sun. 31.8.2008
Jenný Anna, besti bloggari Íslands
Nú þegar hvorki fleiri né færri en 2506 hafa greitt atkvæði í kosningu um besta bloggara Íslands eru úrslit kunn.
Það var engin önnur en bloggarinn duglegi og bráðskemmtilegi, Jenný Anna sem bar sigur úr bítum með 545 atkvæði á bak við sig.
Keppnin var lengi vel í járnum þar sem Lára Hanna, Jens Guð, Ómar Ragnars og Jóna Gísla voru allan tímann í baráttunni. Endaspretturinn var Jennýjar og er hún því verðskuldaður sigurvegari.
Til hamingju með það ágæta Jenný Anna.
Vonandi fæst sigurvegarinn í viðtal þar sem við fáum að kynnast þessari kjarnakonu á bakvið bloggarann. Það verður þá birt á næstu dögum á síðu minni.
Ég þakka öllum sem tóku þátt, bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
sun. 31.8.2008
Kjörstað lokar eftir tæpar fimm klukkustundir
Úrslit verða gerð kunn um leið og kjörstað lokar kl. 21:00.
Tvöþúsund og fimmhundruð manns hafa nú kosið sinn uppáhalds bloggara. Nokkuð góður árangur það kæru félagar og bloggvinir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
lau. 30.8.2008
Guðný Halldórsdóttir bæjarlistamaður
Í gær var Guðný Halldórsdóttir kvikmyndagerðakona útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar.
Eftir að Duna, eins og hún er oftast kölluð í sveitinni, hafði veitt viðurkenningunni viðtöku sagði hún m.a. í ræðu sinni oft hafa leitað til sveitunga sinna til að fara með hlutverk í myndum sínum.
Það eru orð að sönnu og vart er til sá Mosfellingur sem hefur eitthvað komið nálægt Leikfélagi Mosfellssveitar sem hefur ekki farið með hlutverk í einhverri mynd hjá Dunu. Þetta hefur verið sérstaklega skemmtileg hefð hjá Dunu og án vafa einnig sérstök upplifun fyrir þá leikara sem hafa fengið að taka þátt. Það er nefnilega heilmikið ævintýri að vera á tökustað þegar búin er til alvöru kvikmynd.
Guðný Halldórsdóttir er sérlega vel af þessum heiðri komin og óska ég henni innilega til hamingju.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
lau. 30.8.2008
MKMedia strákarnir engum líkir
Mikið hafði ég gaman af heimsókn þeirra félaga í sumar og gleymi aldrei. Þá komu þeir á heimili mitt og spurðu mig spjörunum úr. Bókstaflega um allt á milli himins og jarðar.
Endilega kíkið á síðu þeirra félaga þar sem þeir taka mörg sérlega skemmtileg viðtöl.
Með bestu kveðju frá K. Tomm úr Mosó.
http://mkmedia.is/assets/files/Gildran_vi__tal_tilb__i___NEW.wmv
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fös. 29.8.2008
2000 bloggarar hafa nú kosið!!!
Baráttan á endasprettinum er hörð og skemmtileg. Kæru bloggara og vinir, munið að þann 31. ágúst kl. 21:00 verða úrslit gerð kunn.
Fram að þessu hefur baráttan staðið á milli Jens Guð, Önnu Jennýjar, Jónu Gísla, Láru Hönnu og Ómars Ragnars.
Hvað getur svo gerst á endasprettinum er erfitt að spá um.
Endilega takið þátt og höfum gaman af.
Ég er ekki í vafa um að fleiri bloggarar eigi heima á þessum lista eða í þessum baráttusætum en þetta eru greinilega þeir sem efstir standa í dag og það eftir rúmlega 2000 greidd atkvæði.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Spennan virðist nú vera að ná hámarki í kosningunni um besta bloggarann og viti menn, bloggarinn bráðskemmtilegi Jenný Anna, leiðir nú hópinn í fyrsta sinn.
Sem fyrr er þetta nú samt allt saman í járnum á meðal þeirra efstu.
Þann 31. ágúst kl. 21:00 liggja úrslit fyrir.
Þátttakan er frábær hjá ykkur kæru bloggarar og vinir og ég vil þakka fyrir það. Ég vil endilega einnig segja enn og aftur þetta er til gamans gert.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 28.8.2008
Þessi mynd ber höfundi sínum gott vitni
Hvaða árgerð er Landróverinn?
Hvaða foss er þetta í baksýn?
Hvort er bóndinn í Nokia eða Víking stígvélum?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
mið. 27.8.2008
Leynihátíð
Fátt er skemmtilegra en alvöru útihátíð með brennu, söng og flugeldum í hópi góðra vina. Leynihátíðin stóð undir öllum væntingum og lukkaðist í alla staði frábærlega.
Ég og Hilmari vinur minn ákváðum að bjóða nokkrum vinum og kunningjum á eina slíka á landareign okkar og í bústaðinn okkar Leyni, nærri Laugarvatni.
Rúmlega 40 manns heimsóttu okkur þessa helgi og var trallað og sungið, spjallað og spekúlerað fram á rauða nótt.
Við þökkum öllum sem lögðu leið sína til okkar fyrir stórkostlega skemmtun og munum vafalítið gera þetta aftur að ári.
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir
Bloggar | Breytt 29.8.2008 kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
mið. 27.8.2008
Í túninu heima

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)