þri. 31.7.2007
Vellíðan í marga daga á eftir
Þarna er lausnin fundin, loksins. Hvern dreymir ekki um vellíðan í marga daga á eftir góðri líkamsrækt í hvaða formi sem hún er? Fram að þessu hafa flestir talið það gott að finna muninn í einhverja klukkutíma. Nú er bara að skella sér beint út í djúpu eða djúpa og byrja að synda.
Samkvæmt reyndum sjósunds mönnum er um margra daga sælu að ræða eftir góðan sprett.
Á forsíðum allra blaða í dag voru myndir af harðduglegu sjósundsfólki sem þreytti Viðeyjarsund í gær. Hátt í 40 manns tóku þátt.
Nú er bara að endurtaka leikinn að ári og fá í það minsta 100 þátttakendur. Ég skal vera á bátnum sem togar upp þá sem eru að drukkna, frjósa úr kulda eða drepast úr hræðslu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
mán. 30.7.2007
Eins og bloggið er gott og gefandi
Eins og bloggið er gott, gefandi og fræðandi þá er það líka því miður ómögulegt.
Ég hef oft hugsað um það hvað það er gaman og gefandi að fá tækifæri til að lesa þankagang fólks á blogginu. Samlanda sinna af öllum stærðum og gerðum. Fólks sem óhrætt og þorir að tjá sínar skoðanir á hinum ólíklegustu málefnum og taka um leið við gagnrýni á skrif sín í athugasemdum.
Á blogginu situr engin á hliðarlínunni. Þúsundir manna lesa bloggið á hverjum degi og marga þeirra dreymir eflaust um að blogga en treysta sér ekki til.
Í frelsinu felst ábyrgð og ef ábyrgðin er virt að vettugi er frelsið ekki lengur frelsi. Þegar frelsið er farið að bitna á öðrum er það heldur ekki lengur frelsi.
Kæru bloggarar vöndum okkur, stökkvum ekki upp til handa og fóta um leið og við sjáum og lesum frétt á Mbl eða á öðrum vettvangi.
Lifið heil. Kalli Tomm.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
sun. 29.7.2007
Yfirburðir
Hvenær verður þetta toppað? Það var ekki uppselt þegar hann kom til Íslands.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
lau. 28.7.2007
Hettuþjófar á ferð
Ég varð fyrir því öðru sinni nú í vikunni að vera rændur af hettuþjófum. Ég fæ engan botn í áráttuna hjá þjófunum. Hvurn skrattann gera þeir við hetturnar? Eða er þetta bara stríðni góðra vina? Ef svo er. Mikið ósköp láta þeir líða langt á milli prakkarastrikanna.
Í dag eru þessar hettur náttúrulega með öllu óþarfar. Ventlar dekkja halda orðið 100 % og það er liðin tíð að sjá dekkjaverkstæðismenn hrækja á puttann á sér og slengja slummunni á ventilinn. Það er samt notalegt að vita af hettunum, enda fer maður að verða einn af þeim sem eru af gamla skólanum og vill hafa allt á sínum stað. Ventlahettur spila þar m.a. stóra rullu.
Mér hefði óneitanlega liðið betur með hetturnar á ferð minni um Mývatnssveit í vikunni, næst fallegustu sveit landsins. Þetta voru nú engar gúmmíhettur eins og á Velamos hjólinu mínu.
Nei!
Þetta voru alvöru stálhettur, svona rétt til að réttlæta áhuga þjófanna eða stríðnispúkanna á þeim.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
sun. 22.7.2007
Greindarprófið fræga, seinni kafli
Nú er komið að seinni kafla greindarprófs Helmuth Stalh, prófessornum þýska sem vakti óhemju athygli og er enn af mörgum prófessorum talið eitt merkasta greindarpróf seinni tíma. Sjálfur sagði hann þessar seinni tvær spurningar aðeins á færi ofurgreindra að svara rétt.
1. Hvernig er hægt að breyta hring í tvo þríhyrninga an þess að klyppa hann í sundur?
2. Hvað nær hljóðið langt?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
sun. 22.7.2007
Greindarprófið fræga
Einn frægasti prófesor Þýskalands Helmuth Stalh setti saman próf sem er að mörgum talið eitt merkilegsata gáfnapróf sem fundið hefur verið upp. Prófið samanstóð aðeins af þremur spurningum og tveimur getraunum ef svo má að orði komast.
1. Hvernig geta þrír þríhyrningar myndað hring?
2. Á sjórinn takmörk einhversstaðar?
3. Eru litirnir óendanlegir?
1. Tveir froskar hlaupa 1 km á dag. Hver var meðal hraðinn?
2. Spilastokkurin er 52 spil. Hvað er hægt að endurtaka leikinn oft?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
fös. 20.7.2007
Hann hafði sannarlega rétt fyrir sér
Kæru bloggvinir og aðrir lesendur.
Þá er bókstaflega frábærri ferð fjölskyldu minnar til Köpen lokið. Við erum komin heim á skerið.
Alltaf verð ég jafn snortinn þegar vélin er lent og í hátalarakerfi vélarinnar er sagt: Velkomin heim til Íslands. Ég veit að þetta er svakalega væmið en ég veit líka að þetta hefur svo mikil áhrif á mig vegna minnar slæmu flughræðslu. Léttirinn er óbærilegur þegar vélin er lent.
Einu sinni gerði okkar frábæri grínisti Jón Gnarr það að umtalsefni sínu í uppistandi til hvers við værum látin læra dönsku í grunnskóla. Hann hafði sannarlega rétt fyrir sér að það væri með öllu tímasóun og tómt rugl. Ég komst endanlega að því í ferðinni að þetta eru orð að sönnu.
Í gamla daga talaði ég dönsku upp á tíu enda bjó ég í landi frænda vorra í eitt ár. Auðvitað gerði ég mínu fólki grein fyrir því áður en upp í ferðina var lagt að þau gætu algerlega treyst á mína dönskukunnáttu ef eitthvað kæmi upp, þessum orðum treysti fjölskylda mín að sjálfsögð og hafði engar áhyggjur. Þegar við vorum lent í Köpen var ákveðið að fá sér hressingu og auðvitað sá ég um að panta fyrir mannskapinn.
Ég byrjaði á því að panta tvo kaffi. Þá sagði kellan á flugstöðinni: Ha?!, Já sagði ég, to kaffi og aftur sagði hún: ha?. Það var ekki fyrr en ég sagði kaffeeee að hún áttaði sig. Mínu fólki var skemmt.
Verra var þegar ég pantaði í ferðinni einn pakka af Kent sígarettum. Auðvitað bað ég bara um Kent. Va mener du?. Kent síkaretten sagði ég. Va mener du sagði kall fíflið aftur. Þá reyndi ég að breyta framburðinum og sagði Kunt, ekki gekk það, þá sagði ég Kint, ekki gekk það, þá sagði ég Kunte. Aldrei fattaði kallinn neitt og fólkið fyrir aftan mig orðið pirrað og ég líka, ekki síst vegna hlátraskallanna í kellu minni og börnum sem glumdu um alla búð. Hvernig í fjáranum á að bera Kent fram á dönsku? Getið þið sagt mér það? Ég átti bara eftir að segja Kunta Kinte.
Það er gersamlega óþolandi að fara til Köpen og telja sig frábæran dönskukunnáttumann og vera nýbúinn að gera öllum fjölskyldumeðlimum grein fyrir því en geta ekki pantað kaffi, sígarettur, brauð eða beðið um reikninginn öðruvísi en að enda á því að tala táknmál með alla hlæjandi í kringum sig.
Ég mæli samt með Köpen, þangað er alltaf jafn gaman að koma.
Eigið góðar stundir.
Bloggar | Breytt 21.7.2007 kl. 01:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
fös. 6.7.2007
Verður þetta einhverntíma toppað?
Í dag er hálf öld frá því að samstarf þeirra hófst og enn eru þeir langbestir. Verður þetta einhverntíma toppað? Ég bara spyr.
Ég fór á tónleika með Paul fyrir fjórum árum síðan, það var algerlega ólýsanlegt. Með góðri samvisku skora ég óhræddur á alla að gera sér ferð til að sjá hann, þess vegna til Ástralíu. Kallinn eldist eins og aðrir þrátt fyrir að lög hans og þeirra félaga eldist ekkert og virðist með öllu ódauðleg.
Þetta myndband er frábært svo ekki sé nú talað um lagið. Trommuleikur Ringo Star er frábær í laginu. Takið eftir þegar hann virðist vera að ná einhverjum matarleifum með tungunni úr tönnunum. Sennilega hefur hann verið nýbúinn að borða rækjusamloku.
Hafið það öll gott í fríinu, ég mátti til að skjóta þessari færslu inn. Bestu kveðjur.
Bloggar | Breytt 7.7.2007 kl. 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)