Hundrað athugasemda greinin!!!

TengibrautinÉg skrifaði á dögunum grein sem bar yfirskriftina Varmársamtökin og Vinstri græn. Nú er svo komið að hátt í eitt hundrað athugasemdir hafa verið færðar á bloggsíðu mína vegna hennar.

Sennilega slagar það í Íslandsmet. Þessi umdeilda tengibraut sem allir hafa skoðun á og því miður einnig fólk sem hefur ekki kynnt sér málavöxtu hefur fengið mikla athygli í fjölmiðlum. Á myndinni má sjá legu hennar. Þar sem hvítu punktarnir eru mun tengibrautin taka við af gamla Álafossvegi. Fyrir neðan hvítu punktana er Álafosskvosin þar sem svo margir álíta, fyrir einhvern misskilning, að tengibrautin fari í gegnum. Eins og sjá má er það víðs fjarri. Tengibrautin liggur fyrir ofan Álafosskvosina eins og glöggt má sjá. Bæjaryfirvöld Mosfellsbæjar hafa gert allt til að milda áhrif hennar, m.a. með því að lækka hana til muna og færa fjær Kvosinni. Einnig má sjá þar sem rauðu punktarnir eru að  gert er ráð fyrir vegi. Nú er fyrirhugað að leggja þann veg af og tengja Álafosskvosina með vegstubb þar sem hvítu punktarnir með svarta dílnum eru. Þetta er málið.

Þetta er stóra umhverfismálið. Þetta er stóra umhverfisslysið í Mosfellsbæ sem Samfylkingin og Framsókn hafa róið öllum árum til að koma höggi á Vinstri græn í Mosfellsbæ. Það ótrúlega er að flokkarnir báðir hafa aldrei greitt þessari tillögu á legu brautarinnar mótatkvæði sitt og hafa þeir nú haft mörg tækifæri til.


Klara Klængs

Klara Klængs Á fimmtudaginn kemur, 19. apríl, (sumardaginn fyrsta) verður vígð ný sundlaug í Mosfellsbæ. Sérstakur heiðursgestur við athöfnina verður Klara Klængsdóttir en hún synti vígslusundið í Varmárlaug 17. júní árið 1964.

Nú 43 árum síðar vígir Klara okkar nýju sundlaugina á vestursvæði Mosfellsbæjar við hátíðlega athöfn. Það verður einstaklega gaman að sjá Klöru endurtaka leikinn. 

Klara Klængsdóttir var kennari við Brúarlandsskóla og síðar Varmárskóla um áratugaskeið. Hún var ákaflega farsæll kennari sem að allir elskuðu. Bæði samstarfsmenn hennar og nemendur. Klara hefur sennilega kennt fleiri Mosfellingum að lesa en nokkur annar. Hún hefur sennilega líka og án vafa með góðmennsku sinni, ástríki og lítillæti fengið margan til að átta sig á hvað þarf til að öðlast hamingju.

Ég skora á alla Mosfellinga að fjölmenna við vígslu nýju sundlaugarinnar. Á myndinni má sjá Klöru fá aðstoð frá þáverandi oddvita Mosfellshrepps, Jóni M. Guðmundssyni. Fremst og lengst til hægri á myndinni er pabbi gamli, Tómas Sturlaugsson fyrrverandi kennari og skólastjóri við Brúarlands- og Varmárskóla. 


Bloggfærslur 17. apríl 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband