Besta bloggsíða Íslands Jóna Á

Ég hef ákveðið að láta þessa könnun vara yfir í eina viku.

Á sólarhringsfresti mun ég koma með stöðu mála í könnuninni.

Nú koma fyrstu tölur eftir einn sólarhring.

Jóna Á Gísla er með bestu síðuna eftir fyrsta sólarhringinn og fast á hæla hennar koma Jenný Anna og Anna Ólafs.

Næstu tölur verða gerðar opinberar eftir sólarhring.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.


Besta bloggsíða Íslands

Í mínum huga er það engin spurning hvaða síða er best og mun ég uppljóstra mína skoðun á því síðar.

Það er spennandi að vita hvaða síðu þið ágætu landar mínir um allt land veljið og því hef ég ákveðið að skella þessari könnun á.

Framkvæmdin er frekar snúin þar sem hinn hefðbundni möguleiki á skoðanakönnunum gefur ekki færi á svo mörgum möguleikum á Mogga blogginu.

Því hef ég ákveðið að láta þetta fara þannig fram að allir sem kjósa gera það í athugasemdum undir dulnefni og nefna tvær síður þannig að viðkomandi geti ekki bara nefnt sína síðu.  

Eins og gefur að skilja er ekki hægt að svindla, því þið kæru bloggarar getið talið atkvæðin rétt eins og ég.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.


Bloggreind

Þá er komið að allra síðasta kaflanum í rannsóknum mínum á greind. Ég hef leitast við að finna öll merkustu greindarpróf seinni tíma og birt hér á bloggi mínu undanfarnar vikur.

Ekki hefur staðið á viðbrögðum ykkar kæru bloggvinir og öðrum gestum. Hvað er greind???

Er t.d. til  bloggreind.

Um fátt hefur verið jafn mikið talað undan farin misseri og greindarlausa bloggara.

Reyndir bloggarar eða öllu heldur bloggreynt fólk kann öll tökin á tækninni. Það bloggar um allt og ekkert. Það er ekkert athugavert við það að vera bloggreyndur. Það þýðir ekkert að vera abbó út í bloggreynda sem kunna tökin á tækninni og nota bloggreindina til að fá sem flesta gesti.

Aðalatriðið er samt að vera bloggreindur og misnota ekki bloggið á nokkurn hátt.

Eitt er að vera bloggreindur og annað að vera bloggreyndur. 


Indverska greindarprófið

Einn frægasti slöngu, fíla- og páfagaukakennari Indlands Andgorinoræs Kúsandra fékk dýrin sín til að gera ótrúlegustu hluti og oftar en ekki stóð fólk agndofa að loknum sýningum hans.

Hann hefur um áratuga skeið verið talinn hafa ótrúlegt vald yfir dýrum.

Margir vilja meina yfirnáttúrulegt.

Í áratugi var hann hvattur til að útbúa greindarpróf fyrir menn og loks lét hann verða að því.

Í greindarprófi Kúsandra voru aðeins fimm spurningar og koma þær hér.

1. Er hægt að kenna páfagauki að segja já?

2. Er hægt að kenna páfagauki að segja nei?

3. Er hægt að kenna fíl að leysa ekki vind á meðan sýning stendur yfir?

4. Er hægt að kenna fíl að virka gáfaður, svona út á við?

5. Er hægt að kenna slöngu að taka sig ekki of alvarlega?  


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband