Mosfellsbær fyrr og nú

Í mínum huga er Mosfellsbær alltaf sveit og bær og það er gaman að eiga þá minningu. Ég man nefnilega þegar rollurnar hans Hauks á Helgafelli gerðu sig heimakomnar um miðjar nætur í garðinn við heimili mitt, Markholt 4. Markholt var fyrsta gatan sem byggð var í Mosfellssveit, svo komu Lágholt, Dvergholt, Byggðarholt og allar hinar fallegu göturnar sem prýða nú bæjarfélagið. Þá var pabbi minn Tómas Sturlaugsson skólastjóri Varmárskóla.

Seinna, eða árið 1970 gaf hann kost á sér fyrir hönd vinstrimanna og óháðra til setu í sveitastjórn. Fyrrnefndur Haukur á Helgafelli sat í fyrsta sæti og pabbi í öðru. Þeir gömlu félagarnir unnu glæstan kosningasigur og það sem meira var að eftir kosningar mynduðu þeir meirihluta sveitastjórnar með Sjálfstæðismönnum. Fyrir hönd Sjálfstæðismanna mynduðu með þeim meirihlutann Jón M. Guðmundsson bóndi á Reykjum og Salóme Þorkelsdóttir Reykjahlíð. Í minnihluta sat Axel Aspelund, þá búsettur í Hlíðartúni, hann var teppamaður á þeim tíma í harðri samkeppni við Álafoss. Sveitastjóri var Hrólfur Ingólfsson, hann tók píputóbak í vörina, það er mér alltaf jafn minnisstætt.

Þrjátíu og sex árum síðar myndaði ég, örverpið hans pabba ásamt Vinstri grænum meirihluta í bæjarstjórn Mosfellsbæjar með Sjálfstæðismönnum. Svona geta örlögin oft verið skrítinn. 

Pabbi og Salóme Þorkelsdóttir fyrrverandi forseti alþingis voru miklir vinir og það var mér sannur heiður að hafa fengið að taka þátt í útnefningu hennar að heiðursborgara Mosfellsbæjar.

Á efri myndinni er gamla sveitastjórnin. Efst til vinstri: Haukur, Axel og pabbi. Neðri röð, Hrólfur, Salóme og Jón M.

Á neðri myndinni er núverandi bæjarstjórn ásamt heiðursborgaranum. Efst til vinstri: Jónas Sigurðsson, Karl Tómasson, Haraldur Sverrisson, Marteinn Magnússon og Hafsteinn Pálsson. Neðri röð, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingiskona og fyrrverandi bæjarstjóri, Salóme Þorkelsdóttir, Herdís Sigurjónsdóttir og Hanna Bjartmars.

Sveitastjórn í Mosó 70 -74

Bæjarstjórn og Salome

Bloggfærslur 28. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband