Sjötug í sjöunda himni

Í Mosfellsbæ er byggð fremur lágreist enda hefur það verið markmið bæjaryfirvalda að halda henni þannig. Undir þessi sjónarmið tek ég og hef gert en ég hef heldur ekki farið leynt með þá skoðun mína að ég tel ekki rétt að útiloka glæsilegt háhýsi á vel völdum stað, enda skrifaði ég um þetta í leiðara Mosfellings fyrir nokkrum árum. Sá fjöldi af þriggja til fjögurra hæða blokkum, sem því miður virðist oft gleymast að huga nægjanlega vel að útliti, taka heilmikið pláss og hreinlega ræna einnig íbúum fjölda smærri bygginga mikilli útsýn.

Algengt er að sjá auglýstar íbúðir í fjölbýlishúsum fyrir 50 ára og eldri, ég get t.d. séð fyrir mér að sá aldurshópur gæti haft forgang með kaup á efri hæðum í slíku háhýsi. Auðvitað kunna all flestir að meta gott útsýni en ég held samt að það sé fyrst af einhverri alvöru þegar á efri ár er komið. Þá er meiri tími til þess að sitja út á svölum eða við stofu gluggann með kaffið og virða fyrir sér fallegu sveitina og nágrenni hennar. Svona bygging glæsilega hönnuð á allan hátt með góðri þjónustu á neðstu hæð er eitthvað sem ég get vel séð fyrir mér. Ég tel ekki rétt að það eigi einungis vera á færi þeirra allra efnuðustu að komast í slíkt hús á góðum stað eins og dæmin sanna t.d. í Reykjavík.

Hvað væri huggulegra en að sitja með gömlu sinni upp á sjöundu, fá sér púrtvín eða sherrý, virða fyrir sér víðáttuna og fara svo kl. 21 í hátíðarsalinn til að spila vist eða taka nokkur dansspor með gömlum sveitungum?


Bloggfærslur 18. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband