Fræðslugöngur í Mosfellsbæ

Varmá á sumardegiÍ síðustu viku stjórnaði ég mínum fyrsta fundi sem formaður atvinnu-og ferðamálefndar Mosfellsbæjar.

Á fundinum var m.a. samþykkt af nefndinni að standa fyrir svokölluðum fræðslugöngum um bæjarfélagið sem öllum er heimil þátttaka í endurgjaldslaust. 

Veg og vanda að öllum undirbúningi hefur haft rithöfundurinn og fræðimaðurinn Bjarki Bjarnason.

Laugardagurinn 26. maí kl. 10-13. Hvítasunnuganga að kirkjustöðum Mosfellsbæjar.

Lagt af stað frá Lágafellskirkju kl. 10, gengið að Varmá og Hrísbrú og endað á Mosfelli. Sagt verður frá fornum og nýjum kirkjustöðum sveitarfélagsins. Frá Mosfelli verður ekið tilbaka að Lágafelli. Leiðsögumaður: Magnús Guðmundsson sagnfræðingur.  

Laugardagurinn 2. júní kl. 10-13. Vorferð Sögufélags Kjalarnesþings.

Gönguferð um Elliðaárdal. Lagt verður af stað frá Árbæjarkirkju kl. 10 og gengið um hinn sögufræga og fagra Elliðaárdal sem áður tilheyrði Mosfellshreppi. Leiðsögumaður: Árni Hjartarson jarðfræðingur.

Laugardagurinn 9. júní kl. 10-13.Hjólaferð fyrir alla fjölskylduna.

Lagt af stað frá Varmárskóla kl. 10, hjólað meðfram Leiruvogi og Korpúlfsstöðum, síðan að Vesturlandsvegi, upp með Úlfarsá og niður í Reykjahverfi. Fararstjóri: Svava Ýr Baldvinsdóttir íþróttakennari.  

Laugardagurinn 16. júní kl. 10-13. Þjóðhátíðarganga meðfram Varmá.

Lagt af stað frá Reykjalundi kl. 10. Gengið niður með Varmá í gegnum Álafosskvos þar sem meðal annars verður sagt frá fánadeginum sem haldinn var hátíðlegur að Álafossi á árum áður. Gangan endar við Skiphól hjá hesthúsahverfinu og þaðan verður bílferð tilbaka að Reykjalundi. Leiðsögumaður: Guðmundur Jónsson á Reykjum.  

Laugardagurinn 23. júní kl. 10- 17. Jónsmessureiðferð með sögulegu ívafi.

Lagt af stað frá hesthúsahverfinu kl. 10 og riðið um Mosfellsdal, Torfdal og Seljadal og síðan meðfram Hafravatni niður í Reykjahverfi. Meðal annars verður áð við Dalsrétt, Nessel og Kambsrétt í Seljadal. Fararstjóri: Bjarki Bjarnason.   

Laugardagurinn 30. júní kl. 10-13. Gönguferð á Helgafell.

Lagt af stað frá Ásum norðan við Helgafell kl. 10. Meðal annars verða skoðuð stríðsmannvirki og gömul gullnáma. Leiðsögumaður: Guðjón Jensson.

Ég skora á alla að gera sér glaðan dag og fara í fróðlega fræðslu- og skemmtiferð með skemmtilegum leiðsögumönnum.

   

Allir eru velkomnir í ferðirnar. Ekkert þátttökugjald!

Karl Tómasson.  


Bloggfærslur 22. maí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband