Bloggdólgurinn Valdi Sturlaugz

Sumir bloggarar kjósa einhverra hluta vegna að skrifa ekki undir sínu eigin nafni, heldur að notast við einhver leyninöfn. Í sjálfu sér er ekkert athugavert við það svo fremi sem alls velsæmis er gætt. Alvarlegra er þegar slík leyninöfn eru notuð til þess eins að vera með háð, níð, lítilsvirðingu og svívirðingar gagnvart nafngreindum manneskjum og samferðafólki þeirra. Nokkur slík dæmi dúkka upp öðru hvoru en misalvarleg þó.

   Undanfarnar mánuði hafa Varmársamtökin haft sem tengil á sinni heimasíðu bloggdólg sem kallar sig Valda Sturlaugz. Hann fer hamförum í skrifum sínum sem einkennast öll af rætnu háði og lítilsvirðingu og hafa þau skrif beinst sérstaklega að fáeinum persónum og þá einna helst mér undirrituðum.

   Þó nokkrir hafa séð ástæðu til að fjalla um þetta og hefur stjórn samtakanna m.a. verið send bréf og athugasemdir frá mætum sveitungum þar sem gerðar hafa verið alvarlegar athugasemdir við það að samtökin skuli ekki sjá sóma sinn í að taka þetta út af síðu sinni og afneita öllum tengslum við umræddan bloggdólg. Þvert á móti hafa samtökin leyft þessum bloggdólgi að koma með athugasemdir á síðu sína undir leyninafni á sama tíma og þau hafa séð ástæðu til að henda út jafnvel einföldum fyrirspurnum, undirrituðum með fullu nafni einstaklinga sem raunverulega eru til.  

   Þessi sömu samtök lögðu sig fyrr á árinu afar hart fram við að upplýsa hverjir meintir bloggdólgar væru sem herjuðu á síðu samtakanna og annarra og nafngreindu þar fólk án afláts. Á sama tíma herjaði ein aðaltalskona samtakanna, Kristín Pálsdóttir systir stjórnarkonunnar Sigrúnar Pálsdóttur, á sömu síður undir hinum ýmsu leyninöfnum, notaði annarra manna netföng í leyfisleysi og stofnaði jafnvel heila bloggsíðu í kringum einn "karakterinn" sinn. Ennfemur hafði hún fyrir því að búa til nýtt netfang á bak við nær hvert einasta nafn sem hún skáldaði upp. Þetta kom í ljós þegar ip-tölur voru birtar og var staðfest í samtali við blaðamann DV þegar málið var komið á forsíður blaðsins. Hún hafði viðurkennt fyrir honum að hafa skrifað undir þessum leyninöfnum. Gunnlaugur B. Ólafsson varaformaður staðfesti ennfremur nýlega að Kristín hafi skrifað undir þessum leyninöfnum. Var Kristín notuð af stjórn samtakanna til þess að koma höggi á þá sem gagnrýndu stjórnina eða tók hún upp á þessu hjá sjálfri sér?

   Þegar kvartað hefur verið yfir skrifum Valda Sturlaugz á heimasíðu Varmársamtakanna hefur Berglind Björgúlfsdóttir formaður, svarað á þá leið að viðkomandi verði að ræða málin við hinn umrædda bloggdólg. Hún tekur enga afstöðu gagnvart þeirri staðreynd að maðurinn er ekki til þrátt fyrir að vita það og líklega að vita hver(jir) leynist á bak við nafnið. Hún segist hafa þurft að úthýsa fólki af síðu samtakanna vegna fúkyrðaflaums, sem er ekki rétt - viðkomandi var úthýst þar sem hann spurði samtökin of erfiðra spurninga. Berglind lítur það hinsvegar mildum augum að fólk skrifi þar undir leyninöfnum, á meðan það er í þágu samtakanna. Að framansögðu er næsta líklegast að stjórnarfólk úr Varmársamtökunum eða fólk nátengt henni stendur að baki nafninu Valdi Sturlaugz svo aumkunarvert sem  það nú er.

   Huldumaðurinn Valdi Sturlaugz þekkir vel til mála í Mosfellsbæ og er ljóst að hann hefur mikil tengsl og sambönd í bæjarpólitíkinni á sama tíma og hann lýsir því yfir að hann búi í Reykjavík, sé sjálfstæðismaður og hafi lítinn sem engan áhuga og þekkingu á bæjarmálum í Mosfellsbæ. Hann hefur einstakan áhuga á málefnum VG hér í bæ og öllu sem að þeim snýr. Það vekur furðu að hann kallaði m.a. samflokksmann sinn í sjálfstæðisflokknum, Ragnheiði Ríkharðsdóttur, cover-girl bæjarblaðsins Mosfellings og undraðist hvað blaðið hampaði henni. Þessi huldumaður sá einhverra hluta vegna einnig ástæðu til þess að gera lítið úr leiðaraskrifum ritstjóra Mosfellings Hilmars Gunnarssonar og gera lítið úr frjálsri og óháðri aðkomu þess blaðs að bæjarmálum. Um leið hampaði hann umfjöllun Morgunblaðsins um málefni Varmársamtakanna og skjallar nú sem aldrei fyrr núverandi bæjarstjóra, væntanlega í þeirri trú og von að hann taki öðruvísi á málefnum Varmársamtakanna en Ragnheiður Ríkharðsdóttir.

   Allt kemur þetta frá manni sem segist búa í Reykjavík og vera sjálfstæðismaður! Staðreyndin er hinsvegar sú að tónninn í skrifum Valda Sturlaugz minnir oft frekar á málflutning samfylkingarfólks í Mosfellsbæ en rótgróins sjálfstæðismans enda hefur það margoft komið fram í umræðunni hversu Varmársamtökin og Samfylkingin hafa hampað hvort öðru í málflutningi sínum. Eins og Varmársamtökunum er  mikið í mun að láta sem þau séu ópólístísk. Nú virðist samt sem að renna séu á Samfylkinguna tvær grímur um ágæti samstarfsins.

   Það er furðulegt til þess að vita að samtök sem börðust hvað harðast og úthrópuðu meinta bloggdólga skuli ekki reyna að upplýsa hver umræddur aðili er og ef ekki er vilji eða geta til þess, afhverju þau slíta ekki öll tengsl sín við þennan aðila þar sem greinilega fá að blómstra brenglaðar hvatir fólks sem virðast hafa það eitt að leiðarljósi að hefna ímyndaðra harma.

   Það er fáranlegt að hægt skuli vera að halda út heilli bloggsíðu þar sem að menn halda úti einelti og dylgjum í skjóli nafnleyndar.

   Þess má geta að lokum að aðeins er til einn maður sem er kallaður Valdi Sturlaugs, það er maður um áttrætt sem er föðurbróðir minn.

Virðingarfyllst

Karl Tómasson.


Bloggfærslur 9. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband