Minn saklausi leikur

Fyrir tæpum þremur vikum fór ég í smá leik við bloggvini mína og aðra góða gesti á minni síðu. Þátttakan í leiknum varð góð og myndaðist heilmikið fjör. Þetta er leikur sem ég reikna með að margir þekki og hafi farið í. Það er þó nokkuð ljóst að það þekkja hann eflaust fleirri í dag og er það bara gott. Þetta er nefnilega þegar upp er staðið bara svolítið skemmtilegur og fræðandi leikur.

Saklausi leikurinn minn er orðin að umræðuefni og virðist sem sumir bloggarar hafi látið hann fara í taugarnar á sér. Þeir sem agnúast hvað mest út í leikinn eru bloggarar sem vilja meina að þeir sem taki þátt í honum séu að því til að komast í eitthvað sem kallast heitar umræður á Mbl. Það segi ég og stend við, að þegar mér datt þessi leikur í hug og að skella honum að gamni á mína síðu var það svo víðs fjarri mér að það snérist um eitthvað sem heitir að komast í heitar umræður, enda er ég pollrólegur yfir slíkum umræðum, þær hafa oft á tíðum verið á lægra plani en saklaus og skemmtilegur spurningaleikur. Ég er þess einnig full viss að sá fjöldi fólks sem hefur tekið þátt í leiknum undanfarið er heldur ekki að spá í neitt slíkt.

Einfaldlega fólk sem var til í smá glens og gaman. Þetta þarf ekki alltaf að vera magnþrungið.

Ég tek áskorun og hugsa mér mann!!!!!!! 


Bloggfærslur 2. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband