Hvað eru margir í Varmársamtökunum í dag???

Nú velti ég því orðið fyrir mér hvað eru margir í Varmársamtökunum.

Á fundi sem Mosfellsbær hélt í gær til að kynna nýja tengibraut í væntanlegt Leirvogstunguhverfi mættu að vanda áhugasamir meðlimir Varmársamtakanna. Eins og undanfarið eru þetta yfirleitt sömu 3-5 manneskjurnar sem láta að sér kveða. Því spyr ég mig, hvar er áhuginn??? 

Samtökin státa sig af hundruðum félagsmanna en hvar eru þeir? Fund eftir fund eftir fund mæta aðeins 4 - 9 félagsmenn Varmásamtakanna og oftar en ekki eru c.a. þrír sem spyrja fyrir hönd samtakanna. 

Hvar er áhuginn??? Hvar eru Bryndís, Jón Baldvin, Árni Matt, Samfylkingin, Framsókn, og allir sem hafa stutt samtökin með ráðum og dáðum og endalausum skrifum??? 

Það koma engar jákvæðar athugasemdir við hinum nýju tillögum samtakanna að breyttri aðkomu í Helgafellsland frá þessum aðilum. 

Þetta áhugaleysi vekur óneitanlega furðu.

Kær kveðja frá Kalla Tomm.


Átta dagar í kosningar. Valið er einfalt Vinstri græn og Eiki Hauks

Eiki Hauks og Dabbi KarlsHljómurinn

Í dag var ágætis útvarpsfundur hjá efstu frambjóðendum í suðvestur kjördæmi. Fundinum var útvarpað beint úr Mosfellsbænum frá veitingastaðnum Ásláki. Nokkrir gestir mættu á Láka til að hlýða á frambjóðendurna sem stóðu sig ágætlega.

Eins og við var að búast var fulltrúi okkar Vinstri grænna, Ögmundur Jónasson, beittur, skemmtilegur og málefnanlegur. Kobbi Frímans mætti í 30 grílna frakka og engu líkara en þar færi frambjóðandi með lágmark 70% fylgi, slíkur var slátturinn á kappanum þegar hann mætti á svæðið. Jakob er skemmtilegur, við verðum að viðurkenna það. Siv Friðleifs fékk slæm tíðindi um leið og hún gekk inn, því eina ferðina enn mælist hún utan þings í skoðanakönnun. Siv er nú líka svolítið töff eins og Kobbi. Sömu sögu er að segja af Kolbrúnu hjá Frjálslindum, þar vantar enn talsvert upp á að hún komist á þing. Frambjóðendur Sammaranna og Sjallanna stóðu sig bærilega, viðfeldnir strákar. 

Aðeins vantar herslumun upp á samkvæmt þessari könnun að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sé örugg inni fyrir okkur Vinstri græn. Það væri mikil lukka fyrir okkur að fá slíka afburða manneskju á alþingi. Í einu orði sagt frábær kona.

Svo vantar aðeins upp á varaþingmanninn hjá mér en til þess verðum við að tryggja öðlingnum honum Gesti Svavarssyni sem situr í þriðja sæti hjá VG öruggt þingsæti. Á þetta getum við öll haft áhrif 12. maí.

Hvað gengi Eiríks Hauks varðar sama dag í Helsinki getum við Íslendingar reyndar haft lítil áhrif annað en að senda honum góða strauma. Eika hef ég þekkt í 27 ár og hafa leiðir okkar í gegnum tónlistina oft legið saman. Þar ber hæst samkrull og vinátta okkar Gildrumanna og Startara með Pétur heitinn Kristjáns í fararbroddi. Eins eru ógleymanlegir margir frábærir tónleikar sem Gildran hélt með Eika sem sérstakan gest hér í Mósó, á Akureyri og í Reykjavík.

Bestu kveðjur til ykkar allra sem eruð í baráttunni 12. maí þó að sjálfsögðu helst til Ögmundar, Guðfríðar Lilju og Eika.

Á myndunum má sjá Eika bíta eyrað af Davíð Karlssyni trommara í Start og Hljóminn vinsæla úr Mosó skemmta fyrir Vinstri græn í Mosó.

Kær kveðja úr Mosó frá Kalla Tomm.

 


Bloggfærslur 4. maí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband