Talaðir þú við Gens í jær?

Það er með ólíkindum hvernig manni tekst stundum að klára jafnvel heila setningu með slíku brengli að hún hljómar nánast eins og talað sé tungum.

Í dag átti ég spjall við vin minn sem er að fara að halda upp á stórafmæli bráðlega. Hann sagði mér m.a annars að hann væri búinn að bjóða Jens í veisluna og hefði gert það í gær.

Þá sagði ég "já! talaðir þú við Gens í jær" Auðvitað ætlaði ég að segja, talaðir þú við Jens í gær.

Um daginn spurði ég konu mína hvað eigum við að hafa í matinn í kvöld, þá sagði hún er ekki upplagt að við höfum spakk og haketí.


Ekki skánar það!!!

Ekki skánar það

Alltaf herðast reglurnar um aukið öryggi

Sagað

Ég tók á dögunum  þátt í umræðum um öryggismál barna á leiksvæðum við skóla. Ljóst er að þær kröfur sem gerðar eru um öryggi virðast hertar með ári hverju og auðvitað er það gott. Í bæklingi sem ég sá og fjallar m.a. um aukið öryggi barna t.d. á skólalóðinni voru nokkrar myndir af hættum sem kölluðu á úrbætur.

Ég verð að viðurkenna að sumt sem ég las þar og sá sagði mér að einfaldara væri að fá alla til að ganga með hjálma svona dags daglega.

Auðvitað er gott að smiðum með sex - sjö eða átta putta fækkar og auðvitað er því m.a. að þakka að reglur um aukið öryggi eru hertar.   


Bloggfærslur 9. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband