fös. 21.12.2007
Var eitt frægasta jólalag heims samið í Mosfellsbæ? Að ári liðnu
Á stríðsárunum voru fjölmargir hermenn, bandarískir og breskir með sínar bækistöðvar í Mosfellsbæ. Enn í dag má sjá merki þess t.d. á Ásunum við Þingvallaafleggjara en þar eru enn rústir af gömlu sjúkrahúsi. Margar sögur hafa verið skrifaðar af hjúkrunarkonu sem starfaði þar og talið er að sé þar en á sveimi.
Á Brúarlandi hjá ömmu Kristínu og afa Lárusi var einnig fjöldi hermanna með sitt athvarf og hefur mamma sagt mér margar skemmtilegar sögur frá þeim tíma. Þá var mamma lítil stelpa, hún er næst yngst í stórum systkinahópi. Brúarland er eitt fallegasta hús okkar Mosfellinga og frá þessu gamla skólahúsi eiga margir Mosfellingar góðar minningar.
Nú ári eftir að ég skrifaði þessa færslu mína er þetta gamla fallega hús að fá sitt gamla hlutverk aftur.
Nýlega sagði góður vinur minn mér skemmtilega sögu, hafða eftir föður sínum, að einn af þeim hermönnum sem hafi verið í Mosfellsbæ á þessum tíma hafi verið Lee Roy Anderson. Lee Anderson samdi skömmu síðar eitt frægasta og fallegasta jólalag allra tíma sem ég læt hér fylgja með í stórkostlegum flutningi Ellu Fitzgerald. Njótið vel.
Þessi mynd af gamla Brúarlandi er fengin frá þeim mæta manni, Sigurði Hreiðari. Hann á stórt og mikið safn ljósmynda.
Bloggar | Breytt 6.12.2008 kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
fös. 21.12.2007
Skatan í Hlégarði
Eftir annasaman dag í jólaundirbúningi sem gekk vel er hugurinn nú kominn að ilmandi skötunni.
Mosfellingar hafa um árabil fylgt liði í skötuna hans Vignis í gamla félagsheimilið okkar Hlégarð og notið þar sannkallaðrar stórveislu.
Á boðstólnum eru allrahanda fiskréttir þannig að þeir sem kunna ekki að meta skötuna geta verið óhræddir að koma í stemninguna og njóta hennar ásamt skötusjúklingunum.
Hjá okkur Mosfellingum er líka flutt lifandi tónlist fyrir matargesti og mun okkar vinsæli dúett Hljómur taka nokkur lög í Hlégarði. Hinn dúettinn Hvirfilbylur er vant við látin að þessu sinni. Myndin er af Hljómnum þegar hann skemmti fyrir VG í Mosó.
Talandi um skötu og pestina sem fylgir suðu á henni þá langar mig að segja ykkur frá því að ég keypti einu sinni umdeildustu ryksugu á Íslandi Rainbow, hún er ekki bara galdratæki í ryksugun heldur er hún einnig sannkallað galdratæki í skötupestarhreinsun. Rainbow er hverrar krónu virði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fös. 21.12.2007
Afmæliskveðja til vinkonu
Einn af mínum bestu vinum á afmæli í dag. Það er hún Hjördís Kvaran, hún er sannur fjölskylduvinur og ein litríkasta og skemmtilegasta persóna sem ég hef kynnst um dagana.
Hún er í senn bráðskörp, góð og óútreiknanleg. Það er aldrei lognmolla í kringum Hjöddu, þegar hún mætir á svæðið gerist alltaf eitthvað óvænt og skemmtilegt.
Mikið gefur það lífinu mikið gildi að kynnast manneskju sem er heilt í gegn gæðin ein og um leið óútreiknanlegur sérvitringur með yfirburða þekkingu á ótrúlegustu málefnum.
Til hamingju með daginn Hjödda okkar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)