fös. 16.11.2007
Hver er fallegasta þulan?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
fös. 16.11.2007
Jónas og Megas
Það er magnað að fara um heimahaga Jónasar og þrátt fyrir að 200 ár séu liðin frá fæðingu hanns kemur hann alltaf upp í hugann á þessum slóðum. Dalurinn er einn sá fegursti og Hraun í Öxnadal er einstakt, það eru miklir kraftar á þessum slóðum.
"Kvæðin hafa fylgt sérhverri kynslóð, lesin og sungin á hátíðum og góðum stundum. Þau eru einföld og tær eins og fjallalind". Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson forseti m.a. um ljóð Jónasar á degi íslenskrar tungu.
Megas hefur m.a. verið heiðraður á þessum degi og er því við hæfi að eitt verka hanns fljóti með. Þeir eiga margt sameiginlegt Jónas og Megas.
Nú syngja allir með og við látum nægja fyrstu tvö erindin í Vísum Íslendinga.
Vísur Íslendinga
Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur,
er gleðin skín á vonarhýrri brá?
Eins og á vori laufi skrýðist lundur,
lifnar og glæðist hugarkætin þá.
Og meðan þrúgna gullnu tárin glóa
og guðaveigar lífga sálaryl,
þá er það víst, að beztu blómin gróa
í brjóstum, sem að geta fundið til.
Látum því, vinir, vínið andann hressa,
og vonarstundu köllum þennan dag,
og gesti vora biðjum guð að blessa
og bezt að snúa öllum þeirra hag.
Látum ei sorg né söknuð vínið blanda,
þó senn í vinahópinn komi skörð,
en óskum heilla og heiðurs hverjum landa,
sem heilsar aftur vorri fósturjörð.
Gamli sorrí Gráni
er gagnslaus og smáður
gisinn og snjáður
meðferð illri af.
Hann er feyskinn og fúinn
og farinn og lúinn
og brotinn og búinn að vera
hann er þreyttur og þvældur og
þunglyndur spældur
og beiskur og bældur í huga.
Gamli sorrí Gráni
er gagnslaus og smáður
gisinn og snjáður
meðferð illri af.
Hann er beygður og barinn
og brotinn og marinn
og feigur og farinn á taugum
hann er knýttur og kalinn
og Karoni falinn
ó hvað hann er kvalinn af öllum.
Gamli sorrí Gráni
er gagnslaus og smáður
gisinn og snjáður
meðferð illri af.
Eitt sinn sagði Megas þegar hann var spurður að því af hverju hann semdi svona andstyggilega texta um konur, en fallega og tregafulla texta um hesta? "Það er vegna þess að ég er skíthræddur við hesta, maður veit aldrei upp á hverju þeir taka, kasta manni af baki, eða sparka í mann. Konur eru ósköp meinlausar".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)