sun. 1.4.2007
Uriah Heep
Nú eru gömlu átrúnaðargoðin mín í Uriah Heep væntanleg til landsins öðru sinni. Fyrir 19 árum síðan, í apríl 1988, komu þessir höfðingjar til landsins og héldu tvenna tónleika. Þá urðum við, félagarnir í Gildrunni, þess heiðurs aðnjótandi að fá að hita upp fyrir þá.
Ég gleymi því aldrei þegar umboðsmaður hljómsveitarinnar hringdi heim til mín, en þá bjó ég í foreldrahúsum og fór þess á leit við mig að við Gildrufélagar myndum hita upp. Í fyrstu taldi ég að um símaat væri að ræða en trúði manninum í lokin enda talaði hann klárlega ensku að hætti innfæddra. Félagar mínir hlógu dátt þegar ég hringdi í þá og tjáði þeim tíðindin. Þeir sögðu: "Kalli, nú ert þú að láta hafa þig að fífli!!!". Annað kom sem betur fer á daginn og þetta varð staðreynd. Þetta var mikil upplifun fyrir okkur sveitarmennina úr Mosfellsbæ og við stóðum okkur bara mjög vel í upphituninni.
Seinna urðum við svo þess heiðurs aðnjótandi að hita upp fyrir Status Quo, Nasareth og Jethro tull. Engin íslensk hljómsveit hefur hitað upp fyrir eins margar hljómsveitir sem hafa heimsótt landið. Já, við vorum flottir á sínum tíma gömlu Gildrukarlarnir. Ég hef að þessu tilefni bætt við nokkrum lögum eftir gömlu snillingana í Uriah Heep hér í lagalistann til vinstri. Í myndasafninu má sjá mynd af okkur Gildrufélögum og Uriah Heep. Góða skemmtun.
Kær kveðja Kalli Tomm.
Bloggar | Breytt 2.4.2007 kl. 00:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
sun. 1.4.2007
Glíman er flott
Glíman er mögnuð íþrótt og í raun ótrúlega flott þegar maður fer að spá í hana. Einu sinni fór ég á glímuæfingar í kjallaranum í Brúarlandi en þrátt fyrir fjöldann allan af efnilegum glímumönnum var aldrei stofnuð glímudeild hjá Aftureldingu, ekki frekar en hjá svo mörgum öðrum íþróttafélögum. Mikið væri gaman ef þessi þjóðaríþrótt fengi veglegri sess.
Grettisbeltið er merkasti og sögufrægasti gripur í gjörvallri íþróttasögu Íslands og einnig sá elsti. Hefur það verið farandgripur allt frá upphafi og vinnst aldrei til eignar. Sama ólin fylgir beltinu og var á því upphaflega. Grettisbeltið var smíðað í Reykjavík af Erlendi gullsmið Magnússyni. Það er úr silfri og er mynstur þess mjög skrautlegt. Að framan er á því kringlóttur skjöldur með andlitsmynd er á að tákna Gretti fornkappa Ásmundarson er var fangbragðakappi mikill eftir því sem saga hans segir. Umhverfis skjöldinn er letrað höfðaletri: "Glímuverðlaun Íslands, Grettir." (tilvitnun: Glímusamband Íslands)
Úr Mývatnssveitinni hafa margir fræknustu glímukappar landsins komið. Hver man ekki eftir tvíburabræðrunum Pétri og Inga Þór Yngvasonum frá Skútustöðum? Ingi Þór hlaut Grettisbeltið fjórum sinnum og Pétur fimm sinnum. Minn maður í glímunni var Eyþór Pétursson frá Baldursheimi, það er augljós ástæða fyrir því hjá mér. Ég var í sveit hjá honum í nokkur sumur, það var skemmtilegur tími. Eyþór var af mörgum talinn hafa óhemju fallegan líkamsburð í glímunni. Eyþór hlaut Grettisbeltið tvisvar sinnum. Nú er strákurinn hans, Pétur, búinn að slá pabba gamla út því hann varð Grettisbeltishafi í þríðja sinn nú á dögunum. Hvað ætli pabbi gamli segi við því?
Meðal fræknustu glímukappa á árum áður má nefna Sigurjón Pétursson frá Álafossi. Hann varð Grettisbeltishafi fjórum sinnum á árunum 1910-1913. Ömmubróðir Hjalta Úrsusar Árnasonar, Sigurður Greipsson frá Biskupstungum í Haukadal, hlaut beltið fimm sinnum á árunum 1922-1926 en enginn hefur en slegið Ármann J Lárusson út, hann hlaut Grettisbeltið hvorki meira né minna en fimmtán sinnum á árunum 1952-1967. Það er ótrúlegt afrek.
Kær kveðja Kalli Tomm.
![]() |
Pétur og Svana unnu Íslandsglímuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
sun. 1.4.2007
Til hamingju Hafnarfjörður
![]() |
Hafnfirðingar höfnuðu stækkun álversins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
sun. 1.4.2007
Komið þið sæl kæru vinir og félagar
Það er gaman að vera kominn í hópinn, ég vona að ég eigi eftir að standa mig vel og vera duglegur að skrifa. Ég vona einnig að ég eigi eftir að fá margar góðar heimsóknir til mín. Verið öll hjartanlega velkomin. Kalli Tomm.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)