sun. 29.4.2007
Varmársamtökin, umhverfisvernd?
Eftir frábæra sumarbústaðarferð fjölskyldunnar í vikunni sem nú er liðin kennir ýmissa grasa í tölvunni. Tölvupósti hefur rignt og nokkrar athugasemdir á blogginu mínu sem alltaf er jafn spennandi að skoða. Það er þó tvennt sem vakti hjá mér slíka athygli að ég tel rétt að setja nokkur orð um það á bloggið mitt. Fyrst ber að telja ótrúlega athugasemd og hótun Gunnlaugs B. Ólafssonar varaformanns Varmársamtakanna og hitt var óundirrituð frétt ef frétt skal kalla á heimasíðu Framsóknar í Mosfellsbæ. Reyndar er nú fátt sem kemur manni orðið á óvart á þeirri síðu því oftar en ekki er fréttafluttningurinn allt að því sorglegur á þeim bænum.
Fyrir nokkrum vikum síðan voru skrifaðar athugasemdir á bloggsíðu mætrar konu hér í bæjarfélaginu (ekki á heimasíðu Varmársamtakanna eins og fram kom í frétt DV). Athugasemdirnar voru harðorðar og ljótar. Varmársamtökin komust að því að þessar athugasemdir komu úr minni tölvu. Í kjölfarið hafði Gunnlaugur B. Ólafsson, varaformaður Varmársamtakanna, samband við mig og vildi fá skýringar á skrifunum. Ég gekk strax í málið og í ljós kom að 16 ára sonur minn hafði gert þetta og gekkst hann strax við því. Ég hringdi rakleiðis í Gunnlaug og baðst á þessu afsökunar fyrir hönd sonar míns.Samt sáu Varmársamtökin ástæðu til þess að hafa samband við DV og gera úr þessu mál. Af hverju er mér algjörlega óskiljanlegt og í raun undirstrikaði það fyrir mér þá heift sem samtökin hafa beitt undanfarið.
Nú tæpri viku síðar skrifar Gunnlaugur B. athugasemd á bloggsíðu mína sem ekki er með nokkru móti hægt að túlka öðru vísi en svo að eitthvað meira grugg sé að finna úr minni tölvu og annarra. Hann talar um að viðkomandi aðilar þurfi að axla ábyrgð. Þá spyr ég á móti, á hvaða skrifum þarf ég til að mynda að axla ábyrgð sem ekki hefur þegar verið greint frá og gerð grein fyrir? Framsóknarfréttir sáu svo ástæðu til að reyna að koma sama grugginu í loftið án þess að hafa nokkuð í höndunum annað en bitlaust vopn til að reyna að gera einhvern tortryggilegan.
Athygli vekur að einn aðaltalsmaður Varmársamtakanna hefur þegar gengist við því að hafa skrifað fjölda athugasemda á bloggsíður undir hinum ýmsu nöfnum undanfarnar vikur og mánuði.
Karl Tómasson.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)