Nýr heimur, ný sýn!!!

Ég hef trú á því, sannarlega!!!

 


Þegar nær dregur hausti

Sagt er að Fossinn sé aldrei fegurri en einmitt þegar nær dregur hausti. Litadýrðin, angan og dulúðin þykir einnig með meira móti yfir honum á þessum tíma.

Foss síðsumars


Ósanngjörn umræða um Bubba Morthens

BubbiSú umræða sem átt hefur sér stað vegna ummæla Bubba Morthens í Morgunblaðinu um síðastliðna helgi hefur á margan hátt verið með ólíkindum og vakið hjá mér mikla furðu. 

Hún hefur einkennst af heift, afbrýðisemi og misskilningi að ég held.

Í viðtalinu leyfði hann sér að varpa fram þeirri skoðun sinni að jafnvel hefði verið nær hjá Björk og Sigurrós að halda tónleika fyrir bágstadda Íslendinga í stað þess að vekja athygli á umhverfismálum.

Ég álít að Bubbi hafi þar varpað fram af einlægni skoðun sinni á málefnum þeirra sem minna meiga sín í íslensku samfélagi burt séð frá öllum pólitískum þankagangi, hlutabréfaviðskiptum eða viðhorfi sínu til umhverfismála sem ég efa ekki að eru honum hugleikin. Bubbi hefur örugglega einhverntíman spilað á tónleikum til styrktar umhverfinu, rétt eins og Björk til styrktar bágstöddum. 

Bubbi Morthens hefur í áratugi fært okkur tónlist og texta sem eiga eftir að lifa með þjóðinni um ókomna tíð.

Hann hefur farið fleiri hringi í kringum landið en nokkrir aðrir tónlistarmenn og sjaldan sleppt úr fámennustu byggðarlögum.

Gleymum því ekki.    


Takk fyrir frábæra samveru kæra frændfólk og aðrir gestir á ættarmótinu

Mikið var þetta yndisleg helgi hjá okkur frændsystkinum og ættingjum á Hvammstanga. Til hamingju öll og takk fyrir. Þessi helgi gleymist aldrei.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm, Línu, Óla, Erlu og Birnu.

Hér koma nokkrar myndir en þetta er bara brot af þeim sem teknar voru og án vafa eiga eftir að koma fleiri á ættarmótssíðuna síðuna okkar innan skamms.  

Picture 1734

Picture 1735

Picture 1737

Picture 1739

Picture 1730

Picture 1740

Picture 1744

Picture 1748

Brúó

Picture 1750

Picture 1755

Brú 1 +

Brú 2 +

Halla

Brú 3 +

Brú 4 +

Picture 1762

Picture 1765

Brú 5 +

Picture 1767

Picture 1770

Picture 1772

Picture 1773

Picture 1780

Picture 1789

Picture 1796

Picture 1802

Picture 1805

Picture 1820

Picture 1814

Picture 1817

Brú 1

Brú 2

Brú 3

Brú 4

Brú 8

Brú 9

Brú 10

Brú 11

Brú 12

Picture 1732

Picture 1738

Picture 1741

Picture 1750

Picture 1751

Picture 1752

Picture 1754

Picture 1756

Picture 1760

Picture 1762

Picture 1772

Picture 1777

Picture 1798

Picture 1799

Picture 1800

Picture 1803

Picture 1812

Picture 1818

Picture 1823

1

2

3

4

5

6

Brú 5

Brú 6

 

 


Hvaða foss er þetta? Hann er af mörgum talinn formfastastur þeirra allra

Síðsumars

Ég skrifaði um listamanninn Stórval nýlega. Hann ásamt föður sínum glímdi oftar við fjallið Herðubreið með pensli sínum en nokkrir aðrir listamenn. Ég sagði í sömu skrifum að ég vissi um annan listamann sem hefði um árabil haft aðeins eitt viðfangsefni með penslum sínum eða skriffærum.

Óhætt er að segja að myndin Klakabönd sé þeirra þekktust. Hér kemur mynd af sama viðfangsefni listamannsins sem nefnist. Síðsumars.

 er spurt, hvert er viðfangsefnið???


Síðan eru liðin 20 ár

Huldum 10 ++ copy

Hugarfóstur

Um þessar mundir eru liðin 20 ár frá því að við félagarnir og vinirnir í Gildrunni gáfum út okkar fyrstu plötur. Systurplöturnar tvær, Huldumenn og Hugarfóstur. Þær eru báðar ófáanlegar í dag. Huldumenn kom einungis út á vínil en Hugarfóstur einnig á CD.

Mikið voru þetta skemmtilegir tímar og góður félagsskapur. Vinátta sem risti djúpt og aldrei gleymist á meðal okkar allra sem að Gildrunni komu. 

Vinkona mín Hjördís Kvaran skrifaði ritgerð í HÍ um texta Gildrunnar (Þóris Kristinssonar) og tek ég mér það bersaleifi að birta brot úr henni hér. Textar við lög hljómsveitarinnar vöktu mikla athygli og var talsvert um þá skrifað í fjölmiðlum.

Rjóður og heiðin

Haft eftir Þóri í ritgerð Hjördísar. “Báðar þessar plötur voru algjörlega unnar í Rjóðri og allnokkrir textar Þóris eru samdir um heiðina þeirra og Rjóður. Rjóður var sumarbústaður sem var æfingahúsnæði Gildrunnar á Kjalarnesi uppvið Mosfellsrætur. Þangað var iðulega lagt í miklar svaðilfarir, nánast upp á líf og dauða á hálfaflóga Benz-kálfi sem þeir áttu:

„Þetta var heiði sem við þurftum að fara yfir og þetta var æði skuggalegt að fara á veturna í miklum snjó, kolniðamyrkri og Vimmi1 og Benzinn að þræða veginn eftir minni þegar hafði snjóað. Fyrst þegar menn komu inn í Rjóður þá var svo kalt að við þurftum að kveikja á svona 200 kertum inni til þess að fá hita í kroppinn. Þessi staður er alveg óskaplega fallegur. Þarna vorum við, komnir út úr öllu og ekkert heyrðist og nóttin er svo stjörnubjört og það var svo fallegt þarna. Ég var undir miklum áhrifum frá þessum stað í textagerðinni“(Þórir Kristinsson 2007).

Myndin framan á Huldumönnum, ramminn utan um myndina af Gildrunni, er af hjólförunum á veginum upp eftir og er því bein tilvísun í Rjóður. Þegar í Rjóður var komið tóku við stífar æfingar en stundum var slegið á léttari strengi og fengið sér í glas og haft gaman af lífinu:

„Talandi um góðan anda í Rjóðri. Þegar við komum þarna og vorum að fóðra hagamýsnar á Pripps og sykurmolum, þetta voru drykkfelldustu mýs Íslandssögunnar og þær voru ekki fáar, það var stundum mjög ört á bænum, en það var bara allt í lagi“.(Þórir Kristinsson 2007)

Þarna uppfrá urðu mörg ljóðanna til og fjalla flest um Rjóðrið eða það ævintýri sem það var að komast þarna upp eftir. Villtur og Förumaður af Huldumönnum og Heiðin og að ekki sé talað um Værð af Hugarfóstri eru öll ljóð sem eru samin um þennan stað. Villtur er lýsandi fyrir það sem áður var nefnt, tilfinningin um heiðina á leiðinni upp í Rjóður í alls konar veðri og einstaklega miklum snjó. Heiðin er um það sama – að vera einn og villtur á heiðinni. Það er öllu léttari tónn í ljóðunum Förumaður og Værð. Förumaður er enn og aftur um einhvern á leiðinni yfir heiðina en að þessu sinni er sumar og bjart yfir öllu, lóan er komin.

Sú túlkun sem fólk hefur lagt í lagið Værð, sem er eitt þekktasta lagið af þessum plötum, einkennist af einskonar bricolage, fólk hefur hent það á lofti og gert að sínu enda er það sívinsælt jafnt í brúðkaupum sem jarðarförum. Í textanum segir: Þú söngst í Rjóðri við sólarlag en fólk hefur oftar en ekki álitið stóra r-ið vera prentvillu í textanum. Almennt er álitið að ljóðið sé ástarljóð af klassísku gerðinni en textinn er enn ein persónuleg tilvísun Þóris. Ljóðið er alls ekki klassískt ástarljóð heldur er það samið til Birgis söngvara hljómsveitarinnar og Rjóðurs. Lagið við Værð er eitt elsta lagið sem
1. Vimmi er Vígmundur Pálmarsson rótari og bílstjóri Gildrunnar á þessum árum.

Birgir hefur samið og hann hafði samið við það texta þar sem hin fallega lína: um ástir og eilífan dans kemur fyrir. Þórir hélt þessari línu inni þegar hann samdi nýjan texta og úr varð þessi fallega ballaða. Í ljóðinu er annað persónulegt djók Þóris þar sem kemur hendingin í húminu // værðist vindurinn og margir hafa álitið vera prentvillu í textabókinni en er það ekki, þetta á að vera svona og Birgir syngur alltaf værðist.

Lokaorð

Þegar litið er til baka yfir farinn veg er augljóst að lögin á Huldumönnum og Hugarfóstri hafa elst mjög vel. Þegar platan Huldumenn kemur út er hún á skjön við vel flest það sem var að gerast, og það er kannski þess vegna sem að hún lifir svona góðu lífi í dag, hún var eitthvað nýtt, ósvikið. Enn í dag er hún sívinsæl og hefur ekki misst þann ósvikna tón sem hún vakti svo mikla athygli fyrir í upphafi.

Það vita allir hver Gildran er þó ekki hafi farið mikið fyrir henni í gegnum tíðina á vinsældarlistum. Í dag er hljómsveitin orðin hálfgert költ og nýtur t.d. mikillar virðingar hjá ungum bílskúrsböndum sem eru að reyna fyrir sér í dag. Hún er virt sem einn af hornsteinum íslenskrar alþýðumenningar og -tónlistar. Gildran þykir töff hljómsveit í dag.
Huldumenn var mikil tímamótaplata og henni var vel fylgt eftir af Hugarfóstri. Plöturnar eru systur þar sem þær eru unnar mjög náið og á mjög skömmum tíma. Saman mynda þær því sterka heild.

Mærin

Meyjan hrein
Sér þú til mín
Alltaf ein
Bænin ein
Ber mig til þín
Meyjan hrein

Faðir vor
Sér þú til mín
Engin orð
Himna storð
Tak mig til þín
Faðir vor

Bregður birtu
Mærin sofnar
Dofnar dagur burtu
Daufri varpar glóð

Kristur kær
Kom þú til mín
Himni nær
Hatri fjær
Tak mig til þín
Kristur kær.

Vorbragur

Vaknar allt á vorin
Vermir sólin landið
Grænu laufin borin
Brotið verður bandið

Blíður syngur blærinn
Brosir gulli sólin
Vaknar aftur bærinn
Börnin vantar í bólin

Opin Laugarvegur
Iðar Austurstræti
Digur andann dregur
Dúfa í heiðursæti

Fuglum iðar tjörnin
Fegra loftið sönginn
Brauði kasta börnin
Dapur er nú enginn

Situr bakvið sundin
Esjan undur fríða
Léttist aftur lundin
Dýrðar dagar líða.

Værð

Þú komst með vorið
um vetrarnótt
og vaktir huga minn
í húminu
værðist vindurinn
hann himneskan
heyrði sönginn þinn

Um ástir og eilífan dans

Þú söngst í Rjóðri
um sólarlag
og fluttir sálminn þinn
í kyrrðinni
kvaddi helkuldinn
hann heilagan
kveikti neistann minn

Um ástir og eilífan dans

Þú varst með völdin
um vetrarnótt
og sýndir styrkinn þinn
á heiðinni
heyrðist hljómurinn
hann háfleygan
hreyfði drauminn minn

Um ástir og eilífan dans.

Svarta blómið

Þekkirðu myrkrið þunga
Þagnarinnar sjávarnið
Næturskugga dauðans drunga
Drottins djúpu harmamið

Sorgin ein
Ég sit og bíð
Komir þú
Og gef mér frið
Vonin ein
Gefur grið

Sárt það er að syrgja
Þá sálin vætist blóði
Sorgina inni að byrgja
Brotna tára flóði

Hugann fyllir haustið
Horfin út í tómið
Birtan bak við brjóstið
Blómstrar svarta blómið. 

 

 

 

 


Stórval í 100 ár

Herðubreið 7Herðubreið er heillandi og þeir eru margir listamennirnir sem hafa glímt við fjallið með pensli sínum. Aðeins tveir listamenn gerðu fjallið að sínu aðal viðfangsefni, það voru feðgarnir, Jón Stefánsson og Stefán Jónsson frá Möðrudal. 

Stefán Jónsson, Stórval eins og hann kaus að kalla sig hin síðari ár tók að mála á gamals aldri. Stefán lék einnig á harmonikku og var mikill áhugamaður um söng. Herðubreið setur sterkan svip á sjóndeildarhring Möðrudalsöræfa, æskuslóðir Stefáns.

Í dag verður opnuð yfirlitssýning á verkum Stefáns í gallerí Turpentine í tilefni aldarafmælis hans.

Þess er ekki langt að bíða að haldin verði sýning á verkum listamanns sem hefur gert Foss á Síðu að sínu aðal viðfangsefni. Nánar um það síðar.

Stórval 1

Herðubreið Sveinn

Herðubreið Ásgrímur

 


Heyrðu!!! 784 kg af fólki

Pétur spurði Sigga hvernig gekk í skriðsundinu í gær. Siggi svaraði, Heyrðu!!! það gekk ágætlega ég hafnaði í öðru sæti. Pétur spurði, hvað var mikið af keppendum, Siggi svaraði, heyrðu, það voru örugglega 784 kg af keppendum, já, sagði  Pétur, var svo mikið af keppendum.

Hvernig er hægt að tala um mikið af fólki, það er hægt að tala um mikið af hveiti og mikið af sykri en það er ekki hægt að tala um mikið af fólki. Við tölum um margt fólk. Nýjasti orðaleppurinn er svo sá að nú segja margir, heyrðu, á undan svari???

Ég er bara rétt si svona að spá í þetta!!!


Nýtt hjól, ekki samt Velamos eða kopper

Það er gaman að fá nýtt hjól, þá tilfinningu þekkjum við flest. Ég man það eins og gerst hefði í gær þegar ég fékk mitt fyrsta reiðhjól. Það var að gerðinni Velamos, blátt að lit og undur fagurt. Seinna fékk ég svo gírahjól, þriggja gíra sem líktist Koppperhjólunum vinsælu sem komu örlítið síðar á markaðinn.

Stulli frændi var á fraktskipi og pabbi fékk hann til að koma með eitt slíkt fyrir örverpið sitt frá Ameríku. Mitt hjól var eins og áður segir mjög áþekkt Kopper hjólunum vinsælu með gírskiptinguna fyrir miðri stöng, gerfi dempara á framdekkinu og löngum hnakk með baki en með öllu stærra framhjól en á koppernum þrátt fyrir að það hafi verið minna en afturdekkið.

Hjólið mitt vakti strax slíka lukku að ég gat lengi vel selt rúnt á því fyrir einn sleikjó, súkkulaði bita eða eitthvert góðgæti. Nokkru seinna fékk Siggi í Lágholtinu hina vinsælu týpu af kopperhjóli með miklu breiðara afturdekki og minna framhjóli sem hann gat prjónað endalaust á og þar með var allur bisnes úti hjá mér og mitt hjól féll algerlega í skuggann.

Nýtt hjól

Nýtt hjól 1

Í dag fékk Birna mín nýtt hjól með hvorki meira né  minna en átján gírum og alvöru dempara að framan. Þetta er búin að vera mikill gleðidagur.


Frábær ferð með ömmu Millý á Spáni

Picture 1601

Picture 1602

Picture 1604

Picture 1609

Picture 1614

Picture 1625

Picture 1639

Picture 1640

Picture 1649

Picture 1652

Picture 1654

Picture 1655

Picture 1659

Picture 1662

Picture 1667

Picture 1670

Millý

Picture 1678

Picture 1683

Picture 1694

Picture 1695

Birna Sal


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband