Maður náði þeim ekki í fyrstu tilraun

Það verð ég að viðurkenna að það tók mig nokkurn tíma að átta mig á pælingum þeirra Shulman bræðra en það kom að því að ég naut þess að hlusta á þá.

Það er óhætt að segja að þeir hafi ekki farið troðnar slóðir þegar þeir voru upp á sitt besta en mikið skrambi gerðu þeir margt sniðugt og gott. Allir áttu þeir það einnig sameiginlegt að vera stórgóðir hljóðfæraleikarar og söngvarar.

Hvernig kunnið þið við Gentle Giant?

 


Ride cymbal

Góður vinur minn og fyrrverandi samstarfsfélagi Jón Ólafsson, best þekktur sem bassaleikari Pelican dásamaði alltaf ride cimbal, rétt eins og ég dásamaði góðann bassaleik. Jón sagði ride cymbalinn stórkostlega vanmetið hljóðfæri. Mér eru þessi orð Jonna alltaf jafn minnisstæð.

Hljóðfærið var vissulega alltaf í uppáhaldi hjá mér og notaði ég ride cymbal talsvert í mínum trommuleik en í raun eins og gengur með aðra sjálfsagða hluti spáði ég ekkert sérstaklega í hann. Hann var alltaf til staðar og partur af trommusetti, með öðrum orðum sjálfsagður hlutur og partur af því.

Pælingar Jonna hafa samt gert það að verkum að ég hef veitt þessu hljóðfæri æ meiri athygli þegar ég hlusta á trommuleik.

Ég set hér inn af því tilefni lag sem er hreint meistaraverk og glöggt má heira í því hvað ride cymballinn spilar mikla rullu og hlustiði nú.

 


Fagurt bloggljóð er fætt

Ekki stóð á viðbrögðum ágætra bloggvina minna og félaga að setja saman fallegt ljóð, bloggljóð.

Ljóðið hef ég ákveðið að kalla Bloggstrauma og má sjá í færslunni hér að neðan hvernig það varð til og hverjir eru höfundar þess. Hér kemur ljóðið fagra.

 

 

Bloggstraumar

 

Dagurinn var góður, geislandi og fagur.

Golan strauk mér blítt sem móðurhönd.

Söngur fyllti bæinn, bjartur gleðibragur.

Bláminn ríkti tær við sjónarrönd.

 

 

En héðan og út í heiminn

skal halda og beisla andann.

Mikið andskoti er ég gleyminn-

er ég búinn með landann?


Þetta verður fallegt ljóð kæru bloggarar

Nú semjum við saman fallegt ljóð bloggarar, landsins alþýðuljóð. Fyrsta línan er fædd í athugasemdinni hér að neðan og áður en við vitum af er fallegt bloggaraljóð orðið staðreynd.

Takið'i meyjan hrein

Á fyrstu hljómplötu Gildrunnar var lag sem af mörgum er talið eitt af okkar bestu lögum. Lag sem við komumst aldrei upp með að spila ekki þegar við komum fram.

Mærin er eitt af þessum lögum sem hafa fylgt okkur alla tíð. Textann við lagið samdi hirðskáld okkar á þeim tíma, Þórir Kristinsson og er þessi texti klárlega eitt af hans meistaraverkum.  

Flestir stóðu í þeirri meiningu að við værum að syngja um hreinar meyjar þar sem textinn hefst á orðunum meyjan hrein en við vorum vissulega að syngja og flytja lag um mærina einu og sönnu.

Oft munum við félagarnir eftir því á tónleikum að hafa heyrt öskrað utan úr sal: "Takið'i meyjan hrein". 

Lagið hef ég nú sett í spilarann hjá mér og njótið vel.    

 

 

Mærin 

Meyjan hrein

Sér þú til mín

Alltaf ein

Bænin ein

Ber mig til þín

Meyjan hrein

Faðir vor

Sér þú til mín

Engin orð

Himna storð

Tak mig til þín

Faðir vor

Bregður birtu

Mærin sofnar

Dofnar dagur burtu

Daufri varpar glóð

Kristur kær

Kom þú til mín

Himni nær

Hatri fjær

Tak mig til þín

Kristur kær.


Þegar ég vann hjá Hafskip

HjaltiMegas 10Árið 1980 var ég starfsmaður hjá Hafskip, þá 16 ára gamall. Ég var á kajanum og starf mitt var að mestu fólgið í því að afferma og ferma fraktskipin. Mér er þessi tími sérstaklega minnisstæður fyrir margar sakir. Ég vann með Megasi og Hjalta Úrsus, báðir einstakir menn, góðir og skemmtilegir.

Þegar við tæmdum gáma með áfengi og tóbaki sá Megas m.a. um að allt færi rétt fram svo ekki yrðu óvænt afföll á góssinu öllu. Það var nefnilega nokkuð algengt að slíkt gerðist þegar gámar með slíkum varningi voru tæmdir. Ein og ein flaska átti það til að hverfa og einnig tóbakskarton af öllu tagi. Það gerðist ekki þegar Megas stóð vaktina, þá voru örryggiskröfur miklar.

Öryggiskröfur voru hins vegar ekki miklar þegar við kajastrákarnir vorum látnir hanga í krókum krananna á milli gáma til að spara tíma við að hengja á þá eða losa. Þegar ég hugsa um það í dag, þegar okkur var sveiflað í margra metra hæð fram og til baka allan liðlangan daginn fæ ég bókstaflega hroll. Þvílíkt brjálæði. 

John_Lennon 10Annað er mér einnig og ekki síst minnisstætt frá þessum tíma. Einu sinni vorum við strákarnir í kaffitíma í gömlu Wolksvagen Rúgbrauði að gæða okkur á nestinu okkar og hlustuðum einu sinni sem oftar á fréttirnar. Þá kom frétt í útvarpinu sem gerði það að verkum að á okkur sló þögn sem var engu lík og engin okkar gleymir nokkru sinni.

Fréttamaðurinn sagði, "Í nótt var Bítillinn John Lennon myrtur, hann var skotinn fyrir utan heimi sitt í Bandaríkjunum". 

Síðan eru liðin rúm 28 ár. Já, hann líður tíminn.


Ólympíugullið kom og það fékk Mosfellingur

Ól 3

Í sigurvímu, þrátt fyrir að úrslit lægju ekki fyrir.

Ól 18

Allt lagt í sölurnar og smá tognun á vinstri ökla olli áhyggjum en kom ekki að sök.

Ól 19 +

Óli sýndi alla sína bestu takta og tók boltaræknina með tilþrifum.

Ól 10

Oddný á harðahlaupum og takið eftir baráttuandanum í Magga Byron í humátt á eftir.

Ól 4

Lokaspretturinn og sigurinn í höfn og takið eftir Magga Byron, þetta er baráttuandi.

Ól 11

Allt lagt í sölurnar og sveiflan óaðfinnanleg hjá Magga Byron.

Ól 14

Hilmar á skeiðklukkunni að tékka á stöðunni. Oddný notaði tækifærið og lagaði eyrnalokkinn.

Ól 1

Allar þrjár steinlágu ofan í og það með extra stæl í lokin.

 

Ól 2

Ólympíumeistarar: Oddný, Óli Karls, grét fögrum tárum, Hilmar Gunnars,

Maggi Byron og Kalli Tomm.

Ég get ekki látið staðar numið við skrif um bæjarhátíðina okkar öðru vísi en að minnast á langþráð ólympíugull. Viti menn það kom, það kom í Mosfellsbæinn og um það sá Mosfellingur.

Á Ólympíuleikum fyrirtækja á bæjarhátíðinni gerði hið blómlega bæjarblað, Mosfellingur, sér lítið fyrir og krækti í gullið, langþráð gullið. Menn voru eitthvað að bera það fyrir sig að það hefði verið aðal markmiðið að ná í silfrið.

Við hlustuðum ekkert á það, enda tóm afsökun og vitleysa, auðvitað vildu þau öll fá gullið.


Líf og fjör í Mosó

Tónleikar

Tónleikar 1

 

Þúsundir Mosfellinga létu ekki dæmalausa rigningu meira og minna alla helgina aftra sér frá því að taka þátt í bæjarhátíðinni okkar, Í túninu heima

Fjöldi fólks tók þátt í hinum ýmsu viðburðum og á stórtónleika á nýja torginu okkar mættu, að talið er um þrjúþúsund manns. Loksins alvöru torg, loksins alvöru aðstaða, loksins alvöru svið, loksins alvöru ljós og loksins alvöru hljómburður.

Það ríkir góður andi yfir bæjarbúum, það sá ég bæði og heyrði ótal sinnum á bæjarhátíðinni og mikið var það gaman.

Það er líf og fjör í Mosó. 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband