Maðkur í mysunni???

Þankagangurinn er mikill í öllum fjölmiðlum vegna Orkuveitumálsins og skoðanir hressilega skiptar um málið. Flestir eru á því að Svandís Svavarsdóttir hafi staðið sig frábærlega þegar málið kom upp og kemur það svo sem ekki á óvart, svo eldklár og skemmtileg sem hún nú er. Svandís er yfirburðarkona. 

Ég verð samt að viðurkenna þrátt fyrir að sú skoðun mín falli eflaust í grýttann jarðveg hjá mörgum félögum mínum að ég er ekki pollrólegur yfir stöðu mála.

Ég er logandi hræddur um maðkinn í mysunni. Framarapestin leggst illa í mig.


Varla hefur verið klappað í þetta skiptið

Það er ekkert sérstakt áhugamál hjá mér að fljúga. Ég er því yfirleitt fegnastur þegar vélin er lent og er einn af þeim sem klappa alltaf hraustlega. Mér finnst það skemmtilegur og góður siður. Oftar en ekki byrja ég fyrstur að klappa við mismikla hrifningu sessunauta minna. Ég reikna ekki með að hafa klappað fyrir þessari lendingu og þó. Sennilega hefði ég verið svo feginn þegar vélin var stopp.

 


Kalla Tomm leikurinn

Tók að gamni þátt í Kalla Tomm leiknum sem var síðast hjá Eddu (eddaagn.blog.is)  og auðvitað fer maður ekkert í svona alvöru spurningakeppnir með annað en sigur í huga. Ég skoraði reyndar á bloggsnillingin Jenný (jenfo.blog.is) að taka leikinn fyrir mig en svo virðist sem að hún hafi ekki séð póstinn frá mér. Því læt ég nú slag standa og skelli hér inn einum góðum.  

Þeir ættu að vita það félagar mínir úr Gildrunni að leikurinn sem við fórum svo oft í á ferðum okkar um land allt virkar vel á blogginu og heitir í höfuðið á trymblinum. 

Hver er maðurinn?


Bloggfærslur 14. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband