Komin með hatt

Esjan

Þá er hún komin með hattinn sinn og tilbúin í hvað sem er. Þessi mynd var tekin kl 7:45 úr Leirvogstungu. Esjan er mörgum hugleikin og í einum texta Gildrunnar, í lagi sem reyndar heitir Vorbragur, segir:

Situr bakvið sundin

Esjan undurfríða

léttist aftur lundin

dýrðar dagar líða

Esja

Þessi mynd er einnig tekin að hausti og úr Leirvogstungu, Esjan er alltaf falleg og aldrei eins.


Sorasíðu lokað

Eins og bloggið er oft skemmtilegt og gott, þá finnast því miður á því, síður aumingja og hugleysingja sem skeiða fram á ritvöllinn í skjóli nafnleyndar, oftar en ekki til þess eins að reyna að koma höggi á einstaklinga og manneskjur á sorglegan og aumkunarverðan hátt.

Sem betur fer er slíkum síðum oft lokað en því miður getur það oft tekið langan tíma og meiðyrðin og ófögnuðurinn hefur oft fengið að standa svo vikum og jafnvel mánuðum skiptir áður en gripið er í taumana.

Nokkuð oft hef ég skrifað á mínu bloggi um eina slíka síðu sem hefur nú í tæp tvö ár verið haldið úti til þess eins að reyna að koma höggi á mína persónu og mín störf. Síðu sem oftast hefur gengið undir nafninu Varmársamtaka Valdi. 

Lengst af virtist sem þessi síða væri eini málssvari Varmársamtakanna, í það minnsta, tjáði stjórnarfólk þeirra sig jafnvel oftar þar en á sjálfri heimasíðu samtakanna, ýmist undir fullu nafni eða ekki. Lengi vel var þessi síða einnig fyrsti linkur á heimasíðu Varmársamtakanna.

Um leið og ég fagna því að þessari sora og aumingjasíðu hafi verið lokað, þá eru það jafnframt ótrúleg vonbrigði að fólk sem hefur talað hvað hæst um málefnalega og lýðræðislega umræðu og vill láta taka sig trúanlegt og alvarlega hafi látið hafa sig út í það að leggja nafn sitt við slíkan aumingjaskap og taka þátt í slíkum skrifum og einelti.

Allt saman fullorðið fólk.

Eitt er að skrifa undir nafnleynd og halda úti þesskonar bloggsíðu, annað er að gera það í þeim eina tilgangi að vega látlaust, jafnvel að einu og sömu manneskjunni. Allt til þess eins að vega að heiðri hennar og æru. Það er furðulegt áhugamál og í raun óskiljanleg þráhyggja.

Nú hefur umræddri síðu verið lokað eins og áður segir og það vita allir, að mikið þarf að ganga á til að gripið sé til slíkra ráðstafanna.

Að baki þurfa að liggja mjög alvarleg brot.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm. 

  


Frumkvöðlastarf í Mosfellsbæ

Krika 4

Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri, Karl Tómasson, forseti bæjarstjórnar og Herdís Sigurjónsdóttir, formaður fræðslunefndar að lokinni fyrstu skóflustungu væntanlegs Krikaskóla.

Krika 6

Börn og væntanlegir nemendur í Krikaskóla tóku einnig skóflustungur og á þessari mynd má sjá Björn Þráinn Þórðarson framkvæmdastjóra fræðslu- og menningarsviðs aðstoða unga stúlku.

Fyrsta skóflustungan að nýjum og byltingakenndum skóla, Krikaskóla í Mosfellsbæ, var tekin í dag, fimmtudag. Stefnt er að því að hann hefji göngu sína í nýju húsnæði haustið 2009. Skólinn tók til starfa í tímabundnu húsnæði í sumar og tóku börnin sjálf, sem ganga í Krikaskóla, fyrstu skóflustunguna ásamt Haraldi Sverrissyni bæjarstjóra, Karli Tómassyni forseta bæjarstjórnar og Herdísi Sigurjónsdóttur formanni fræðslunefndar.

Krika 2

Þrúður Hjelm, skólastjóri Krikaskóla í sjónvarpsviðtali.

Krikaskóli er frábrugðinn öllum öðrum skólum á Íslandi að því leyti að í honum verður boðið upp á nám fyrir eins til níu ára gömul börn. Skóladagurinn verður miðað við það sem þekkist í leikskólum því boðið verður upp á samfelldan skóladag frá hálf átta til rúmlega fimm.  Stefnt er að því að hægt verði að veita slíka þjónustu allt árið um kring fyrir öll börnin. Nánar má lesa um Krikaskóla á mos.is

Krika 5

Sigríður Dögg, kynningarfulltrúi Mosfellsbæjar, Ragnheiður Ríkharðsdóttir fyrrverandi bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Jóhanna B. Hansen bæjarverkfræðingur Mosfellsbæjar og Herdís Sigurjónsdóttir, formaður bæjarráðs- og fræðslunefndar Mosfellsbæjar að lokinni fyrstu skóflusungu væntanlegs Krikaskóla.


Alltaf skemmtilegur og mikill ljúflingur

Talandi um góða söngvara eins og ég gerði í færslunni hér fyrir neðan.

Það var gaman að horfa á viðtal sjónvarpsmannsins vinsæla, Jóns Ársæls, við Eirík Hauksson söngvara.

Leiðir okkar Gildrufélaga og Eika lágu saman árið 1980, þá var hann í Start og við félagarnir í hljómsveit sem við kölluðum á þeim tíma Pass. Skömmu síðar breyttum við nafninu í Gildran. Hljómsveitirnar tóku sig saman og auglýstu stórdansleik um verslunarmannahelgina í Félagsgarði í Kjós.

Til að gera langa sögu stutta, þá mislukkaðist þetta ævintýri okkar algerlega. Það komu bókstaflega engir til að hlýða á okkur og varð stórtap á þessu ævintýri okkar. Vissulega vorum við allir miður okkar en þetta gerði það að verkum að við félagarnir áttum saman næturlangt spjall. Við spjölluðum um lífið og tilveruna. Þetta var góð og ógleymanleg stund og tengdumst við þá böndum og vináttu, sem allt frá þeirri helgi hefur verið órjúfanleg.

Síðan þá höfum við allir félagarnir í Gildrunni og Start margsinnis ruglað okkar reitum saman og spilað saman við hin ýmsu tækifæri, stór og smá. Dabbi Karls trommari, Sigurgeir Sigmunds gítarleikari, Jonni Ólafs bassaleikari, Nikki Róberts hljómborðsleikari, Eiki Hauks söngvari og Pétur Kristjánsson söngvari, skipuðu hljómsveitina Start á þessum tíma. 

Start og Gildran 1010

Start og Gildran.

Efri röð frá vinstri: Sigurgeir Sigmunds, Kristján Edelstein, Pétur Kristjáns,  Nikki Róberts,  Dabbi Karls og Eiki Hauks. Neðri röð frá vinstri: Billi Start, Frikki Hall, Kalli Tomm, Biggi Haralds og Jonni Ólafs.

Sigurgeir gekk síðar til liðs við Gildruna og Jonni Ólafs bassaleikari spilaði með okkur Bigga í tæp tvö ár í 66 og inn á eina plötu. Billi Start varð einn af okkur Gildrumönnum og þvældist með okkur um land allt í áraraðir. Pétur, heitinn, Kristjáns og Eiríkur tróðu upp með okkur Gildrufélögum í hálft ár á Hótel Íslandi á mörgum frábærum tónleikum og Eiríkur Spilaði og söng með okkur félögunum í Gildrunni og Gildrumezz nokkra ógleymanlega tónleika. Meðal annars á fjölmennasta dansleik sem haldin hefur verið í Mosfellsbæ. Þá var reyst við Álafoss föt bezt risatjald og haldnir tónleikar og dansleikur sem eru mörgum enn í góðu minni.

Eiríkur, eins og allir vita sem þekkja hann, er mikill öðlings drengur, hann hefur náð hæstu hæðum hérlendis og í Noregi og sá frami stafar ekki einungis af frábærri söngrödd hans heldur örugglega ekki síður af þeirri manneskju sem hann hefur að geima.

Eiríkur gantaðist með það í þættinum hjá Jóni Ársæls að hann syngi í mónó í dag eftir erfiða sjúkdómsbaráttu sína. Ég hafði sérstaklega gaman að því að heyra hann segja þetta því við göntuðumst oft með það ég og Eiki þegar við spiluðum og sungum saman að við værum í stereó þegar við værum saman komnir tveir. Báðir vinirnir búnir að ganga í gegnum sömu baráttu. 

Gildrumezz

Myndin er tekin rétt áður en við fórum á svið til að spila á stórkostlegum og yfirpökkuðum tónleikum á Akureyri. Gildran ásamt Eiríki Haukssyni.


Þegar kallinn tók bókstaflega alla í nefið

Mikið er leiðinlegt að heyra af þessum vandræðum George Michael með eiturlyfin. Það er eins og mig minni að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem hann er gripinn blessaður.

Ég sá hina frægu tribute tónleika Freddie Mercury árið 1992, þá bókstaflega tók George Michael alla söngvara sem þar tróðu upp og aðra sem tróðu ekki þar upp bókstaflega í nefið.

Mín tilfinning er sú að þessir tónleikar hafi gert það að verkum að fjöldin allur af fólki, hafi þá fyrst áttað sig á, hverslaga yfirburða söngvari maðurinn er.


Fyrst allra bæjarfélaga til að skrifa undir Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum

Eins og fram kemur í færslu minni hér að neðan var haldið jafnréttisþing á vegum fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar í Hlégarði 18. og 19. september. Mikill og góður rómur var gerður af þinginu og þótti vel af því staðið.

Á seinni degi þingsins undirritaði Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar undir Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og héröðum. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti sáttmálann þann 10. september s.l. og var Mosfellsbær þar með fyrst allra sveitarfélaga til að gera það.

Jafnrétti

Á myndinni eru: Haraldur Sverrisson bæjarstjóri, Unnur V. Ingólfsdóttir framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs, Jóhanna B. Magnúsdóttir, formaður fjölskyldunefndar, Karl Tómasson forseti bæjarstjórnar og Anna Guðrún Björnsdóttir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. 


Landssöfnunin nær hápunkti í kvöld

 

Mænuskaði

Mig langar að minna á Landssöfnun stofnunarinnar sem er þegar hafinn og nær hápunkti þann 19. September með söfnun í opinni dagskrá Stöðvar 2.

Það er mikil þörf á stofnun sem þessari og í raun með ólíkindum að hún hafi verið stofnuð fyrir tilstuðlan einstaklinga, í fararbroddi þeirra mæðgna Auðar Guðjónsdóttir og Hrafnhildar G. Thoroddsen.

Þær mæðgur hafa unnið ómetanlegt starf fyrir frekar daufum eyrum Þetta gerðist á ósköp venjulegum degi!stjórnvalda hingað til, en einstaklingar og fyrirtæki hafa eitthvað tekið við sér. Starf þeirra mæðgna hefur vakið athygli á alþjóðavísu og í raun meiri en á Íslandi.

Mænuskaðastofnun Íslands er stofnuð af háleitri hugsjón.
Vonandi mun framlag íslensku þjóðarinnar til alþjóðlegrar mænuskaðabaráttu
skila árangri um ókomna framtíð.

(fengið að láni af heimasíðunni www.isci.is

 


Verndari stofnunarinnar er frú Vigdís Finnbogadóttir.

Styrktarreikningur Mænuskaðastofnunar er

311 - 26 - 81030 Kennitala 411007-1030 

" Það getur haft stórkostlega þýðingu fyrir heimsbyggðina að vel menntuð og vel efnum búin þjóð tali máli mænuskaðans við þjóðir heimsins og beiti pólitískum áhrifum sínum til framfara á þessu sviði læknavísindanna "
- frú Vigdís Finnbogadóttir - forseti Íslands 1980 - 1996 


Moggabloggið, fjandi menningarlífsins?

Upp kom nýlega sérstakt mál á Moggablogginu. Lokað var fyrir þann möguleika hjá ötulum bloggara, Helgu Guðrúnu Eiríksdóttur, (blekpenni.blog.is) að geta bloggað við fréttir. Ekki stóð á viðbrögðum félaga hennar úr bloggheimum að lýsa yfir furðu sinni á þessum gjörningi ritstjórnar Moggabloggsins.

Á annað hundrað manns hafa tjáð sig um málið og virðist sem yfirgnæfandi meirihluti eigi ekki til orð yfir þessari ákvörðun.

Árni Matthíasson ritstjóri Moggabloggs sendi Helgu skeyti þar sem fram kemur ástæða lokunarinnar og má sjá hana á síðu Helgu.

Þessi skrif ryfjuðu upp fyrir mér mál sem tengist mér persónulega og skrifum Árna Matt. Þannig var að Árni Matthíasson var eitt sinn ræðumaður á baráttutónleikum sem haldnir voru í Reykjavík þar sem verið var að mótmæla vegi sem átti reyndar að leggja í Mosfellsbæ.

Á þessum tónleikum var ein af uppáhaldshljómsveitum Árna, Sigurrós, aðalnúmerið en hljómsveitin Sigurrós kom talsvert við sögu í lokunarumræðunni hjá Helgu Guðrúnu.

Árni sagði á þessum tónleikum m.a. í ræðu sinni orðrétt.

"Það er svo gráglettni örlaganna að Gildrumaðurinn Karl Tómasson sé einn helsti fjandi menningarlífsins í kvosinni, nú orðinn forseti bæjarstjórnar".

Árni bætti svo um betur og skrifaði þessi ummæli sín einnig á bloggið sitt.

 

Ég vellti því nú fyrir mér hvort er saknæmara eða á lægra plani, að kalla mann fjanda menningarlífs í bæjarfélagi sínu eins og Árni Matt gerði, eða blogga við óviðeigandi frétt.

Um það snýst þessi færsla mín í raun. 

Ég hef aldrei átt í útistöðum við Árna Matt, kvorki fyrr né síðar, öðru nær. Árni féll hinsvegar, á þessum tónleikum og á bloggi sínu, í þá gildru eins og svo margir aðrir á sínum tíma, að taka afstöðu í máli sem hann þekkti greinilega lítið til, ef nokkuð, ef marka má skrif hans.

Að taka afstöðu til mála eða mynda sér skoðun án þekkingar og skeyða fram á ritvöllinn með hástemdar yfirlýsingar og niðrandi skrif er alltaf slæmt. Ekki bætir það heldur úr skák ef slík afstaða er einungis tekin, jafnvel vegna afstöðu stórstjarna eða þátttöku þeirra í baráttunni.

Slíkt er á góðri íslenskri tungu kallað snobb.

Það er engan vegin sæmandi ritstjóra Moggabloggsins.


Jafnréttisþing í Mosfellsbæ

Helga á Blikastöðum

Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar stendur fyrir jafnréttisþingi sem haldið verður í Hlégarði í Mosfellsbæ fimmtudaginn 18. september 2008. Þingið er haldið til heiðurs Helgu J. Magnúsdóttur í samvinnu við Kvenfélagasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands.

Helga J Magnúsdóttir fæddist 18. september 1906, en bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt að fæðingardagur hennar verði árlegur jafnréttisdagur í bæjarfélaginu. Á þessu ári eru 50 ár síðan Helga settist fyrst kvenna í stól oddvita í Mosfellsbæ. Hún lét meðal annars málefni kvenna sig varða, var formaður Kvenfélagasambands Gullbringu- og Kjósarsýslu 1948-1966, formaður Kvenfélags Lágafellssóknar 1951-1964, í varastjórn Kvenfélagasambands Íslands 1953 síðan í aðalstjórn þess og formaður 1963-1977.

Um þetta má lesa nánar á mos.is 

 

  

 


Mænan er ráðgáta

Mænuskaðastofnun Íslands

 

Mænuskaði

Mig langar að minna á Landssöfnun stofnunarinnar sem er þegar hafinn og nær hápunkti þann 19. September með söfnun í opinni dagskrá Stöðvar 2.

Það er mikil þörf á stofnun sem þessari og í raun með ólíkindum að hún hafi verið stofnuð fyrir tilstuðlan einstaklinga, í fararbroddi þeirra mæðgna Auðar Guðjónsdóttir og Hrafnhildar G. Thoroddsen.

Þær mæðgur hafa unnið ómetanlegt starf fyrir frekar daufum eyrum Þetta gerðist á ósköp venjulegum degi!stjórnvalda hingað til, en einstaklingar og fyrirtæki hafa eitthvað tekið við sér. Starf þeirra mæðgna hefur vakið athygli á alþjóðavísu og í raun meiri en á Íslandi.

Mænuskaðastofnun Íslands er stofnuð af háleitri hugsjón.
Vonandi mun framlag íslensku þjóðarinnar til alþjóðlegrar mænuskaðabaráttu
skila árangri um ókomna framtíð.

(fengið að láni af heimasíðunni www.isci.is

 


Verndari stofnunarinnar er frú Vigdís Finnbogadóttir.

Styrktarreikningur Mænuskaðastofnunar er

311 - 26 - 81030 Kennitala 411007-1030 

" Það getur haft stórkostlega þýðingu fyrir heimsbyggðina að vel menntuð og vel efnum búin þjóð tali máli mænuskaðans við þjóðir heimsins og beiti pólitískum áhrifum sínum til framfara á þessu sviði læknavísindanna "
- frú Vigdís Finnbogadóttir - forseti Íslands 1980 - 1996 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband