Nokkrar myndir frá góđum degi

Nýlega skrifađi ég grein um góđan og fallegan dag sem viđ áttum í Mosfellsbć. Fćrsluna má sjá fyrir neđan ţá síđustu. Ţá vígđum viđ skóla og kvöddum einn af okkar ástsćlustu kennurum, Sigríđi Johnsen. 

Hér koma nokkrar myndir frá ţessum fallega og góđa degi.

 

 

 Krik 1

Krik 2

Krik 3

Krik 4

Sigr 1

Sigr 2

Sigr 3

 


Ćvintýriđ sem kom okkur hvađ mest á óvart

Gildrumezz 1010

Gildran hafđi í raun aldrei veriđ hljómsveit sem fékkst viđ ađ spila annađ en ađ mestu sín eigin lög. Vissulega tókum viđ gamla slagara inn á milli á tónleikum okkar og uppákomum og höfđum gaman af ţví og ţá voru ţađ auđvitađ lög frá helstu áhrifamönnum okkar og átrúnađargođum.

Nokkru síđar, eftir ađ viđ vorum ákveđnir í ađ taka frí, fluttum viđ dagskrá sem sló gersamlega í gegn og kom öllum á óvart og sennilega ţegar upp er stađiđ mest okkur sjálfum.

Sagan var ţannig ađ eftir eina tónleika á Álafoss föt bezt í Mosfellsbć, rćddum viđ ţađ félagarnir ađ gaman vćri ađ halda eina tónleika í Mosó og ađ sjálfsögđu á Álafoss föt bezt og spila eingöngu lög Creedence Clearwater Revival.

Viđ höfđum í gegnum árin flutt mörg lög ţeirrar frábćru hljómsveitar sem var einnig í miklu uppáhaldi hjá okkur félögunum. Ţessi hugmynd hefđi vafalaust aldrei komiđ upp nema vegna ţess ađ viđ kunnum ađ spila flest lög ţeirra og vissum ađ söngvari okkar, hann Biggi, var engum líkur ţegar kom ađ ţessum lögum.

Ákveđiđ var ađ auglýsa CCR helgi á Álafoss föt bezt og viti menn, ţetta varđ eitt af okkar stóru ćvintýrum.

Ţessa dagskrá fluttum viđ 60 sinnum í Mosfellsbć á Álafoss föt bezt, í hálft ár á Hótel Íslandi og í hálft ár á Kaffi Reykjavík. Einnig ferđuđumst viđ um land allt međ ţessa dagskrá. Í rúm tvö ár gerđum viđ ekkert annađ. Ţađ sem ţetta virkađi og oftast komust fćrri ađ en vildu á ţeim stöđum sem viđ spiluđum.

Ţetta ćvintýri kom okkur félögunum gersamlega á óvart og var einstaklega skemmtilegt.

Gildrumezz 1010+

Gildrumezz međ Eiríki Haukssyni sem tróđ upp međ okkur á ógleymanlegum tónleikum í Mosfellsbć í risatjaldi viđ Álafoss föt bezt og á Akureyri.

Síđar hljóđrituđum viđ Gildrumezz, eins og viđ kölluđum okkur ţá, hljómplötu međ öllum ţessum lögum snillinganna í CCR. Gítarleikari var Sigurgeir Sigmundsson, söngvari Birgir Haraldsson, trommari Karl Tómasson og bassaleikari var Jóhann Ásmundsson.

Ţessi hljómplata er enn sem komiđ er sú síđasta sem viđ höfum hljóđritađ saman.

Ţar međ er ţessari yfirferđ minni um samstarf okkar og hljómplötuútgáfu lokiđ í bili.

Ég vona ađ ţiđ hafiđ haft gaman af.

Bestu kveđjur frá Kalla Tomm úr Mosó. 

Biggi 50 ára 10 10

Félagarnir og vinirnir í 50 ára afmćli höfđingjans og stórsöngvarans

Bigga Haralds nú á dögunum.

 


Góđur og fallegur dagur í Mosó

Mos ág

Mosfellsbćr grćnn og fallegur í dag

Veđriđ lék viđ okkur Mosfellinga eins og fleiri landsmenn í dag. Viđ vígđum nýju skólastofurnar okkar í landi Helgafells sem hafa fengiđ nafniđ Brekkukot. Ég held hreinlega ađ leitun sé ađ eins fallegu skólastćđi.

Ţessi skóli kemur í upphafi  til međ ađ gegna hálfgerđri útibússtöđu fyrir vćntanlegan Krikaskóla sem fljótlega verđur hafist handa viđ ađ reisa og verđur án vafa einn glćsilegasti skóli landsins. Ađ ţví loknu mun hann taka viđ vćntanlegum nýbúum í landi Helgafells.

Herdís Sigurjónsdóttir formađur frćđslunefndar hélt góđa og fróđlega tölu um tilurđ skólans. Séra Ragnheiđur Jónsdóttir blessađi mannvirkiđ og komandi skólastarf og ađ lokum hélt Ţrúđur Hjelm ný ráđin skólastjóri góđa tölu.

Ađ ţessu loknu stormađi öll hersingin í Hlégarđ til ađ kveđja einn af okkar ástsćlustu kennurum og skólastjóra í Lágafellsskóla nú hin síđari ár Sigríđi Johnsen. Sigríđur réđ sig til starfa í Mosfellsbć fyrir um 30 árum og hefur frá ţeim tíma unniđ óhemju gott og óeigingjarnt starf í skólamálum. Sigríđur er einstök kona sem hefur međ krafti sínum, elskulegheitum og frammúrskarandi stjórnunarhćfileikum átt sinn ţátt í ţví ađ koma öllu skólastarfi í Mosfellsbć í hćstu hćđir. Slíkri manneskju og starfskrafti verđur seint full ţakkađ.

Mikiđ óskaplega ţótti mér vćnt um hlýleg og falleg orđ hennar til pabba í rćđu hennar í dag en pabbi var skólastjóri í Varmárskóla og réđi hana til starfa ţegar hún kom í Mosfellssveitina. Hún talađi m.a. um ţađ ţegar pabbi leiddi hana um skólann til ađ kynna henni starfiđ og ţegar hún hitti í ţeirri skođunarferđ Birgi D. Sveinsson, kennara og síđar skólastjóra og stofnanda Skólahljómsveitar Mosfellssveitar. Hún talađi um ađ pabbi hafi reykt pípu og Birgir vindla sem hafi ekki ţótt tiltökumál ţá í skólahúsum. Eftir ţessu man ég vissulega en samt óljóst. Ţađ er einstaklega gaman ađ heyra svo mćlska og skemmtilega konu eins og Sigríđi segja frá.

Sigríđur kom einnig mikiđ inn á ţađ mikilvćga starf sem kennarar vinna um land allt og sagđi ţetta sennilega eitt skemmtilegasta starf sem hćgt vćri ađ hugsa sér.

Snemma í sumar heimsóttu Birgir og Jórunn okkur Línu og áttum viđ saman notalega stund og heilmikiđ og gott spjall. Birgir fćrđi okkur ţá gamlar og einstakar myndir sem hann á í fórum sínum, einar af mörgum og ég hef gaman af ađ fá tćkifćri til ađ láta fylgja ţessari fćrslu minni.

Mikil vinátta ríkti á međal okkar fjölskyldna og eins og ég hef komiđ ađ störfuđu Birgir og pabbi náiđ saman í rúma tvo áratugi.

Samstarf ţeirra og vinátta hófst í Brúarlandsskóla ţar sem afi Lárus var skólastjóri.

Hér koma myndirnar og myndatextar undir hverri mynd. Takk fyrir ţessa einstaklega skemmtilegu sendingu kćri Birgir.

Kenn 6

Jóhanna skólastjóri Lágafellsskóla,

Garđar eiginmađur Sigríđar og Sigríđur á góđri stund.

Kenn 1

Séra Bjarni, Bragi Melax, Tómas, Ari Birgir, Guđmundur,

Lárus og Klara Klćngs.

Kenn 2

Guđmundur, Birgir D. Sigvaldi Sturlaugs, ( bróđir pabba) 

Klara, pabbi, Eyjólfur (pabbi Magga í Latabć, sjáiđ svipinn.) og afi.

Kenn 3

Jórunn, kona Birgis og mamma í útileigu á Laugarvatni.

Kenn 5

Pabbi og Birgir á góđri stund í útileigu.

Kenn 4

Afi Lárus, skólastjóri á Brúarlandi og Gunnlaugur Hreinsson.

 


Rúm vika í fjöriđ

Ađra helgi verđur haldin okkar árlega bćjarhátíđ í Túninu heima. Undirbúningur hefur eins og áđur veriđ undir öruggri stjórn Dađa Ţórs Einarssonar. Dađi á sannarlega hrós skiliđ fyrir ţá miklu vinnu og metnađ sem hann leggur ávalt í undirbúning fyrir hátíđina.

Nú er bara ađ vona ađ veđriđ leiki viđ okkur og ađ sem flestir íbúar taki ţátt í fjörinu.

 

Af heimasíđu Mosfellsbćjar mos.is

Viđ skipulagningu hátíđarinnar verđur lögđ áhersla á ađ skemmtileg innanbćjarstemmning ríki á hátíđinni okkar og ađ sem flestir bćjarbúar séu ţátttakendur.. Liđur í ţví hefur veriđ ađ virkja sem flesta listamenn, einstaklinga og félög í Mosfellsbć og búa til dagskrá sem endurspeglar ţá sveit í borg sem er okkar ađalsmerki. Til viđbótar ţessu verđa fengnir fyrsta flokks listamenn víđs vegar ađ. Ţessi blanda af dagskráratriđum heppnađist sérlega vel í fyrra.

Önnur ástćđa fyrir ţví hversu vel gekk var ekki síst sú ađ bćjarbúar lögđust á eitt um ađ gera hátíđina eftirminnilega og skemmtilega. Dćmi um ţađ eru skreytingar í mismunandi litum eftir hverfum. Ţá grilluđu grannar einnig víđa saman.

Heyrst hefur ađ hverfin séu ţegar farin ađ skipuleggja skreytingar og grill fyrir hátíđina í ár!

Hćgt er ađ hafa samband međ tölvupósti á slóđann: dadithor@internet.is  fyrir nánari upplýsingar. 


Besti bloggari Íslands. Rúmlega 800 hafa nú kosiđ og Lára Hanna leiđir hópinn.

Lára HannaKćru bloggvinir og ađrir gestir. Baráttan er hörđ á toppnum í kosningu um besta bloggara Íslands. Ţegar ţetta er skrifađ er Lára Hanna međ forystuna. Jens Guđ, Jenný Anna, Ómar Ragnars og Jóna Á Gísla eru öll í hnapp í baráttunni á eftir Láru Hönnu og skiptast ţau reyndar reglulega á um toppsćtiđ.

Endilega takiđ ţátt.

Bestu kveđjur frá Kalla Tomm úr Mosó


Sextíuogsex

66

66 bak 1

66 í Sveitinni

66 bak

Áriđ 1993 fór Gildran í frí og upp úr ţví stofnuđum viđ Biggi dúettinn Sextíuogsex. Dúett sem varđ fljótlega tríó međ Frikka Hall, ţeim ótrúlega náttúru tónlistarmanni, sem hefur komiđ mörgum á óvart međ tónlistarhćfileikum sínum. Einnig starfađi međ okkur í Sextíuogsex Jonni Ólafs Pelicani. Mikill húmoristi og snillingur, fullur af grallaraskap og endalausri reynslu sem var ómetanleg fyrir okkur.

Ţađ sem meira var ađ upp úr ţessu ćvintýri okkar komu tveir hljómdiskar sem viđ hljóđrituđum á ógleymanlegum tíma međ Óla í Hvarfi. Sextíuogsex var nefnilega svolítiđ skemmtileg hljómsveit.

Viđ spiluđum um land allt og ţađ var bókstaflega brjálađ ađ gera hjá okkur. Oftar en ekki fyrir trođfullum litlum krám. Krám sem höfđu öllu jafna ekki átt ađ venjast mikilli ađsókn. Ţađ kom fyrir ađ auglýst vćri ađ Gildran vćri međ tónleika. Ţađ var stundum svolítiđ erfitt hjá okkur Bigga í upphafi slíkra tónleika ađ réttlćta ţann gjörning en oftast tókst ţađ.

Eitt sumariđ fórum viđ međ Bylgjunni og öllu hennar starfsfólki hringinn í kringum Ísland. Ţađ var einstaklega skemmtileg ferđ. Ţá tróđum viđ upp viđ öll tćkifćri í útvarpsţáttum ţeirra fyrri part dags um land allt og síđar um kvöldiđ međ dansleik. 

Ţetta 66 ćvintýri var sannarlega skemmtilegur tími.


Birgir Haraldsson 50 ára

Vinur minn og samstarfsfélagi í 30 ár Birgir Haraldsson fagnađi í gćr fimmtugs afmćli sínu međ glćsibrag. Samstarf okkar hófst áriđ 1979 og höfum viđ frá ţeim tíma m.a. hljóđritađ saman 8 hljómplötur og fariđ saman hundrađ hringi í kringum Ísland.

Birgir er ekki einungis stórkostlegur söngvari og engum líkur sem slíkur. Heldur er hann einnig, ein besta manneskja sem ég hef nokkru sinni kynnst. Skemmtilegur, heiđarlegur og laus viđ alla tilgerđ.

Til hamingju međ áfangann elsku vinur.

Auđvitađ var mikiđ sungiđ og spilađ í veislunni og m.a. tókum viđ félagarnir í Gildrunni tvö lög. Andvökunćtur og Mćrina og mikiđ höfđum viđ gaman ađ ţví. 

Myndin var tekin af okkur eftir uppákomuna í gćr.

Biggi 50 ára 10 10

Sigurgeir, Jói Ásmunds, Biggi Haralds og Kalli Tomm.

 

 


Ţetta er skemmtilegt. Endilega fáiđ ykkur svona hljóđfćri

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/2IPoTsqoujM&hl=en&fs=1"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/2IPoTsqoujM&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

Ógleymanlegur tími og lćrdómur

Ég hef nú ađ undanförnu skrifađ um samstarf okkar félaganna í Gildrunni og ţćr hljómplötur sem viđ gáfum út á ţeim tíma sem viđ störfuđum saman ađ fullum krafti.

Gildran var í raun alla tíđ svolítil Hulduhljómsveit eins og nafn okkar fyrstu hljómplötu gaf til kynna en aldrei fundum viđ fyrir öđru en virđingu og hlýju hvert sem viđ komum.

Hér koma myndir af plötunum okkar sem ég hef fjallađ um.

Huldumenn framan 100dpi

Hugarfóstur

Gildran 1 (2)

Ljósvakaleysingjar 10

Út 150dpi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Gildran í 10 ár


Rúmlega 600 manns hafa nú greitt atkvćđi í kosningu um besta bloggara Íslands áriđ 2008

ÓmarJóna ÁLára HannaJennýJens Guđ

 

 

 

 

 

Ekki hefur stađiđ á viđbrögđum í kosningunni um, besta bloggara Íslands áriđ 2008.

Í undanúrslitum voru úrslit nokkuđ afgerandi en vegna tćknilegra mistaka var gefinn kostur á ţví ađ kjósa um ţá 30 einstaklinga sem flest atkvćđi fengu.

Endilega takiđ ţátt og enn og aftur ţetta er til gamans gert og endilega takiđ ţví ţannig og ekkert öđruvísi.

Vissulega má segja ađ nćr hefđi veriđ ađ kalla ţennan leik t.d. Uppáhalds bloggarinn minn. Besti bloggari Íslands er bara miklu flottara.

Í fyrra hlaut ţessa heiđursnafnbót ofur bloggarinn Jens Guđ og svo virđist sem hann ćtli lítiđ ađ gefa eftir ađ ţessu sinni í baráttunni, ţrátt fyrir ađ nú ţjarmi fleiri ađ honum en fyrir ári síđan. Hér má sjá myndir af ţeim sem virđast leiđa baráttuna um ţessar mundir.

Koma svo og hafa gaman af.

Bestu kveđjur frá Kalla Tomm úr Mosó.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband