Dagblaðið fréttir ýmislegt, en hvaðan???

Undanfarið hef ég lesið talsvert um persónulega hagi mína, starf Vinstri grænna og bæjarmálin í Mosfellsbæ í DV. Blaðið hafði t.d. af því spurnir að ég væri orðinn lóðareigandi í landi Helgafells og lóðina hafi ég látið skrifa á nafn konu minnar. Á annars mjög kurteisri blaðakonunni sem í mig hringdi mátti greinilega heyra að henni var brugðið að fá þær fréttir að ég hefði aldrei þegið neina lóð í landi Helgafells og því síður að ég ætti lóð sem væri skrifuð á nafn konu minnar.

Nýlega hafði blaðið einnig af því spurnir að hljómsveitin Sigurrós spilaði ekki fyrir umhverfisníðinga eins og t.d. Karl Tómasson, forseta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar. Ágætis félagar mínir og nágrannar í Sigurrós kannast ekki við að hafa látið þessi ummæli falla. 

Í dag var frétt í blaðinu um að innan meirihlutans í Mosfellsbæ gætti óróleika og stafaði hann helst af miklum vandræðum mínum við að verja það fyrir baklandi mínu í VG að vera í stöðugum útistöðum við umhverfissinna. (Skrýtið hvað þetta orðalag, að vera í stöðugum útistöðum við umhverfissinna minnir mig á bloggdólg sem lét talsvert að sér kveða um allnokkurt skeið á heimasíðu Varmársamtakanna.) Einnig kom fram að Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi legði hart að mér að sprengja meirihlutann í Mosfellsbæ og mynda nýjan með Samfylkingu og Framsókn.

Hvaðan koma svona "áreiðanlegar" fréttir í DV???????

Þar sem ég hef ekki sóst eftir því að leiðrétta þessar fréttir í DV er nú upplagt að gera það á þessum ritvelli, hæg eru heimatökin. Svandís Svavarsdóttir er ekkert að skipta sér af bæjarmálum í Mosfellsbæ. Samstarfið gengur vel í meirihlutanum. Starf Vinstri grænna hefur aldrei verið blómlegra í Mosfellsbæ og fjölskylda mín leikur á allsoddi þrátt fyrir að eiga ekki lóð í landi Helgafells.

Kær kveðja frá Kalla Tomm. 


Bloggfærslur 23. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband