mið. 27.8.2008
Flokksráðsfundur VG
Dagskrá flokksráðsfundar
Flokksráðsfundur Vinstri grænna verður haldinn dagana 29.-30. ágúst næstkomandi í Reykholti. Í flokksráði eiga sæti 30 landsfundakjörnir fulltrúar, allir kjörnir sveitastjórnarfulltrúar, alþingismenn, varaþingmenn, formaður UVG, formenn svæðisfélaga og formenn kjördæmaráða auk þess sem svæðisfélög ungliða eru sérstaklega boðnir. Fundurinn er að öðru leyti opinn öllum félögum í Vinstri grænum. Áherslan að þessu sinni verður lögð á efnahagsmál, sveitastjórnarmál og velferðarmál eins og dagskráin gefur til kynna:
Föstudagur 29. ágúst 2008
16.30 Mæting í Reykholt
17.00 Fundur settur í Snorrastofu. Katrín Jakobsdóttir kynnir drög að ályktunum og stöðu málefnavinnu
17.10 Drífa Snædal kynnir flokksstarf vetrarins
17:20 Efnahagsvandinn leiðir til lausnar, Steingrímur J. Sigfússon
17:50 Sveitastjórnarpólitíkin Karl Tómasson og Svandís Svavarsdóttir
18.20 Létt stund fyrir mat
19.30 Matarhlé
20.15 Almennar stjórnmálaumræður
23.00 Fundi frestað til morguns
Laugardagur 30. ágúst 2008
09.00 Vinnuhópar:
- Evrópu- og efnahagsmál Katrín Jakobsdóttir leiðir umræður
- Velferðarmál Ögmundur Jónasson leiðir umræður
- Sveitastjórnarmál Svandís Svavarsdóttir leiðir umræður
11.00 Umræður og afgreiðsla ályktana
12.00 Fundi slitið - hádegisverður
13.30 Ferð undir leiðsögn um nágrennið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ætlar gamli refurinn Jens Guð að halda titlinum???
Nú eru fimm dagar þar til úrslit liggja fyrir og eins og fyrri daginn er baráttan hörð á toppnum, þó sérstaklega síðustu daga á milli Jens Guð og Láru Hönnu.
Jenný Anna, Ómar Ragnars og Jóna Gísla eru samt en til alls vís, enda öllsömul klárlega verðugir fulltrúar allra góðra bloggara og af heiðrinum mikla.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
P.s. Reynum að skella þessu upp í 2000, þá er þetta með marktækari skoðanakönnunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þetta er eitt af þeim. Snilldar vel samið lag af stúlku sem var aðeins 17 ára þegar hún gerði það.
Þetta er einnig eitt af þeim hjá mér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
fös. 22.8.2008
Urð og grjót
Urð og grjót. Upp í mót. Ekkert nema urð og grjót. Klífa skriður. Skríða kletta. Vera að detta. Hrufla sig á hverjum steini. Halda að sárið nái að beini. Finna hvernig hjartað berst, holdið merst og tungan skerst. Ráma allt í einu í Drottin; - Elsku Drottinn! Núna var ég nærri dottinn! Þér ég lofa því að fara þvílíkt aldrei framar, bara ef þú heldur í mig núna! Öðlast lítinn styrk við trúna. Vera að missa vit og ráð, þegar hæsta hjalla er náð.
Hreykja sér á hæsta steininn. Hvíla beinin. Ná í sína nestistösku. Nafn sitt leggja í tóma flösku. Standa aftur upp og rápa. Glápa. Rifja upp og reyna að muna fjallanöfnin: Náttúruna. Leita og finna eitt og eitt. Landslag yrði lítilsvirði, ef það héti ekki neitt.
| Verða kalt, er kvöldar að. Halda seint og hægt af stað. Mjakast eftir mosatónum. Missa hælinn undan skónum. Finna sig öllu taki tapa: Hrapa! Velta eftir urð og grjóti aftur á bak og nið'r í móti. Leggjast flatur. Líta við. Horfa beint í hyldýpið. Hugsa sér að höndin sleppi. Hugsa sér að steinninn skreppi. Vita urðir við sér taka. Heyra í sínum beinum braka. Deyja áður dagur rynni. Finnast ekki einu sinni.
Koma heim og heita því, að leggja aldrei upp á ný. Dreyma margar næstu nætur hrap í björgum, brotna fætur. Segja löngu seinna frá því; Sjáið tindinn! Þarna fór ég. Fjöllunum ungum eiða sór ég, enda gat ei farið hjá því, að ég kæmist upp á tindinn. Leiðin er að vísu varla vogandi, nema hraustum taugum, en mér fannst bara best að fara beint af augum. Því hversu mjög sem mönnum finnast, fjöllin há, ber hins að minnast, sem vitur maður mælti forðum og mótaði í þessum orðum, að eiginlega er ekkert bratt, aðeins mismunandi flatt.
|
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
fös. 22.8.2008
Menn leggja hart að sér
Þessi mynd var tekin fyrir nokkrum árum af duglegum málurum sem máluðu fyrir mig. Ég man hvað ég var miður mín þegar ég kom að þeim svona útlítandi.
Þeir bara brostu eins og öll Íslenska þjóðin í dag.
Bloggar | Breytt 24.8.2008 kl. 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fös. 22.8.2008
Þeir gerðu það á sinn hátt
Þjóðin er í sigurvímu og eins og Þorgerður Katrín sagði í Kastljósinu í kvöld eru það forréttindi að fá að taka þátt í þessu ævintýri.
Strákarnir gerðu þetta á sinn hátt. Á hátt sem að við höfum ekki átt að venjast fram að þessu móti, fullir af sjálfsöryggi og það sem meira er, að slæmi kaflinn er hættur að sjást. Þeir eru öryggið uppmálað alla leið.
Frank Sinatra þótti nú t.d. seint vera talinn annað en öryggið uppmálað, hann átti svör við öllu, alltaf. Bæði á sviði, í söng sínum og jafnframt utan sviðs.
Í þessu myndbandi sést t.d. glögglega þegar hann syngur eitt af sínum þekktustu lögum hverslags yfirburða sviðsmaður og listamaður hann var, hreint stórkostlegur söngur og flutningur.
Áfram Ísland.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
fös. 22.8.2008
Já!!!
Við sjáum einn sigur enn
þar vinna víst okkar menn.
Við höfum allt og meira til,
fjandann í salt okkur í vil.
Tralallala la lallala.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
fös. 22.8.2008
Hvers eiga börnin að gjalda?
Svona uppákomur eins og þessi nýjasta í Kína, þar sem því er nú jafnvel haldið fram að rangt sé farið með aldur eins keppenda eru alltaf jafn leiðinlegar. Vonandi reynist stúlkan eða öllu heldur barnið vera á þeim aldri sem haldið er fram.
Eða þegar litla stúlkan sem söng við setningu ólimpyuleikanna fékk ekki að vera með.
Hvers eiga blessuð börnin að gjalda.
![]() |
IOC rannsakar aldur fimleikastúlku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kæru bloggvinir og aðrir gestir.
Baráttan er hörð á toppnum í kosningu um besta bloggara Íslands. Nú hefur gamli refurinn Jens Guð tekið forystuna af Láru Hönnu og eins og fyrr eru Jenný Anna, Ómar Ragnars og Jóna Á Gísla öll í hnapp í baráttunni.
Athugið að þann 31. ágúst kl 21: 00 verða úrslit gerð kunn.
Endilega takið þátt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fim. 21.8.2008
Birna og Bjartur
Þá er sumarfríi hjá flestum lokið og á morgun verða skólasetningar um land allt. Ég held að hápunktur sumarsins hjá Birnu hafi verið vikan sem nú er að líða, þrátt fyrir Spánarferð og heilmikla reisu okkar um landið.
Birna eignaðist nýjan vin á reyðnámskeiði sem hún hugsar um öllum stundum. Það er hann Bjartur gamli.
Birna er mikill dýravinur og í ferð okkar með Særúnu í sumar þar sem farþegum bauðst að smakka á nýveiddum skelfiski, ígulkerum og fleira góðgæti stóð hún að mestu í björgunaraðgerðum. Tók alla krossfiska og krabba og henti þeim rakleiðis aftur í sjóinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)