þri. 16.9.2008
Þá er það búið
Nú eiga lægðirnar eftir að halda manni vakandi með reglulegu millibili. Þá er gott að hlusta á hreint magnaðan söng og flutning Ellu Fitzgerald og fara að hlakka til næsta sumars.
Það sagði mér reyndar veðurglöggur maður á dögunum að veturinn verði hlýr.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
mán. 15.9.2008
Framsóknarbragur
Það var ekki einungis skondið að lesa frétt sem birt var á heimasíðu Framsóknarmanna í Mosfellsbæ í gær, heldur væri nær að segja sorglegt. Þvílíkur tvískinnungur og pólitísk smeðja sem lá þarna að baki og hvaða hvatir? Mér er spurn.
Á heimasíðu Framsóknarmanna í Mosfellsbæ sáu menn ástæðu til að gera að frétt, bloggskrif Varmársamtakanna og þeirra fylgifiska. Nú detta af mér allar dauðar lýs, Framsóknarmenn sem hafa alltaf greitt atkvæði sitt þvert á vilja Varmársamtakanna í einu og öllu. Einnig vakti athygli mína í fréttinni furðu mikill samhljómur við skrif Valda bloggdólgs og Gunnlaugs B. Þokkalegur pakki þar á ferð.
Það voru mér einnig mikil vonbrigði að engin skuli hafa gengist við slíkri frétt í Framsóknarfréttum. Í raun skal samt engan undra svo makalaus hörmung sem þessi skrif voru. Þar voru sett innan gæsalappa ummæli höfð eftir Varmársamtökunum rétt eins og það hafi verið mín eigin. Einnig var sagt orðrétt:
Í viðtalinu gerir Karl sjálfan sig að píslarvotti og segist persónulega hafa verið tekinn fyrir. Ljóst er Karl gerir hér engan greinarmun á starfi sínu sem stjórnmálamaður og persónulegum málum.
Um hvaða persónulegu mál mín er þarna rætt og hvaðan eru þau ummæli höfð? Þau komu ekki fram í viðtalinu við mig. Þetta hefur ritstjóri Framsóknarfrétta lesið einhversstaðar annarsstaðar. Gæti hugsast á einhverri bloggdólgssíðunni?
Umræða mín "fræga" um skurðgröfur eins og haft er á orði í fréttinni hjá Framsóknarfréttum vakti vissulega athygli, það er rétt en bent skal á að þessi ummæli lét ég fyrst falla á flokksráðsþingi Vinstri grænna nú á dögunum og þá sagði ég orðrétt:
"Við megum ekki fara á taugum þótt við sjáum Bryndísi Scram og Sigurrós og heldur ekki alltaf þótt við sjáum skurðgröfu"
Þetta var það sem ég sagði og ég veit að þessi ummæli mín vöktu athygli. Eitt mega þó Framsóknarfréttir vita, rétt eins og allir aðrir að þessi orð mín og ræða féll í góðan jarðveg hjá félögum mínum í Vinstri grænum. Þau tóku gagnrýni minni með reisn.
Marteinn Magnússon ritstjóri Framsóknarfrétta. Þetta var hressilegt skot undir beltisstað hjá ykkur. Þetta fannst ykkur réttmætt og fréttnæmt.
Aldrei datt ykkur í hug að skrifa t.d. um stórkostlega vel heppnaða bæjarhátíð okkar á dögunum, Í túninu heima. Hvorki fyrir hana né eftir.
Með þessu áframhaldi undirstrikið þið tilgerðalega og tvískinnungslega pólitík ykkar og fréttamennsku. Það er ekki bæði sleppt og haldið í pólitíkinni, ekki frekar en í lífinu sjálfu. Þetta snýst um að vera samkvæmur sjálfum sér.
Ég lýsi vanþóknun minni á svona lágkúrulegum og ófagmannlegum fréttaflutningi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
mán. 15.9.2008
Mænuskaðastofnun Íslands
Mig langar að minna á Landssöfnun stofnunarinnar sem er þegar hafinn og nær hápunkti þann 19. September með söfnun í opinni dagskrá Stöðvar 2. Það er mikil þörf á stofnun sem þessari og í raun með ólíkindum að hún hafi verið stofnuð fyrir tilstuðlan einstaklinga, í fararbroddi þeirra mæðgna Auðar Guðjónsdóttir og Hrafnhildar G. Thoroddsen. Þær mæðgur hafa unnið ómetanlegt starf fyrir frekar daufum eyrum Mænuskaðastofnun Íslands er stofnuð af háleitri hugsjón. (fengið að láni af heimasíðunni www.isci.is) Þess er sjálfsagt að geta að frábært starfsfólk á Endurhæfingardeild Landspítalans að Grensási hefur skilað mörgum kraftaverkum, en húsnæðið að Grensási er sprungið, meðal annars vegna aukningar á mænusköðum í okkar hraða samfélagi. Verndari stofnunarinnar er frú Vigdís Finnbogadóttir. Styrktarreikningur Mænuskaðastofnunar er 311 - 26 - 81030 Kennitala 411007-1030 " Það getur haft stórkostlega þýðingu fyrir heimsbyggðina að vel menntuð og vel efnum búin þjóð tali máli mænuskaðans við þjóðir heimsins og beiti pólitískum áhrifum sínum til framfara á þessu sviði læknavísindanna " Heimasíðan er www.isci.is
|
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sun. 14.9.2008
Klukk, klukk, klukk.
Elskulegur frændi minn hann Þráinn Árni klukkaði mig og hér kemur pakkinn.
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina.
Tromma, tromma, tromma, tromma.
Með þroskaheftu fólki. Gaf mér meira en orð fá lýst.
Bílasali. Ótrúleg og ógleymandi lífsreynsla.
Bókband. Það lærði ég og sé ekki eftir því.
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á.
Gaukshreyðrið. Fór á hana með pabba, það er nó til að gleyma henni aldrei.
Stella í framboði. Ég fékk reyndar ekki tilnefningu sem besti leikari í aukahlutverki en mikið var gaman að fá að taka þátt í því ævintýri með öllu því góða og skemmtilega fólki sem að myndinni kom.
Sindlers list. Svakaleg og átakanleg mynd.
Mamma mia. Bara gaman og skemmtilegt, ekki síst að upplifa það að sjá hana Birnu mína agndofa af hrifningu.
Fjórir staðir sem ég hef búið á.
Mosfellssveit (Staðurinn)
Reykjavík (Semi)
Kópavogur (Líka semi)
Mosfellsbær (Það er málið)
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Fréttir á Rúv
Kastljós
Fréttir á Stöð 2
Animal planet
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum.
Þýskaland, stórkostlegt land og fallegt.
Danmörk, yndisleg og skemmtileg.
Spánn, notalegur og engum líkur þegar maður vill gleyma stað og stund.
Stykkishólmur, hafði á mig djúpstæð áhrif í sumar. Pabbi minn fæddist þar og það er nó til þess að ég elska Stykkishólm.
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg.
Mbl
Visir
Mos.is
QZr.com .ruQsz xfgr Frábær og fróðleg síða
Fernt sem ég held uppá matarkyns.
Lambakjöt, grillað.
Fiskisúpur, mín sérgrein.
Steikta lambalifrin hennar Línu.
Kjöt og karrý hjá mömmu.
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft.
Hjalti litli
Símaskráin, minna í seinni tíð eftir tilkomu 118
Saga Mosfellsbæjar
Tinni í Típet
Fjórir bloggarar sem ég ætla að klukka.
H. P. Foss Húmoristi dauðans eins og Óli sonur minn segir og sannur vinur alla leið, traustari en klettur.
Hallsteinn frændi. Yndislegur alltaf.
Arna Steinars frænka. Hjartnæm og elskuleg manneskja.
Steina í Danmörku. Kona sem ég hef aldrei hitt eða talað við en mig langar óskaplega mikið til að kynnast.
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna.
Á Spáni með Línu, Óla, Erlu og Birnu. Bara í slökun.
Á ættarmóti á Hvammstanga. Með öllu mínu fólki.
Með félögum mínum í Gildrunni að taka upp plötu í Stúdíó Stemmu. Ógleymanleg vinátta og félagsskapur.
Í félagsskap minna bestu vina í dúndrandi stuði í Hlégarði.
Bloggar | Breytt 15.9.2008 kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
lau. 13.9.2008
Kjuðinn
Ég hafði svolítið gaman að því að lesa pistil Ásgeirs Jónssonar í Mosfellingi í gær. Hann fór um víðan völl eins og vanalega í skemmtilegum pistlum sínum. Þar nefndi hann m.a. gamla Kjuðann og sagði hann hafi verið miðstöð bæjarins. Kjuðinn var knattborðsstofa sem ég stofnsetti og rak á árunum 1995 - 1998 eða allt þar til við bræður og konur okkar stofnuðum og opnuðum Álafoss föt bezt.
Kjuðinn var sérlega vinsæll staður og þar blómstraði öflugt félagslíf fólks á öllum aldri. Þetta er mér algerlega ógleymanlegur tími, það ríkti einhver óútskýranleg stemning á Kjuðanum og jákvætt andrúmsloft. Margir gamlir Kjuðamenn hafa oft haft þetta á orði við mig.
Steini bróðir tekur fyrsta stuðið á Kjuðanum
Það sem meira er og komst í sögubækurnar frá þessum árum er að frá Kjuðanum komu tveir Íslandsmeistarar unglinga í snóker. Það voru þeir, Loftur Þór Þórunnarson og Hilmar Gunnarsson. Það var mikið taugastríð hjá mér þegar þeir félagar léku úrslitaleikina sína á Íslandsmótinu sem haldið var í Reykjavík í bæði skiptin. Mikið var ég stoltur af þeim þegar þeir lönduðu Íslandsmeistaratitlinum. Þetta afrek þeirra vakti einnig talsverða athygli að tvö ár í röð kæmu svo öflugir snókerspilarar úr Mosfellsbænum.
Eins var gaman þegar þeir Kristján Helgason og Jóhannes kepptu á Álftarósmótinu sem sjónvarpað var beint frá á Kjuðanum. Síðar kom Kristján í opinbera heimsókn á Kjuðann sem auglýst var vandlega þar sem hann sýndi áhugasömum snókerspilurum í Mosfellsbæ snilli sína. Þá gerði Kristján sér lítið fyrir og breikaði 147 á troðfullum Kjuðanum en 147 er hæsta skor sem mögulegt er að ná í Snóker. Hver sá sem varð vitni af þessu afreki Kristjáns held ég að gleymi því aldrei.
Pabbi og Óli tengdó á opnunarkvöldinu
Bloggar | Breytt 14.9.2008 kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
mið. 10.9.2008
Rotsjúkdómar
Ég geri frekar lítið af því að tengja blogg mín við fréttir en gerði á því undantekningu í gær eins og sjá má hér fyrir neðan. Þá bloggaði ég við frétt um afreksmanninn og hjólreiðamanninn, Lance Amstrong. Eins og fram kemur í færslu minni höfum við báðir glímt við krabbamein og unnið bug á því.
Á heimasíðu nokkurri sem haldið hefur verið úti af manni sem kallaði sig um tíma Varmársamtaka Valdi og er til þess eins að rægja og niðurlægja fólk, allt undir leyninöfnum var í morgun skrifuð færsla sem mér var bent sérstaklega á.
Þar ritaði Alvin nokkur athugasemd þar sem hann hvatti persónulegan vin minn að forðast fólk með rotsjúkdóma. Alvin þessi ruglaðist í þessari sömu færslu um kynferði sitt, því hann varð um tíma kvenkyns í henni. Þessari færslu var eitt út nú síðdegis en eftir stendur sorgleg staðreynd þess hversu fólk getur lagst lágt.
Ég bið þess og vona að stjórnarmenn Varmársamtakanna sem þarna skrifa láti af því.
Gunnlaugur B. Ólafsson, formaður. Ólafur Ragnarsson, gjaldkeri og Kristín Pálsdóttir, stjórnarfólk í Varmársamtökunum, ég skora nú á ykkur í síðasta skipti að reyna að hefja umræðuna á málefnalegra plan. Á vettvangi heimasíðu samtaka ykkar en ekki á helsjúkri heimasíðu sem engin þorir að gangast við og af hverju skildi engin þora það?.
Ef það er til vottur af greind sem kennd er við tilfinningar í manneskju, er enn möguleiki að fá uppreisn æru.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
mið. 10.9.2008
Nú er ekkert bætt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Það er makalaus tilviljun að rétt eftir að ég lét mína fyrstu færslu um hjólreiðar hér fyrir neðan skuli ég fáeinum mínútum síðar lesa þessa frétt um Lance Amstrong.
Við "félagarnir", það er ég og Lance eigum sennilega ekkert annað sameiginlegt en að hafa báðir veikst af sama sjúkdómi, krabbameini í eista. Krabbameinslæknir minn benti mér á það þegar ég var í reglulegu eftirliti hjá honum að lesa ævisögu Lance Amstrong og það gerði ég nánast í einum rykk og var það merkileg og fróðleg lesning. Maðurinn er ótrúlegur afreksmaður og kem ég án vafa til með að fylgjast með honum í þeirri miklu þolraun sem Frakklandshjólreiðarnar eru.
Við eigum það reyndar einnig sameiginlegt að hafa læknast að fullu af okkar sjúkdómi. Báðir útskrifaðir ég útskrifaðist fyrir hálfu ári síðan og þakka mikið fyrir það.
Einkenni þessa sjúkdóms byrja oft með eymslum í brjóstum og eista samhliða. Aðal málið er að bregðast fljótt við ef eitthvað slíkt kemur upp á og fara ófeiminn til læknis. Þetta er ekki mjög algengt krabbamein og frekar viðráðanlegt ef brugðist er fljótt við.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
![]() |
Armstrong ætlar að keppa á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
þri. 9.9.2008
Það á ekki að lögleiða reiðhjólahjálma
Ég horfði einu sinni sem oftar á bráðskemmtilegan þátt Gísla Einarssonar fréttamanns, Út og suður, á sunnudaginn var. Þar tók Gísli viðtal við greinileg mikinn og góðan hugsjónamann, Magnús Bergsson rafvirkja og reiðhjólamann. Viðtalið var sérlega skemmtilegt og áhugavert.
Eins og gefur að skilja snérist viðtalið að mestu um áhuga Magnúsar á hjólreiðum. Magnús sagði reiðhjólið hafa opnað fyrir sér nýja heima þegar hann eignaðist það fyrst um fermingu en frá þeim tíma hefur hann notað það sem sinn aðal ferðamáta. Geri aðrir betur.
Í viðtalinu sagði Magnús þetta áhugamál sitt í dag fyrst og síðast snúast um umhverfismál þrátt fyrir að hafa ekki litið á það þannig í upphafi.
Eins og áður segir fannst mér viðtalið sérstaklega skemmtilegt og áhugavert og satt að segja langaði mig mest að öllu, eftir að hafa heyrt það, að fara í næstu hjólreiðaverslun og festa kaup á góðu reiðhjóli.
Eitt var það þó í viðtalinu sem kom mér verulega á óvart og var það skoðun Magnúsar á notkun reiðhjólahjálma. Hann sagðist á móti lögleiðingu þeirra á alla aldurshópa. Þá varð ég hissa.
Ástæðu þess nefndi hann m.a. að notkun þeirra gerði það að verkum að hjólreiðamönnum fækkaði.
Fyrir mér er nóg til að réttlæta notkun hjálmsins öll þau slys þar sem hann hefur sannarlega bjargað mannslífi. Nærtækast fyrir mér er slys sem einn af mínum bestu vinum lenti í ekki alls fyrir löngu þar sem sannað er að hjálmurinn bjargaði hans lífi. Reiðhjólamönnum hefði fækkað um einn ef hann hefði ekki haft hann á kollinum þá.
Þessa skoðun Magnúsar skil ég satt að segja ekki og er í raun búin að velta fyrir mér allt frá því ég sá þáttinn.
Annars takk fyrir sérstaklega skemmtilegan þátt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
þri. 9.9.2008
Fuglalífið í Leirvoginum
Í Leirvoginum er fuglalíf mikið og fjölbreytt, því kom upp sú hugmynd að koma þar fyrir fuglaskoðunarhúsi. Nú er það komið á sinn stað, nærri Langatanga, þar er Jóhann Óli fuglafræðingur taldi heppilegast að því skyldi fyrir komið.
Húsið er eins og þau gerast best af þessu tagi einkar vönduð smíð Gunnars Helgasonar trésmíðameistara og hans manna.
Gunnar Helgason við fuglahúsið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)