Líf í tuskunum

<object width="640" height="385"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/lxiVzIJu40c?fs=1&amp;hl=en_US"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/lxiVzIJu40c?fs=1&amp;hl=en_US" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="640" height="385"></embed></object>

Magnað, magnað, magnað!!!

<object width="480" height="385"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/47yxLg2RyXM?fs=1&amp;hl=en_US"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/47yxLg2RyXM?fs=1&amp;hl=en_US" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="480" height="385"></embed></object>

Óðinshani

odinshani

Óbreytt ástand

<object width="480" height="385"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/krK7Q49o6uA?fs=1&amp;hl=en_US"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/krK7Q49o6uA?fs=1&amp;hl=en_US" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="480" height="385"></embed></object>

Trommusettið mitt gamla og sögufræga

Fyrir margt löngu síðan, eða brátt 30 árum, keypti ég gamalt Rogers trommusett. Í þá daga var ég ekkert að spá í það hvaðan settið kom eða hver hefði átt það. Mér einfaldlega leist vel á gripinn og langaði að eignast hann.

Þetta gamla hljóðfæri hefur mér alltaf þótt afskaplega vænt um og aldrei látið mér detta í hug að selja, einhverra hluta vegna. Vimmi, fyrsti rótari Gildrunnar, hefur alltaf elskað þetta sett og geymt það fyrir mig og það sem meira er hann hefur haft það sem stofustáss á heimili sínu.

Nú hefur það komið á daginn að þetta er fyrsta sérinnflutta trommusett Péturs Östlund og Hljómanna. Já það kann að virka furðulegt að ég hafi ekki haft grun um fortíð trommusettsins en svona er það nú bara.

Allt upphófst þetta í síðustu viku er, Halldór Lárusson, ein mesta fróðleiksnáma um íslenska trommuleikara og trommur benti mér á að þarna ætti ég sennilega einstakan safngrip.

Ég hef nú bæði sett mig í samband við Gunnar Þórðar og Pétur Östlund og þeir ljómuðu báðir þegar ég sagði þeim frá gamla Rogers trommusettinu mínu, sem þeir eiga greinilega báðir gamlar og góðar minningar frá.

Hér að neðan má sjá mynd af Hljómunum og Pétri Östlund við settið.

Seinna mun ég setja inn mynd af því eftir að ég eignaðist það. Ég þarf að leita í gömlum möppum.

Einnig er hér að neðan slóð á Myndband með Pétri Östlund að spila með gömlum snillingi, einum af mörgum sem hann hefur spilað með.

Pétur Östlund

 

 

<object width="480" height="385"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/Bum3aqkf9yo?fs=1&amp;amp;hl=en_US"></param><paramname="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/Bum3aqkf9yo?fs=1&amp;amp;hl=en_US" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="480" height="385"></embed></object>


1

Rjúpa

Gildran í Rokklandi

Rokkland

Við félagarnir vorum í skemmtilegum Rokklandsþætti hjá Óla Palla á sunnudaginn var. Þar flutti hann alla plötuna okkar sem við hljóðrituðum í Mosó í vor og spjallaði við okkur á milli laga.

Þátturinn verður endurfluttur í kvöld, þriðjudag 21. sept kl: 22:00 á Rás 2.

Hér að neðan er slóðin á þáttinn. 

http://dagskra.ruv.is/ras2/4558231/2010/09/19/


Meistari

Það er alltaf jafn gaman að hlýða á þennan gamla meistara.

<object width="480" height="385"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/zR8l0koXCcM?fs=1&amp;hl=en_US"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/zR8l0koXCcM?fs=1&amp;hl=en_US" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="480" height="385"></embed></object>


Sjáumst í dalnum fallega

Reykjó

Dýrðlegt er í Dalnum

Reykjó

 

Dalurinn hefur alla tíð verið mér hugleikinn og ekki síst það góða fólk og vinir mínir sem þar búa.

Þegar ég kynntist Línu minni fyrir margt löngu síðan, bráðum 30 árum, sagði hún mér margar sögur frá afa bústað í Mosfellsdalnum. Þaðan átti hún margar ógleymanlegar stundir. Afabústaður, svokallaður, og landið í kringum hann, var innarlega í Dalnum, mótsvið núverandi Skógræktarstöðina Grásteina. Þar ræktuðu afi og amma Línu upp stóra jörð sem glöggt má sjá í dag.  

Það eru ekki nema 20 ár síðan Lína fór með mér á þessar gömlu slóðir og sýndi mér bústað afa síns og ömmu og Bolla móðurbróður hennar sem stendur þar enn. Það var ógleymanleg heimsókn. Þar sáum við þrátt fyrir mörg ár í eyði, ótal margar gamlar menjar sem þau höfðu skilið eftir sig. 

Eitt frægasta ljóð Óskars Þ. G. Eiríkssonar er án vafa, Dýrðlegt er í Dalnum. Óskar Þ. G. dvaldi löngum stundum Mosfellsdalnum og samdi þar sín frægustu ljóð.

Sjáumst næst í okkar óborganlega Dal á styrktartónleikum fyrir skjólstæðinga Reykjadals.

Hér kemur ljóðið hans Óskars.

Dýrðlegt er í Dalnum

  Mosfellsdalur 

Dýrðlegt er í Dalnum,

umvöfnum fjallasalnum,

Þar eru: Rósabændur og söngfuglar,

grautvíxlaðir graðfolar,

yxna kýr og ofvitar,

nóbelsskáld og gullmolar,

frekjusvín og drykkjusvolar,

ljóðskáld og þurfalingar,

hestamenn og monthanar,

þingmenn og snillingar,

listamenn og letingjar,

klerkur, kirkja,

ég er hættur að yrkja.  

Óskar Þ.G. Eiríksson

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband