Óttalegt raus er þetta

Vinstri grænÍ nýjasta tbl. Mosfellings, sem kemur út á morgun og hægt er að sjá á mosfellingur.is, er grein eftir Samfylkingarmanninn Árna Pál Árnason. Eina ferðina enn rausa Samfylkingarmenn um það að þeir séu höfuðmótvægið við Sjálfstæðisflokkinn, það vantar ekkert hjá Árna nema að segja að atkvæði greitt Vinstri grænum yrði dautt og ómerkt.

Þá herferð notaði Samfylkingin óspart fyrir sveitarstjórnakosningar sl. vor en annað kom á daginn, það vita allir. Eins og Össur Skarp, Bjarna Frammara Harðar, Björn Inga og Jón Baldvin svíður Árna tilvist VG í meirihluta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar. Nú er spurning hvort Árni Páll geri ekki bara eins og Jón Baldvin, fari í fundarherferð um landið til að tala um VG í Mosó. Nei, annars ég ætla að gefa honum og félögum hans gott ráð: notið herferðina frekar í að tala um ykkar eigið ágæti, það er örugglega happadrýgra.

Með kærri kveðju úr Mosó. Kalli Tomm.


Bloggfærslur 3. apríl 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband