Anna Kristjáns hafði svarið!!!

Mér var hætt að standa á sama hvað þetta gekk illa en það hafðist á endanum. Góðir bloggvinir mínir og aðrir gestir voru farnir að efast um að mér væri full alvara í leiknum.

Það er mér sérstök ánægja að nú skuli svarið loks komið og ég verð að segja eins og er að það kemur mér ekki á óvart að Anna Kristjáns skuli hafa haft það. Hún skrifar um allt og ekkert og virðist afskaplega þenkjandi kona.

Neil Armstrong, geimfarinn heimsfrægi var maðurinn sem ég hugsaði mér. Fyrsti maðurinn sem gekk á tunglinu.

Nú skora ég á þig Anna að taka boltann á flugi og koma með næstu getraun. Ég þakka ykkur öllum sem tókuð þátt. Þetta var bara gaman.

Kær kveðja frá Kalla Tomm úr Mosó.


Eftir 105 athugasemdir

Eftir 105 athugasemdir (spurningar) er rétta svarið ekki komið. Nú er ekkert sem heitir. Kíkið á færsluna hér að neðan, Allt er þegar þrennt er og látið vaða. Munið bara að lesa það sem er komið.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó og eigið góða helgi kæru bloggarar.


Hvernig er þetta með golfið?

Nú er að verða liðin vika síðan ég tók þátt í golfmóti í Mosfellsbæ. Mótið er árlegt og heitir Bæjarstjórnargolf. Þetta er í annað skiptið á ævi minni sem ég spila golf, í hitt skiptið sem ég spilaði var það við sama tilefni fyrir ári síðan. Bæjarstjórnargolfið fer þannig fram að hver byrjandi hefur með sér einn vanan og skipst er á höggum. Auðvitað þarf ég ekkert að segja hvernig þetta mót endaði enda er það svo sem aukaatriði.

Það sem verst er hinsvegar að það sama er búið að vera ergja mig núna í eina viku og gerðist í fyrra eftir mótið. Núna er það þó hálfu verra held ég. Ég er gjörsamlega friðlaus að fara út á völl að spila golf en ég læt það ekki eftir mér. Það fer í þetta hálfur dagur ef vel á að vera.

Hvernig er þetta með golfið? það verða allir vitlausir í þetta sport sem byrja að stunda það.

 


Það fá allir annað tækifæri

Kæru bloggvinir við verðum að klára þennan magnaða leik. Það er ekki hægt að hætta leik, þegar hæst stendur, ekki alltaf. Því hef ég ákveðið að allir fái annað tækifæri. Aðal atriðið er að nenna að lesa þær spurningar og svör sem þegar eru komnar.

 

Nú er málið að lesa færsluna hér fyrir neðan sem heitir, Allt er þegar þrennt er og klára leikinn.

Stundum er voða gott að taka hlutina ekki of alvarlega. 


Þessu vil ég gleyma sem fyrst

"Ég er miður mín og þessu vil ég gleyma sem fyrst" Hvað gerir maður í þessari stöðu? Jú, það vita flestir, ef þeir vilja standa við orð sín og láta mark vera á þeim takandi.

Svo er líka hægt að fara hina þveröfugu leið. Það er að segja þetta en gera hitt. All flestir eru nú sammála um að slíkt háttalag er ekki trúverðugt og gott.

Oddviti framsóknarmanna í Mosfellsbæ lét hafa eftirfarandi eftir sér í blaðaviðtali þar sem hann gagnrýndi vinnubrögð mín úr stóli forseta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar.  

"Ég er miður mín og vil gleyma þessu sem fyrst. Nokkrum dögum síðar er hann hættur við að reyna að gleyma. Sem sagt stendur ekki við orð sín. Á heimasíðu undir hans stjórn hefur verið lögð talsverð vinna í upprifjun á málinu sem oddvitinn sagði okkur öllum að hann vildi gleyma.

Sumir eru fljótir að gleyma, jafnvel því sem þeir ætluðu að reyna að gleyma.


Allt er þegar þrennt er!!!!!

Þá er komið að loka umferðinni í samkvæmisleik fyrir skemmtilega bloggara. Nú verður ekkert gefið eftir og reglur hafa verið hertar til muna. Bloggari sem fær nei við spurningu sinni dettur úr leik og fær ekki að spyrja aftur.

Bloggari sem fær já við spurningu sinni fær að halda áfram og hefur fyrsta rétt til að spyrja næstu spurningar. Já!!!!!!! nú reynir á.

Hver er maðurinn???


Vegna fjölda áskorenda er samkvæmisleikur fyrir skemmtilega bloggara endurtekinn

Þar sem að anno (Anna Ólfas) er sennilega ekki komin úr sumarbústaðnum verð ég að endurtaka leikinn, samkvæmisleik fyrir skemmtilega bloggara. Þegar maður fær slíka áskorun svo ekki sé nú talað um frá besta bloggara Íslands, lætur maður slag standa.

Ég hef hugsað mér mann!!!


Leikurinn sem varð lengri en til stóð

Kæru bloggvinir. Ég vona að þið erfið það ekki við mig að dregist hefur úr hófi fram að koma með svör við athugasemdum ykkar á blogginu mínu. Mér og mínum var óvænt boðið í sumarbústaðarferð um helgina. Frábæra ferð og stórkostlega veislu með skemmtilegu og góðu fólki. Þess vegna hef ég ekki staðið mig í stykkinu að svara ykkur og ykkar spurningum.

Það fyrsta sem ég gerði þegar að ég kom heim áðan var að skoða svörin og takk fyrir frábæra þátttöku.

Góð bloggvinkona mín kom með rétta svarið, engin önnur en píanóleikarinn anno (Anna Ólafsdóttir)

Bill Clinton var það heillin.

Anna, sendu mér tölvupóst á ktomm@simnet.is með heimilisfangi þínu. Það kemur smá glaðningur úr Mosó.

P.s. Anna, þú átt næsta leik.

Bestu þakkir fyrir að vera með kæru bloggvinir. Kalli Tomm.


Samkvæmisleikur fyrir bloggvini

Hver er maðurinn??? Ég hef hugsað mér mann eða konu.

Þið varpið fram einni spurningu og fáið aðeins frá mér svar, sem er nei eða já. Spurning ykkar er t.d. er þetta karl, eða er þetta kona, er þetta íþróttamaður og svo framvegis.

Ef margar spurningar koma í einu get ég þurft að svara t.d. Nei ekki íþróttamaður, já rauðhærð nei ekki í pólitík, já leikari, já Íslensk og svo framvegis. 

Athugið aðeins ein spurning er leifileg frá hverjum bloggara. Sá eða sú sem kemur svo með rétta nafnið á endanum fær glaðning úr Mosó.

Er þetta ekki bráðskemmtilegur leikur fyrir okkur bloggvinina???

Koma svo, vera með!!!

Athugið, ég hef sent vísbendingu á einn af mínum bloggvinum sem hægt er að nota sem sönnun þess að ég breiti ekki um nafn á mínum leynimanni í miðjum leik.

Þá hefst leikurinn. Ég hef hugsað mér mann!!!!


Pavarotti


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband