lau. 3.11.2007
Þægileg á Álafoss föt bezt
Tíminn líður hratt á gervihnattaöld söng Pálmi Gunnarsson ásamt Mannakornum á ógleymanlegum tónleikum á Álafoss föt bezt fyrir bráðum 10 árum.
Í næsta mánuði eru liðin 10 ár frá því að Álafoss föt bezt opnuðu. Ég fann þetta gamla viðtal sem Mbl tók við mig fljótlega eftir að við opnuðum staðinn.
Myndin af húsinu var tekin í morgun en þar er nú Ásgarður, handverkstæði með sína aðstöðu.
Þægileg á Álafoss föt bezt
Í DESEMBER síðastliðnum var opnað veitingahúsið Álafoss föt bezt sem dregur nafn sitt af auglýsingu á gafli hússins sem til margra ára hýsti fyrirtækið Álafoss í Mosfellsbæ. Það voru bræðurnir Karl og Steinar Tómassynir og eiginkonur þeirra, Líney Ólafsdóttir og Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir, sem ákváðu að gera húsnæðið upp og starfrækja þar skemmtistað. "Við höfðum það að markmiði að breyta staðnum sem minnst og höfðum upprunalegar teikningar til hliðsjónar og fengum eldgamlar ljósmyndir frá ekkju forstjóra Álafoss, mjög merkilega myndir, og létum smíða glugga og annað eftir þeim," sagði Karl Tómasson.
Þegar ljósmyndari blaðsins leit inn á Álafoss föt bezt var Bubbi Morthens að skemmta og stemmningin róleg en með léttu yfirbragði því popparinn reytti af sér brandarana og sagði sögur. Fólk sat með kaffi eða öl og naut tónlistarinnar í hlýlegu og þægilegu umhverfi. "Við höfum lagt mjög mikið upp úr því að hafa góða tónlist á boðstólum og á hverju fimmtudagskvöldi höfum við verið með blús- og rokktónleika nema núna í sumar þá höfum við tekið smá frí frá því. Okkar helstu tónlistarmenn hafa spilað hér og kunnað mjög vel við andrúmsloftið en húsið á litskrúðuga sögu og var áður notað sem leikfimissalur, sníðastofa, skrifstofur Álafoss, bíóhús á sínum tíma og danssalur."
Að sögn Karls eru Mosfellingar duglegir að sækja staðinn heim en það hafi aukist að íbúar nágrannasveitafélaganna kíkji í heimsókn. "Við bjóðum upp á kaffi, öl og léttar veitingar en helsta aðdráttarafl staðarins er í mínum huga tónlistin, því þeir flytjendur sem hafa spilað hjá okkur tala allir um góðan anda og fínan hljómburð. Það er skemmtileg stærð á staðnum, hvorki of stór né of lítill."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
lau. 3.11.2007
Einn laufléttur Kalli Tomm
Þar sem ég vann keflið tek ég einn laufléttann fyrir svefninn og allir með.
Hver er maðurinn???