjast fyrir umhverfisvernd, Samfylkingin rær öllum árum til að öðlast að nýju traust sem umhverfisverndarflokkur svo margklofin sem hún nú er í þeim málaflokki. Flokkurinn hafði ekki einu sinni þor til að taka afstöðu vegna stækkunar álversins í Straumsvík í sjálfum heimabænum en helsta forystufólk flokksins hafði áhyggjur af 500m löngum vegarkafla í Mosfellsbæ á sama tíma. Framsóknarmenn bjuggu til sitt víðfræga slagorð, ekkert stopp, bara áfram með sama bullið. Frjálslyndir vita ekkert hvort þeir eiga að fara til hægri eða vinstri og Sjálfstæðisflokkurinn vill státa af því að vera orðinn umhverfisverndar- og feministaflokkur. Fuglinn orðinn bleikur og allt í standi.

Já, Vinstri græn hafa áhrif. Þegar flokkurinn svo kemst í oddastöðu eins og í Mosfellsbæ og situr þar við stjórn í fyrsta skipti undir eigin merki virðist sem allt ætli um koll að keyra. Þessa staðreynd virðast sér í lagi Samfylkingin og Framsókn engan vegin þola. Rétt eins og góð barátta þingmannannanna okkar fimm undanfarin ár hefur aðkoma Vinstri grænna að bæjarmálum í Mosfellsbæ þegar haft mikil áhrif.

Eitt af okkar stærstu kosningamálum var að gera leikskólann gjaldfrjálsan í áföngum. Nokkrum mánuðum síðar varð það mál að veruleika þegar fimmáradeildin var gerð gjaldfrjáls. Með því varð Mosfellsbær stærsta byggðarlag landsins til að stíga það skref. Í góðri samvinnu við Sjálfstæðismenn, samstarfsflokk okkar í bæjarstjórn, hefur verið ákveðið að Krikaskóli skuli ekki einkarekinn. Nú á næstu dögum verður auglýst til umsóknar ný staða hjá bæjarfélaginu. Starf þeirrar manneskju verður m.a. fólgið í Staðardagskrá 21. Það var eitt af stóru málum okkar Vinstri grænna í Mosfellsbæ. Í góðri samvinnu við samstarfsflokk okkar var einnig ákveðið að endurskoða fyrri ákvörðun og setja Tunguveg í umhverfismat án þess að til þess bæri bæjarfélaginu skylda. Nú á næstu mánuðum mun bæjarstjórn Mosfellsbæjar fara að huga að ýmsum stórum skrefum í menningar-og ferðamálum.

Já, Vinstri græn geta hæglega látið til sín taka en hafa verður í huga að í öllu samstarfi þarf að sýna skilning og sanngirni, á því byggist gott samstarf og á því hefur samstarf meirihlutans í Mosfellsbæ verið byggt. Á gagnkvæmri virðingu og trausti.

Ótrúleg afskiptasemi og áhyggjur pólitískra andstæðinga Vinstri grænna langt út fyrir bæjarmörk Mosfellsbæjar hafa á köflum borið keim af makalausri afbrýðisemi og heift. Einungis eitt dæmi nefna allir þessir pólitísku fulltrúar um skandal Vinstri grænna í Mosfellsbæ og það er hin víðfræga tengibraut í Helgafellsland. Þegar þessir sömu aðilar fara að tjá sig um málið kemur í ljós slík vanþekking á málinu að betur hefði verið heima setið en af stað farið hjá þessu ágæta fólki að tjá sig um málið.

Engir þessara aðila hafa bent á aðra lausn. Það er nú heila málið!!!

Egill Helgason stjórnandi Silfurs Egils var til að mynda ekki betur að sér en svo í þætti sínum í dag að hann stóð í þeirri meiningu að í Mosfellsbæ væru aðeins ein umhverfissamtök. Það er rangt, í Mosfellsbæ eru starfandi tvö umhverfissamtök og hér á árum áður voru starfrækt umhverfissamtökin Mosi. Eitt aðal baráttumál þeirra umhverfissamtaka var að koma í veg fyrir að Varmá yrði brúuð fyrir neðan Reykjalundarskóg inn í væntanlegt Helgafellshverfi. Ef sú leið hefði orðið fyrir valinu þyrfti að beina allri umferð í gegnum tvö stór íbúðarhverfi og þvera ekki bara Varmána heldur eitt vinsælasta útivistarsvæði Mosfellinga og vistmanna Reykjalundar. Það er sú tilllaga sem að Varmársamtökin leggja til nú í dag. Samfylkingin og Framsókn þegja nú þunnu hljóði yfir þeirri tillögu Varmársamtakanna. 

Við Vinstri græn hér í suðvestur kjördæmi teflum fram öflugum lista með dugnaðar- og reynsluboltann Ögmund Jónasson í fararbroddi. Allt stefnir í að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir nái kjöri. Það yrði mikill happafengur að fá hana á alþingi. Hún er einstaklega réttsýn, eldklár og heiðarleg baráttukona með hjartað á réttum stað.  

Vinstri græn geta bæði verið öflugur stjórnarandstöðuflokkur

og öflugur stjórnarflokkur, dæmin sýna það. 

Vinstri græn flökta ekki eins og strá í vindi. 

Vinstri græn hafa hreinar línur.  

Því geta allir kjósendur flokksins treyst. 

Karl Tómasson.


Bloggfærslur 6. maí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband