þri. 20.11.2007
Bloggalþýðan og blogglæðurnar
Nokkrum sinnum hef ég látið þá skoðun mína í ljós að bloggið sé án vafa eitt það besta og merkilegasta sem upp hafi komið fyrir íslenska tungu og menningu hin síðari ár. Á þessari trú minni verð ég alltaf staðfastari.
Hundruð og jafnvel þúsundir íslendinga sitja við skriftir, skiptast á skoðunum og þankagangi í gríni og alvöru hvern dag og oftar en ekki og sem betur fer á málefnalegan hátt. Er þetta ekki gott fyrir tungu okkar og menningu? Auðvitað eru draugar inn á milli í þessum heimi eins og öðrum en ég tel ástæðulaust að eyða bleki í þá lágkúru að þessu sinni.
Á meðal minna bloggvina, eins og vafalaust flestra annarra er til að mynda fólk sem hefur haft margt fróðlegt og uppbyggilegt fram að færa og oft unun að lesa og setja sig inn í þeirra þankagang og lífsviðhorf og hafa tækifæri til þess hvern dag. Að hafa jafnframt tækifæri til þess hvern dag að koma með athugasemdir, spurningar og hrós til fólks sem fæst við þessi skrif er einnig ómetanlegt. Bloggarar eru: iðnaðarmenn, stórstjörnur, húsmæður, pólitíkusar,verkamenn, læknar, leigubílstjórar og nemar. Með öðrum orðum, fólk úr öllum stéttum.
Oft er talað um alþýðumanninn, manninn sem er yfir ekkert hafinn og talar máli alþýðunnar. Fyrir kosningar telja pólitíkusar t.d. oft gott að tilheyra þeim fjölmenna hópi. Í bloggheimum sér maður ótrúlega oft og glöggt hinn eina sanna alþýðumann, það er manneskjur sem eru tilbúnar að taka þátt í almennum umræðum, hversu merkilegar eða ómerkilegar sem þær kunna nú að vera, axla ábyrgð á skrifum sínum og þankagangi, tilbúnar að gantast, tilbúnar að opinbera fáfræði sína í sumu hverju og tilbúnar að tak þátt í umræðunni, burt séð frá stétt eða stöðu. Svo er auðvitað einnig til fólk sem á þessu hefur engan áhuga, gott og vel.
Blogglæðurnar eru merkilegra fyrirbrygði. Það er fólk sem læðist um heima bloggsins, smjattar á umræðunni öllum stundum og oftar en ekki gerir lítið úr þessari vitleysu allri en þorir ekki fyrir sitt litla líf að taka þátt og opinbera sína skoðun. Jú sumir undir leyninöfnum.
Bloggið er þverskurður af sönnu alþýðufólki sem ég held fyrst og síðast, taki sig í raun ekki of alvarlega.
Er það ekki gott?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)