Ekki var Jussi síðri


Snoddas var engum líkur


Ég fagna fyrir hönd Varmársamtakanna

Ég vil nú nota tækifærið og óska Varmársamtökunum innilega til hamingju með að hafa loks slitið öllum tengslum við bloggdólginn Valda Sturlaugz.

Hann og hans fólk hefur undir nafnleynd um margra mánaða skeið verið einn af aðal talsmönnum samtakanna og veist að fólki með slíkri háð og heift að engu tali tekur, þrátt fyrir marg ítrekuð viðvörunarorð mætra sveitunga um hversu lágt samtökin hafa lagst með tengingu sinni við hann.

Ég tel þetta stórt skref í í baráttu samtakanna um hin einu sönnu umhverfismál, því umhverfið snýst ekki síst um manneskjuna. Varmársamtökin hafa því miður farið allt of glannalega fram í sínum baráttumálum og hefur það án vafa stórskemmt fyrir þeirra hugðarefnum. 

Ég vona að aðalfundur Varmársamtakanna, sem hafa án vafa sannarlega margt til málanna að leggja fari vel fram og þeirra baráttumál nái hljómgrunni. Það gerist aldrei með þeim aðferðum sem þau hafa beitt undanfarið ár en getur án vafa gerst með breyttum áherslum.

Á það geta kjósendur til nýrrar stjórnar haft mikil áhrif og þar vegur þungt að  Bjarki Bjarnason fái glæsilega kosningu. 

Karl Tómasson.


Bloggfærslur 14. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband