fim. 17.5.2007
Verður valtað yfir lýðræðið?
Ekki efast ég um að allt það ágæta fólk sem að hana mun mynda reynir að gera allt sitt besta landi og þjóð til heilla. Vissulega sitja margir eftir með sárt ennið sem höfðu óskað einhvers annars.
Ég er einn af þeim.Í eitt ár höfum við Vinstri græn í Mosfellsbæ þurft að sæta látlausri gagnrýni vegna meirihluta samstarfs VG og Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn. Þar hafa farið fremst í flokki fulltrúar og félagar úr Samfylkingunni. Mörg þau orð og skrif sem hafa fallið í þeirri umræðu eru með ólíkindum. Flest hafa þau snúist um svik okkar Vinstri grænna við kjósendur og jafnvel aðra bæjarbúa.
Umræða Samfylkingarinnar um meint svik voru fyrst og fremst vegna samstarfs okkar við Sjálfstæðisflokkinn. Þau orð meðal þeirra félaga hafa oftast snúist um að verið sé að valta yfir líðræðið.Fljótt skipast veður í lofti.
Karl Tómasson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fim. 17.5.2007
Varmársamtökin funda með Samfylkingunni
Gunnlaugur B. Ólafsson varaformaður Varmársamtakanna átti í morgun fund ásamt öðru stjórnarfólki með Jónasi Sigurðssyni oddvita Samfylkingarinnar.
Ég hef um nokkurra mánaða skeið reynt að benda á óeðlilega mikil tengsl Varmársamtakanna og Samfylkingarinnar og þess vegna væri ekki hægt að kalla samtökin ópólitísk og laus við alla flokkadrætti.
Varmársamtökin eru rammpólitísk hagsmunasamtök, ekki umhverfissamtök eins og ég hef marg bent á.Samtökin hafa einskis svifist til að reyna að ná sínum markmiðum.
Það væri miklu hreinlegra hjá samtökunum að starfa undir nafni síns flokks en ekki undir yfirskini einhvers sem á að heita umhverfisvernd.
Karl Tómasson.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)