Þetta er nú eitthvað annað en stanslausa stressið og geðveikin í bænum

Fyrir nokkrum árum síðan vorum við félagarnir á ferð um landið að skemmta. Eins og gengur og gerist var heilmikið spjallað í rútunni og oft hlegið mikið. Eitt að því sem við ræddum einu sinni var hversu algengt að talað væri um stressið og lætin í bænum víða út um land. Þar sem við vorum nú hálfgerðir sveitalubbar úr Mosó vorum við að nokkru leyti sammála en samt ekki því við fundum hjá landsbyggðarfólki að við vorum farnir að tilheyra stresshópnum þegar við vorum komnir í c.a. 300 km fjarlægð frá Mosfellsbæ. Sem sagt orðnir Reykvíkingar í þeirra huga. Við það vorum við auðvitað ekkert sáttir.

Í einni ferð okkar var ákveðið að láta á þetta reyna og fá það í eitt skipti fyrir öll á hreint hvort þetta væri staðreynd. Við ákváðum að gera það þannig að spyrja vertann á staðnum sem við vorum að fara að spila hjá sem að þessu sinni var á Siglufirði hvernig væri að búa á Siglufirði. Ég fékk þetta erfiða hlutskipti að varpa spurningunni fram, logandi hræddur um að fara að hlæja.

Þegar við komum tók Valbjörn eins og ávallt á móti okkur eins og höfðingi og bauð okkur öllum kaffi og meððððí. Þá var komið að því hjá mér. Ég sagði eftir smá spjall grafalvarlegur "segðu mér Valbjörn hvernig er að búa á Siglufirði"?

Það kom smá þögn og svo stóð Valbjörn upp og sagði með miklum tilþrifum. "Það get ég sagt ykkur strákar mínir, þetta er nú eitthvað annað en stanslausa stressið og geðveikin í bænum"

Við félagarnir drápumst allir úr hlátri og stukkum upp frá borðinu eins og bjánar. Valbjörn hefur sennilega aldrei fengið botn í hvað gekk á.

Valbjörn minn ef þú lest þetta, þá veist þú það núna.

Um þessa uppákomu varð síðar til lag sem hægt er að finna á seinni geisladisk 66. Lagið heitir að sjálfsögðu, Þetta er nú eitthvað annað en stanslausa stressið og geðveikin í bænum

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm. 


Já!!!

Mögnuð var hljómsveitin en um trymbilinn John heitinn Bonham eru vart til lýsingarorð.

Ég læt í tilefni fréttana eitt af meistaraverkunum fljóta hér.

 

 


mbl.is Led Zeppelin kemur fram á tónleikum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Mosfellsbær fallegur?

Ég fór í smá bíltúr í gær og kíkti m.a. á nýju hverfin sem eru að rísa í Mosó. Þar sem ég dólaði niður eina götuna vatt sér að mér hressilegur maður með hamar í hendi. Ég þekkti mannin ekki en svo virtist sem að hann vissi hver ég væri. 

Hann hóf að spyrja mig ýmissa spurninga um framkvæmdir á vegum bæjarins og ég reyndi auðvitað eftir bestu samvisku að svara þeim, enda maðurinn vopnaður hamri.

Eftir þó nokkuð spjall spyr hann mig hvort mér finnist Mosfellsbær fallegur. Ég viðurkenni að á mig kom smá hik, því spurningin kom eins og þruma úr heiðskýru lofti. Þá sagði hann strax, "já!!! þú ert ekki viss" Jú jú sagði ég auðvitað er Mosfellsbær fallegur og þarna stóðum við í miðju spýtnabrakinu og moldarhrúgunum. Ég bætti svo við að auðvitað væri svolítið rask á meðan þessi hverfi væru að byggjast upp en vissulega væri Mosfellsbær fallegt bæjarstæði.

Ég spurði hann þá sömu spurningar, hvað honum findist. "Nei!!! mér hefur aldrei fundist Mosfellsbær fallegur" Auðvitað varð ég gamli sveitalubbinn sár án þess að láta á því bera og sagði við hann þegar ég var að setjast inn í bíl, þetta er fallegt hús. "Já þakka þér fyrir, við gerum ráð fyrir að geta flutt inn fyrir jól"


Það er ekkert sem réttlætir lítilsvirðingu og dónaskap

Öll höfum við okkar skoðanir og tjáningarfrelsi, sem betur fer. Þær eru einnig misjafnar rétt eins og við erum mörg. Oft þurfum við að taka ákvarðanir sem okkur finnst erfiðar. Jafnvel að taka ákvörðun um eitthvað þar sem allir kostir eru slæmir en ákvörðunina verður að taka. Þá hlýtur það að segja sig sjálft að við reynum að velja skásta kostinn að okkar mati.

Í Mosfellsbæ var fyrir rúmum tuttugu árum ákveðið að nýtt hverfi, svokallað Helgafellshverfi, myndi rísa. Strax í upphafi var ráðgert hvar vegur inn í það hverfi ætti að liggja. Umtalaður vegur hefur verið mikið í fjölmiðlum undanfarið ár. Þegar að því var komið að hefja framkvæmdir risu upp mótmæli vegna legu vegarinns. Helstu gagnrýnendur voru nýstofnuð samtök, Varmársamtökin.

Í fyrstu voru athugasemdir samtakanna málefnalegar en á ótrúlega skömmum tíma breyttist það. Samtökin gerðust pólitísk og töluðu máli eins flokks. Samtökin gerðu einnig látlausar athugasemdir við vinnubrögð bæjaryfirvalda og það sem verst var, persónugerðu atlögurnar í tíma og ótíma. All flestum er þessi saga kunn og ætla ég ekki að fara nánar út í hana.

Nú liggja fyrir nýjar niðurstöður helstu og færustu sérfræðinga m.a. frá Umhverfisstofnun um það að fyrirhugaður vegur sé besta leiðin fyrir náttúruna, umhverfið og Mosfellinga flesta þrátt fyrir að hverfið sé nú mun stærra en ráð var fyrir gert í upphafi. Varmársamtökin hafa látið þær rannsóknir sem vind um eyru þjóta og halda samt sem áður áfram, oft á tíðum með ómálefnanlegri umræðu, í krafti t.d. auðvelds aðgangs að fjölmiðlum.

Það er ábyrgðarhlutur að halda úti heimasíðu og flestir sem standa í slíku vanda sig í þeim efnum. Varmársamtökin benda á sem annan link á sinni heimasíðu, á eftir Landvernd, einhverja síðu sem gerð er út af manneskju sem ekki er til. Sá hinn sami er kallaður Valdi Sturlaugz (Varmársamtaka-Valdi). Á þessari síðu er einhverra hluta vegna aðal umræðuefnið gamalkunnugt af síðu Varmársamtakanna. Það er að níðast á persónum með lítilsvirðingu og dónaskap sem Varmársamtökunum eru ekki hliðhollar eða ekki á sömu skoðun og þau. 

Alvarlegast er þó þegar farið er að tala um geðfötlun fólks án þess að nokkur fótur sé fyrir henni eins og gert hefur verið ítrekað á umræddri síðu. Að segja fólk geðfatlað, hvort sem er til að leggja áherslu á orð sín eða í einhversskonar tvískinnungi er engri manneskju eða samtökum samboðið.

Það er heldur ekki samboðið samtökum sem vilja láta taka sig trúanleg að benda á síðu sem inniheldur slíkan málflutning. Það eykur ekki vegsemd þeirra eða virðingu.

Karl Tómasson.


Hér kemur sólin

Nú Þegar skyggja tekur og kólna fer er fátt betra en að hugsa til þess og átta sig á því að allt lífið er framundan. Blómin, flugurnar, fuglarnir og Something sem við vitum ekki.

 


Mosfellingur

Mosfellingur 11.tblFyrir 5 árum síðan datt mér í hug að stofna bæjarblað. Blaðið fékk nafnið Mosfellingur. Allt frá fyrsta degi hefur blaðið vaxið og dafnað og virðist nú sem það hafi öðlast ákveðinn sess í hugum Mosfellinga. Fyrstu þrjú árin gengdi ég ritstjórastarfi hjá blaðinu en nú síðustu tvö árin hefur vinur minn Hilmar Gunnarsson gengt því starfi.

Til að gera langa sögu stutta þá tel ég að Hilmari hafi tekist að gera Mosfelling að einu fallegasta og besta bæjarblaði landsins. Það er gefandi og skemmtilegt starf að halda úti bæjarblaði, í slíku starfi er maður með púlsinn á bæjarbragnum. Ég set hér í tilefni dagsins inn nýjasta Mosfelling. 

 


Innilegar hamingjuóskir

Meistaraflokkur kvenna hjá Aftureldingu gerði sér lítið fyrir og vann sér sæti í úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Liðið sigraði Völsung á Húsavík 3-0 í seinni leik liðanna um sæti í úrvalsdeildinni.

Á brattann var að sækja hjá Aftureldingu eftir 2-3 tap að Varmá í fyrri leiknum. Þessi frækni árangur kemst í sögubækur Aftureldingar þar sem þetta er aðeins í annað skipti í 98 ára sögu félagsins sem liðið á sæti í úrvalsdeild í knattspyrnu.

Til mín barst skemmtilegt áheit frá Tryggva Þorsteinssyni þar sem hann skoraði á Gildruna að leika fyrir stelpurnar tónleika ef sigur innist á Húsavík en hljómsveitin Ljótu hálvitarnir frá Húsavík sagðist spila tónleika fyrir Völsungsstúlkur ef þær innu sigur í þessari úrslitarimmu.

Þar sem hljómsveitin Gildran er lítið sem ekkert starfandi um þessar mundir gátum við ekki orðið við þessari bón Tryggva en hugur okkar var að sjálfsögðu hjá þeim í dag eins og öllum öðrum Mosfellingum.

Afturelding lagði ekki einungis Gildru fyrir Völsunga í dag heldur Gildrur.

Fjölmenni tók á móti stelpunum í Aftureldingu þegar þær lentu kl 21 í kvöld á Reykjavíkurflugvelli. Þar ríkti mikil stemning og gleði.

Innilegar hamingju óskir. 


mbl.is HK/Víkingur og Afturelding unnu sér sæti í efstu deild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þægilega dofinn


Eitthvað


Allt er fullt af ást


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband