Jens Guð, besti bloggari Íslands

Jens GuðBesti bloggari Íslands 2007 hefur verið kosinn með glæsibrag.

Ég held að við getum öll verið sammála um að hann sé vel að tittlinum kominn. Einlægur, fróðlegur, skemmtilegur og líflegur bloggari sem hefur tekið á málum líðandi- og gamalla stunda á eftirtektarverðann hátt. Laus við alla tilgerð og uppskrúfaðann texta.

Fyrir hönd allra kjósenda óska ég þér til hamingju með titilinn besti bloggari Íslands Jens Guð. Þú ert sannarlega vel að tittlinum kominn.

Hér eftir ætla ég að gera þetta að árlegum viðburði á minni bloggsíðu sama hvað hver segir og hverjum finnst. Í mínum huga er bloggið vettvangur skoðanaskipta þar sem allir fá tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum og þankagangi á framfæri. Bloggið er frelsi en við verðum líka að kunna að fara vel með það og vanda okkur. Auðvitað er þetta allt saman í gamni gert og þeir sem taka því ekki þannig verða að eiga það við sig sjálfa.

Verðlaunin sem besti bloggari Íslands fær að þessu sinni er leirlistarverk eftir eina bestu og færustu leirlistarkonu landsins Þóru Sigurþórsdóttur. Mynd af afhendingu verksins verður birt á bloggsíðu Jens Guð eftir viku.

Ég þakka öllum sem tóku þátt og síðast en ekki síst átta sig á því að einn að stóru göldrum lífsins er að taka því ekki of alvarlega.

Hér á eftir kemur splunku nýtt viðtal við Jens Guð.

Jens hvar ert þú fæddur?

Mér er sagt að ég hafi fæðst 8. maí 1956. Þetta hef ég eftir sannsöglu fólki.

Hvernig voru æsku árin?

Ég ólst upp sem kinda-  og kúreki norður á Hrafnhóli, í útjaðri Hóla í Hjaltadal. Nokkur sumur hjálpaði Valdimar Leo Friðriksson mér við kúreksturinn. Önnur sumur fékk ég hjálp við það frá Þórði Bogasyni, söngvara. Þú þekkir þá báða Kalli Tomm, held ég. Innskot. Já ég geri það, góðir drengir báðir tveir. 

Nám og fyrri störf Jens, getur þú frætt okkur um þau?

Já, frá og með 3ja bekk í gaggó hef ég haldið mig á suðlægum slóðum. Eftir gaggó fór ég í Myndlista-  og handíðaskóla Íslands. Þaðan útskrifaðist ég sem auglýsingateiknari.

Áhugamál þín Jens, hver eru þau?

Þegar ég var kominn suður fyrir heiðar uppgötvaði ég að Þórður Bogason, síðar söngvari og vinur Billa Start, var rótari hjá hljómsveitum Péturs Kristjánssonar. Pétur var skær poppstjarna og ég hafði dálæti á hljómsveitum hans. Ég slæddist með Þórði á æfingar og dansleiki hjá hljómsveitunum. Pétur sýndi mér strax mikla vinsemd og við urðum góðir vinir. Pétur fékk mig til að hanna merki fyrir hljómsveitirnar sínar, teikna auglýsingar og fleira. Það þótti unga sveitastráknum mikil upphefð.

Hver eru viðfangs efni þín í seinni tíð?

Eftir að ég útskrifaðist frá MHÍ vatt mér í auglýsingabransann. Átti lengi auglýsingastofu með fleirum. Einnig stofnaði ég pönk-plötubúð með Sævari Sverrissyni, söngvara og frænda mínum.  Búðin hét Stuð og var mjög vinsæl. Enda mikið stuð. Þar spiluðu pönkhljómsveitir iðulega á föstudögum. Síðar selflutti ég plötudæmið yfir í plötuútgáfu og verslun sem hét Gramm. Það var mikið veldi á tímabili. Við gáfum út söluhæstu plötur Bubba og Megasar auk annarra. Það munaði öllu að ég hannaði markaðssetningu á plötunum, teiknaði umslögin og það allt saman. Öll helstu jaðar rokkböndin voru hjá Gramminu. Þar á meðal liðið sem stofnaði Sykurmolana. Við fluttum líka inn helling af útlendum hljómsveitum. Ég tapaði slatta af peningum á því. Sem var ágætt.  Annars hefði ég eytt þeim í vitleysu. Innskot Kalla Tomm, Grammið dreifði m.a. út fyrstu plötu Gildrunnar, Huldumönnum. Það er ófáanlegur safngripur í dag eingöngu til á vínil.

Ég þykist vita að við fleiri verkefni hafir þú fengist Jens. Hver eru þau?

Einhverntímann tók ég þátt í að setja upp útvarpssöð, Útvarp Rót. Þar gegndi ég titlinum tónlistarstjóri. Lengst af var ég alltaf með annan fótinn í blaðamennsku. Skrifaði um poppmúsík fyrir allt upp í 12 blöð samtímis. Einnig gaf ég sjálfur út poppblöð og skrifaði Poppbókina. Ég hef stússað í mörgu fleiru. Ég man ekki helminginn af því. 

Hvað með skrautskriftina Jens, þú hefur getið þér góðs orð fyrir hana.

Í 27 ár hef ég kennt skrautskrift. Næstum jafn lengi hef ég verið með innflutning og heildsölu. Ég rak einnig um tíma heilsubúð. Núna er ég aðallega með heilsusnyrtivörur í heildsölu. Þekktasta merkið er Banana Boat.

Hver er Jens Guð í stuttu máli?

Ég er öfgakall í músíkviðhorfum. Þoli illa iðnaðarkennt léttrokk. Ég vil hafa rokkið sem þyngst og harðast. Hljómsveitir eins og Mínus,  I Adapt,  DYS,  Forgarðurinn og Skátar eru í uppáhaldi.   Reyndar er ég líka djassgeggjari. Svo er ég stöðugt að hjálpa færeysku tónlistarfólki að ná athygli hérlendis. Það gengur vel.

Ég lærði agaðan söng í nokkur ár. En hlusta ekki mikið á óperur. Bara smá. Ég hef sungið með nokkrum hljómsveitum í áranna rás. En engri frægri. Einnig söng ég um tíma við píanóundirleik léttklassískar aríur. Mér þótti það ekki nógu gaman.

Takk fyrir spjallið Jens Guð, besti bloggari Íslands og til hamingju minn kæri.

Kalli Tomm.


Besti bloggari Íslands

Nú er aðeins sólarhringur þar til kosningu um besta bloggara Íslands líkur. Þátttaka hefur verið góð og vil ég meina að heiðarleiki og góður andi hafi ríkt á meðal keppenda og þátttakenda í kosningunni.

Það fer ekki á milli mála eins og staðan er nú þegar þetta er skrifað að tveir mætir bloggarar, Jens Guð og Gurrihar hafa vænlega stöðu þegar aðeins sólarhringur er til stefnu en margt getur gerst á enda sprettinum. Úrslit verða gerð kunn klukkan 22 annað kvöld.


Gildran í Hlégarði

GildrufélagarÁrlegur stórdansleikur foreldrafélagsins Þruma og eldinga verður í Hlégarði í kvöld.

Tilefnið er auðvitað vegna bæjarhátíðarinnar Í túninu heima. Ég skora á alla sem vettlingi geta valdið að koma í Hlégarð í kvöld. Þetta er stóra ballið í Mosó.

Myndin er tekin af okkur félögum fyrir bókstaflega 11 árum síðan í stúdíóinu, Stöðinni. Þá vorum við í upptökum á geisladisk okkar Gildran í 10 ár.

 Diskurinn er ófánlegur í dag en í spilaranum mínum er lag sem heitir Fiðringur, lagið er eftir Bigga og textinn K. Tomm.

Sjáumst í Hlégarði í kvöld. Hinn vinsæli dúett Hljómur hitar upp eins og endranær.  


Allir í Mosó!!!

 

Setning hátíðarinnar Í túninu heima:

19:45

Yfir íþróttasvæðinu að Varmá:

Magnús Norðdal listflugmaður sýnir kúnstir í háloftunum

20:00

Dagskrá í Íþróttahúsinu að Varmá

Setningarávarp Ragnheiðar Ríkharðsdóttur bæjarstjóra

Heiðursborgari Mosfellsbæjar heiðraður

Ávarp forseta bæjarstjórnar Karls Tómassonar

Tríó Björns Thoroddsen og Andrea Gylfadóttir

Skrúðganga út í brekkur

Dagskrá í Ullarnesbrekkum

Varðeldur tendraður

Björgvin Franz Gíslason skemmtir

Eldblástur ▪ Stomp

Dúettinn Hljómur leiðir brekkusöng

Skátar úr Mosverjum selja heitt kakó

Kyndlar tendraðir í lok dagskrár

Bílastæði við íþróttahús, Hlégarð og Brúarland

Göngustígur liggur meðfram Varmá, yfir göngubrú og að dagskrársvæði

ATH: Engin umferð bíla er leyfð inn á svæðið


Að eignast bloggvin/óvin

Það er merkilegt að eiga vin án þess að hafa nokkru sinni séð viðkomandi eða heyrt. Verra er ef maður er skyndilega orðin bloggóvinur einhvers, svo ekki sé nú talað um ef það er allt á misskilningi byggt. Jafnvel misskilinn brandari sem maður áætlaði auðskiljanlegan og bráðfyndnan getur skyndilega gert mann að bloggóvini og maður fær ekki rönd við reyst.

Sumir bloggarar eru skammaðir alveg lifandi býsn fyrir það setja athugasemdir við fréttablogg sem eru t.d. bara, frábært, ótrúleg lesning, þvílíkt og annað eins. Ég ætla svo sem ekkert að leggja mat mitt á slíkar athugasemdir, enda er mér nokk sama.

Ég er hræddur um að ég myndi seint agnúast út í einhvern bloggara sem kæmi reglulega inn á mína síðu og segði eftir hverja færslu, frábært, frábær lesning, ótrúlegur penni, þvílík skrif.

Sá hinn sami væri sannur bloggvinur minn.


Hátíð í bæ

Við Mosfellingar sem fögnuðum 20 ára afmæli bæjarins 9. ágúst s.l. höldum nú áfram hátíðarhöldum um næstu helgi. Nú er komið að okkar árlegu bæjathátíð sem ber heitið, Í túninu Heima.

Ég vona að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í fjörinu með okkur. Hér fyrir neðan má sjá fjölbreytta dagskrá hátíðarinnar.

Fimmtudagur 23. ágúst 2007

Íþróttavöllurinn að Varmá: kl. 20:30 Mosfellsbær býður bæjarbúum til útitónleika í tilefni af 20 ára afmæli bæjarins

Stuðmenn og Gildran leika

Björgunarsveitin Kyndill sér um öryggisgæslu og skátarnir selja heitt kakó.

Föstudagur 24. ágúst 2007

Bókasafn Mosfellsbæjar í Kjarna kl. 10:00 Möguleikhúsið sýnir leikritið Langafi drullumallar fyrir 4 ára börn úr leikskólum Mosfellsbæjar

Íþrótta og útivistardagur barna: Dagskrá unnin af kennurum grunnskóla Mosfellsbæjar

Hljómsveitir á vegum félagsmiðstöðvar bæjarins leika í sal Varmárskóla

13:00 -17:00

Listasalurinn í Kjarna: Mosfellingar samtímans. Bæjarblaðið Mosfellingur sýnir fjölda ljósmynda í eigu blaðsins í tilefni af 5 ára afmæli

16:00

Bærinn skreyttur í 4 litum

Bæjarbúar hvattir til að skreyta bæinn í 4 litum eftir hverfum. Mosfellsbæ verður skipt upp í fjóra hluta og hefur hver hluti sinn sérstaka lit (gulur, rauður, grænn eða blár)

Höfðar, Hlíðar, Tún og Mýrar - gulur

Tangar, Holt og Miðbær - rauður

Teigar, Lönd, Ásar, Tungur og Dalur - grænn

Reykjahverfi - blár

17:00

Bæjarleikhúsið:

10 - 12 ára leikarar Leikfélags Mosfellssveitar sýna spunasöngleikinn Ofviðrið á svið

Setning hátíðar:

19:45

Yfir íþróttasvæðinu að Varmá:

Magnús Norðdal listflugmaður sýnir kúnstir í háloftunum

20:00

Dagskrá í Íþróttahúsinu að Varmá

Setningarávarp Ragnheiðar Ríkharðsdóttur bæjarstjóra

Heiðursborgari Mosfellsbæjar heiðraður

Ávarp forseta bæjarstjórnar Karls Tómassonar

Tríó Björns Thoroddsen og Andrea Gylfadóttir

Skrúðganga út í brekkur

Dagskrá í Ullarnesbrekkum

Varðeldur tendraður

Björgvin Franz Gíslason skemmtir

Eldblástur ▪ Stomp

Dúettinn Hljómur leiðir brekkusöng

Skátar úr Mosverjum selja heitt kakó

Kyndlar tendraðir í lok dagskrár

Bílastæði við íþróttahús, Hlégarð og Brúarland

Göngustígur liggur meðfram Varmá, yfir göngubrú og að dagskrársvæði

ATH: Engin umferð bíla er leyfð inn á svæðið

Laugardagur 25. ágúst 2007

10:00 - 13:00

Íþróttamiðstöðin að Varmá: Regnbogahlaupið.  Mannræktin ATORKS skipuleggur hringhlaup á fellin fjögur umhverfis Mosfellsbæ (Helgafell, Reykjafell, Reykjaborg og Úlfarsfell). Gert er ráð fyrir þremur klukkustundum á þá sem eru í góðri þjálfun.  Hægt er að fá orkudrykk á toppnum á hverju felli

11:00 - 13:00

Flugvöllurinn Tungubökkum: Módeldflugáhugamenn setja vélar sínar á loft ef veður leyfir

11:00 - 18:00

Stekkjarflöt: Skátafélagið Mosverjar Ratleikur fyrir alla aldurshópa með léttum þrautum, veitingar, grín og glens fyrir fólk á öllum aldri

Golfvöllur - Hlíðarvöllur: Púttflatir Golfklúbbsins Kjalar opnar fyrir alla sem langar að prófa að pútta. Í klúbbhúsinu eru veittar nánari upplýsingar

Ratleikur á hestum: Ræst verður í Laxnesi kl. 11.00. Riðið um Katlagil, þar sem silfur Egils Skallagrímssonar er falið og þaðan yfir Mosfellið, niður bakka Leirvogsár og komið í mark við Harðarból. Vegleg verðlaun í bæði unglingaflokki og meistaraflokki

Skráning í Þjónustuveri Mosfellsbæjar og lýkur henni miðvikudaginn 22. ágúst

Íþróttasvæðið að Varmá: Fló og fjör heldur flóamarkað í tjaldi við Íþróttamiðstöðina. Allt á að seljast, klinkið í fullu gildi

12:00 - 16:00

Álafosskvos: Varmársamtökin með útimarkað. Seld verður fersk lífræn matvara, blóm og handverk ásamt því að boðið verður upp á veitingar og ýmsa skemmtan

12:00 - 17:00

Útimarkaður Mosskóga í Mosfellsdal. Grænmeti frá Mosskógum, silungur frá Heiðabæ, rósir frá Dalsgarði o.fl. o.fl.

13:00 - 17:00

Listasalurinn í Kjarna: Mosfellingar samtímans. Bæjarblaðið Mosfellingur sýnir fjölda ljósmynda í eigu blaðsins í tilefni af 5 ára afmæli

13:00 - 18:00: Sýningarhöll

Íþróttahúsið að Varmá: Fyrirtæki, klúbbar, félagasamtök og einstaklingar kynna starfsemi sína. Ýmislegt í boði m.a. hestaferð, teymt undir börnum - hoppkastali o.fl.

Ferðasafn stærðfræðisafnsins Mathematikum frá Þýskalandi: Safnið hefur verið sett upp víða um heim og þar er að finna verkefni og þrautir af ýmsum toga. Þar getur fjölskyldan fundið viðfangsefni við sitt hæfi. Sýningin er í Íþróttamiðstöðinni að Varmá

 

Komið að dansa" - Hópur fjörugra dansáhugamanna hvetur gesti til að dansa með

Dagskrá á hátíðarsviði í sýningarhöll:

Kl. 13:30 Álfarnir Þorri og Þura skemmta börnum.

Kl. 14:00  Hljómsveitir frá Félagsmiðstöðinni Bólinu stíga á svið

Kl. 15:00  Ragnar Bjarnason ásamt kvartet Reynis Sigurðssonar. Gestur Ragnars verður Björgvin Halldórsson

Kl. 16:30  Fimleikasýning fimleikadeildar UMFA.

Kl. 17:00  Leikfélag Mosfellssveitar með dagskrá

13:00 - 18:00:

Borhola 13" - Mosfellsbær er uppspretta heita vatnsins!

Orkuveita Reykjavíkur með opið hús í dælustöðinni við Dælustöðvarveg í Reykjahverfi

14:00

Varmárvöllur: Hundasýning : Hundaræktunarfélag Íslands

15:30 & 17:00

Gljúfrasteinn:

„... og fjöllin urðu kyr"

Hátíðardagsskrá í tilefni 20 ára afmælis Mosfellsbæjar

Bjarki Bjarnason og Sigurður Ingvi Snorrason hafa tekið saman dagsskrána sem er fléttuð úr tónlist, sögum og veruleika úr Mosfellsbæ og -sveit fyrr og síðar, m.a. séð með augum Nóbelskáldsins. Flytjendur: Eyjólfur Eyjólfsson, Sigurður Ingvi Snorrason, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Hávarður Tryggvason, Bjarki Bjarnason og Þórunn Lárusdóttir

15:45 - 16:00

Flugklúbbur Mosfellsbæjar: Hópflug yfir hátíðarsvæðið

16:00

Verðlaunaafhending og tilnefning:

Sigurvegari í unglingaflokki og meistaraflokki í ratleik hestamanna

Litaglaðasti bæjarhluti Mosfellsbæjar tilnefndur

Afhending umhverfisviðurkenninga

16:17

Ólympíuleikar Mosfellsbæjar: Starfsmenn fyrirtækja keppa í ýmsum þrautum með ólympísku ívafi

18:00

Götugrill: Íbúar Mossfellsbæjar halda götugrill í vel skreyttum götum bæjarins

23:30

Hlégarður: Stórdansleikur Þruma og eldinga

Hljómsveitin Gildran leikur fyrir dansi

Sunnudagur 26. ágúst

13:00 - 17:00

Íþróttahúsið að Varmá: Fyrirtæki, klúbbar, félagasamtök og einstaklingar kynna starfsemi sína. Ýmislegt í boði m.a. hestaferð, teymt undir börnum - hoppkastali o.fl.

Ferðasafn stærðfræðisafnsins Mathematikum frá Þýskalandi: Sýning heldur áfram frá deginum á undan

Borhola 13" - Mosfellsbær er uppspretta heita vatnsins!

Orkuveita Reykjavíkur með opið hús í dælustöðinni við Dælustöðvarveg í Reykjahverfi

Fornbílaklúbbur Íslands: Fornbílar félagsmanna í FBÍ verða til sýnis við Íþróttahúsið að Varmá

Golfklúbburinn Kjölur: Unglingaeinvígið í Mos nú haldið í þriðja sinn og er sem fyrr um að ræða boðsmót þar sem fimm stigahæstu drengjum og þremur stigahæstu stúlkum í öllum aldursflokkum á Kaupþings-mótaröð GSÍ, að loknum fjórum mótum er boðin þátttaka.

10 keppendur hefja leik í hverjum aldursflokki og leikið frá rauðum teigum að hvítum og frá fyrstu holu til sjöundu, en þá standa eftir þrír keppendur í hverjum aldursflokki sem leika einvígi ásamt sigurvegaranum frá því í fyrra 

14:00

Bæjarleikhúsið:

Leiksýning Leikfélags Mosfellssveitar. 13-16 ára leikarar Leikfélags Mosfellssveitar sýna leikritið Ofviðrið eftir Shakespeare

Dagskrá á hátíðarsviði í sýningarhöll:

Kl. 13:30 Álfarnir Þorri og Þura skemmta börnum

Kl. 14:00  Fimleikasýning fimleikadeildar UMFA

Kl. 14:30  Álafosskórinn - Stjórnandi: Helgi R. Einarsson

Karlakór Kjalnesinga - Stjórnandi: Páll Helgason

Kammerkór Mosfellsbæjar - Stjórnandi: Símon H. Ívarsson

Mosfellskórinn - Stjórnandi: Páll Helgason

Reykjalundarkórinn - Stjórnandi: Íris Erlingsdóttir

Vorboðarnir - Stjórnandi: Páll Helgason

Samsöngur kóranna við undirleik Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar. Stjórnandi: Daði Þór Einarsson

Kl. 16:00  Hin vinsæla hljómsveit Sprengjuhöllin leikur í boði OR

Kl. 17:00  Formlegri dagskrá í íþróttahúsi lokið

13:00 - 16:00

Við íþróttahúsið að Varmá: Leikskólabörn með dagskrá ?????????

17:00 Dagskrárlok !

Góða skemmtun!

 


Hressing 2


Smá hressing


Þjóðarleikvangur

Nú standa yfir stórtónleikar á þjóðarleikvanginum á Laugardalsvelli. Því miður komst ég ekki, ég hef öðrum hnöppum að hneppa þetta kvöldið. Ég á nefnilega afmæli í dag.

Það hefur vakið athygli mína að heyra hversu ríka áherslu allir fjölmiðlamenn hafa lagt á að tala um þjóðarleikvangin. Ég er nokkuð ánægður með þetta nýja heiti. Hver kannast ekki við þjóðaleikvang Dana, Parken.

Þetta er bara töff og miklu virðulegra, enda slegið aðsóknarmet með de samme.


mbl.is Aldrei fleiri á Laugardalsvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin Elvis aldrei Bítlar

Þetta sagði John Lennon. Við þetta má svo bæta að ef Bítlarnir hefðu ekki komið á sjónarsviðið þá hefðu hljómsveitirnar Guð má vita hversu margar aldrei orðið til.

Er þetta ekki allt fyrir fram ákveðið?


mbl.is Elvis lifir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband