fim. 19.6.2008
Ferðalok - Tvær stjörnur, eða hvað?
Ferðalok ( Jónas Hallgrímsson)
- Ástarstjörnu
- yfir Hraundranga
- skýla næturský.
- Hló hún á himni,
- hryggur þráir
- sveinn í djúpum dali.
- Veit ég, hvar von öll
- og veröld mín
- glædd er guðs loga.
- Hlekki brýt ég hugar
- og heilum mér
- fleygi faðm þinn í.
- Sökkvi eg mér og sé ég
- í sálu þér
- og lífi þínu lifi.
- Andartak sérhvert,
- sem ann þér guð,
- finn ég í heitu hjarta.
- Tíndum við á fjalli,
- tvö vorum saman,
- blóm í hárri hlíð.
- Knýtti ég kerfi
- og í kjöltu þér
- lagði ljúfar gjafir.
- Hlóðstu mér að höfði
- hringum ilmandi
- bjartra blágrasa,
- einn af öðrum,
- og að öllu dáðist,
- og greipst þá aftur af.
- Hlógum við á heiði,
- himinn glaðnaði
- fagur á fjalla brún.
- Alls yndi
- þótti mér ekki vera
- utan voru lífi lifa.
- Grétu þá í lautu
- góðir blómálfar,
- skilnað okkarn skildu.
- Dögg það við hugðum,
- og dropa kalda
- kysstum úr krossgrasi.
- Hélt eg þér á hesti
- í hörðum straumi,
- og fann til fullnustu,
- blómknapp þann gæti
- eg borið og varið
- öll yfir æviskeið.
- Greiddi eg þér lokka
- við Galtará
- vel og vandlega.
- Brosa blómvarir,
- blika sjónstjörnur,
- roðnar heitur hlýr.
- Fjær er nú fagurri
- fylgd þinni
- sveinn í djúpum dali.
- Ástarstjarna
- yfir Hraundranga
- skín á bak við ský.
- Háa skilur hnetti
- himingeimur,
- blað skilur bakka og egg.
- En anda, sem unnast,
- fær aldregi
- eilífð að skilið.
Tvær stjörnur (Megas)
Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér
en ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer
en ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til þín.
Ég gaf þér forðum keðju úr gulli um hálsinn þinn
svo gleymdir þú mér ekki í dagsins amstri nokkurt sinn
í augunum þínum svörtu horfði ég á sjálfan mig um hríð
og ég vonaði að ég fengi bara að vera þar alla tíð.
Það er margt sem angrar, en ekki er það þó biðin
því ég sé það fyrst á rykinu hve langur tími er liðinn
og ég skrifa þar eitthvað, með fingrinum, sem skiptir öllu máli
því að nóttin mín er dimm og ein, og dagurinn á báli.
Já, og andlitið þitt málað, hve ég man það alltaf skýrt
augnlínur og bleikar varir, brosið svo hýrt
jú, ég veit vel að ókeypis er allt það sem er best,
en svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst.
Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér
og ég sakna þín á daginn, þegar sólin brosir við mér
og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á
en ég sakna þín mest á nóttunni, þegar svipirnir fara á stjá.
Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær
stjörnur á blárri festingunni sem færast nær og nær
ég man þig þegar augu mín eru opin hverja stund
en þegar ég nú legg þau aftur fer ég á þinn fund
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
fim. 19.6.2008
Að njóta sólar og sumars er gott með fallegri tónlist
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
þri. 17.6.2008
17. júní í Mosfellsbæ 2008
Hátíðarhöldin í Mosfellsbæ hófust með messu í Lágafellskirkju og að henni lokinni hófst formleg dagskrá á okkar nýja og fallega miðbæjartorgi. Að lokinni dagskrá á miðbæjartorginu stormuðu allir í skrúðgöngu að okkar gamla félagsheimili, Hlégarði þar sem fram fór dagskrá sem fyrst og síðast var tileinkuð börnum. Að venju var þar einnig glæsilegt kaffihlaðborð.
Hér kemur hátíðarræðan sem ég flutti á torginu.
Kæru Mosfellingar og aðrir gestir.
Fyrir hönd bæjarstjórnar Mosfellsbæjar býð ég ykkur öll hjartanlega velkomin og óska ykkur gleðilegrar þjóðhátíðar.
Að þessu sinni hefjum við hátíðarhöld okkar í fyrsta skipti á þessu kærkomna og glæsilega torgi sem er jafnframt í raun hið fyrsta eiginlega miðbæjartorg okkar Mosfellinga. Mig rennir í grun að hér eigi um ókomna tíð eftir að verða haldnar margar ræður og skemmtanir af öllu tagi.
Þann 31. maí s.l. fór fram vígsluathöfn á torginu í blíðskapar veðri. Einnig var vígt við það tækifæri þetta útilistaverk sem ber heitið Hundraðþúsundmilljón tonn af sjóðheitu vatniog er eftir Kristin E. Hrafnsson. Einnig voru vígð við sama tækifæri tvö af okkar mörgu og upplýsandi fræðsluskiltum sem þið getið séð hér þar sem þau standa við lítinn bút sem skilinn var eftir af gamla hitaveitustokknum.
Gamli hitaveitustokkurinn var merkilegt mannvirki, ekki einungis vegna hins eiginlega notkunargildi hans. Þ.e.a.s. að flytja hundraðþúsundmilljón tonn af sjóðheitu vatni úr sveitinni okkar til höfuðborgarbúa, heldur var hann einnig einstakt samgöngumannvirki. Hann lá í gegnum mitt bæjarfélagið okkar og oftar en ekki var talað um að fara stokkinn, þegar bregða þurfti sér á milli bæja í Mosfellsbæ. Á hitaveitustokknum var hægt að hjóla og ganga allan ársins hring við kjöraðstæður, því þrátt fyrir kúpt yfirborð hans, sem þykir eflaust ekki heppilegast fyrir slíka hreyfingu, virkaði hið grófa steinda yfirborð þannig að fátítt var að mönnum skrikaði fótur. Ætli gamli góði hitaveitustokkurinn hafi ekki hreinlega verið fyrsta upphitaða samgöngumannvirki í heiminum, það mætti segja mér það.
Um þetta nýja miðbæjartorg get ég ekki látið staðar numið hér öðru vísi en að minnast á fyrirhugaða kirkjubyggingu og menningarhús henni tengdri. Bæjaryfirvöld Mosfellsbæjar hafa nú um nokkurt skeið átt í viðræðum við Sóknarnefnd Lágafellssóknar um aðkomu bæjarins að byggingunni og hefur mikill og góður hugur einkennt þær viðræður. Það er von mín og trú að kirkjan og menningarhúsið verði til að efla og styrkja en frekar miðbæinn og allt okkar mannlíf hér í Mosfellsbæ.
Þann 9. ágúst síðast liðinn fögnuðum við Mosfellingar 20 ára kaupstaðarréttindum. Í tilefni þess var haldinn sérstakur hátíðarfundur bæjarstjórnar. Á þeim fundi var frú Salome Þorkelsdóttir fyrrverandi forseti alþingis gerð að heiðursborgara Mosfellsbæjar. Salome varð þá þriðji Mosfellingurinn til að hljóta þá heiðursnafnbót. Fyrr höfðu þeir Halldór Laxness og Jón M. Guðmundsson verið útnefndir heiðursborgarar. Einnig var samþykkt á þessum hátíðarfundi að útbúa ævintýragarð í Ullarnesbrekkum á milli Köldukvíslar og Varmár. Mikill áhugi bæjarbúa hefur reynst vera á þeim fyrirhugaða garði og sýndi það sig best í öllum þeim fjölda hugmynda sem bárust til bæjaryfirvalda um útfærslu hans.
Í hátíðarræðu minni fyrir tveimur árum kom ég inn á fegurð sveitarinnar okkar og mikilvægi þess að við skynjuðum hana og bærum virðingu fyrir henni. Á dögunum átti ég þess kost að fljúga yfir bæjarfélagið í lágflugi. Þá varð ég þess var meir en nokkru sinni fyrr hversu sveitin er gróin, græn og falleg. Dugnaður bæjarbúa við að fegra umhverfi sitt og mikið og óeigingjarnt starf skógræktarfólks hefur gjörbreytt allri ásýnd bæjarfélagsins á ótrúlega skömmum tíma. Um þessar mundir standa yfir heilmiklar byggingaframkvæmdir í þremur hverfum og þesskonar framkvæmdum fylgir alltaf óhjákvæmilega rask. Á slíkum stundum er mikilvægt að sýna hvert öðru tillitsemi og þá er gott að hafa það hugfast að ekki líður á löngu þar til hverfin verða orðin gróin, græn og falleg.
Kæru Mosfellingar og aðrir gestir ég óska ykkur enn og aftur gleðilegrar hátíðar og vona að við eigum öll eftir að eiga hér saman yndislegan dag.
Ég ætla að enda þetta á fallegu kvæði eftir Grím Thomsen sem heitir Landslag.
Heyrið vella á heiðum hveri,
heyrið álftir syngja í veri:
Íslands er það lag.
Heyrið fljót á flúðum duna,
foss í klettaskorum bruna:
Íslands er það lag.
Eða fugl í eyjum kvaka,
undir klöpp og skútar taka:
Íslands er það lag.
Heyrið brim á björgum svarra,
bylja þjóta svipi snarra:
Íslands er það lag.
Og í sjálfs þín brjósti bundnar
blunda raddir náttúrunnar:
Íslands eigið lag.
Innst í þínum eigin barmi,
eins í gleði og eins í harmi
ymur Íslands lag.
Ég þakka fyrir mig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
sun. 8.6.2008
Flug, fótbolti, golf, hestamennska, mótorhjól
Á föstudaginn var, bauð Flugklúbbur Mosfellsbæjar bæjarstjórn og bæjarstarfsmönnum öllum í heimsókn á Tungubakka. Á móti gestum var tekið með miklum glæsibrag og öllum boðið í flugferð og heilmikla fræðslu um flugvélar og starfsemi Flugklúbbs Mosfellsbæjar.
Það er óhætt að segja að Mosfellsbær státi af fjölbreyttum frístundarmöguleikum. Úr miðbænum er aðeins nokkurra mínútna gangur á íþróttavöllinn að Varmá, til hestamanna, kylfinga, knattspyrnumanna og flugmanna á glæsilegum Tungubökkum og nú styttist í braut mótorhjólaáhugamanna.
Allt er þetta við túnfótinn.
Hér koma nokkrar myndir frá flugdeginum skemmtilega.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
mán. 2.6.2008
Skemmtileg heimsókn
Ég fékk nýlega skemmtilega heimsókn frá forsprökkum mkmedia.is en þeir halda úti skemmtilegri viðtalssíðu hér á netinu.
Ég má nú til með setja viðtalið mitt hér inn eða þ.e.a.s. slóðina á það um leið og ég vil þakka þeim fyrir komuna til mín og skora á sem flesta að skoða þetta sniðuga framtak þeirra félaga.
http://mkmedia.is/assets/files/Gildran_vi__tal_tilb__i___NEW.wmv
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
sun. 1.6.2008
Þegar ég seldi UAZ, þá glæsi bifreið
Ég hef í gegnum árin nokkrum sinnum fengist við sölumennsku og alltaf haft jafn gaman af. Hápunkturinn hjá mér í því starfi var þegar Halldór, heitinn, Snorrason stofnandi Aðalbílasölunnar réði mig til starfa á sinni gömlu og þekktu bílasölu.
Sérstaklega er mér minnisstætt atvinnu viðtalið sem ég átti við Halldór og margar þær spurningar sem hann lagði fyrir mig, rokkarann, með hárið niður á mitt bak. Ein þeirra var t.d. sú afhverju ég væri með svona sítt hár og hvort til greina kæmi hjá mér að láta klippa það. Ég sagði strax við Halldór að það kæmi ekki til greina. Hann sagði að loknu viðtalinu við mig að hann myndi hringja í mig og láta mig vita á hvorn veginn sem færi varðandi umsókn mína um starf hjá honum. Nokkru síðar hringdi Halldór í mig og bauð mér að koma til reynslu og mikið var ég spenntur að fá að spreyta mig hjá þeim gamla, ég sem var og er bókstaflega forfallinn bíladellu karl.
Við Aðalbílasöluna starfaði ég í rúm tvö ár og mikið óskaplega var það ógleymanlegur og skemmtilegur tími. Halldór var sölumaður engum líkur og með ótrúlega hæfileika sem slíkur. Mannþekkjari, sálfræðingur, ótrúlega minnugur á nöfn viðskiptavina og allt sem við kom sínu starfi. Hann vissi nákvæmlega hverjir voru í kauphugleyðingum og hverjir ekki og benti mér oft á það ef honum fannst ég vera að eyða óþarfa tíma í einhverja sem voru ekki líklegir á meðan aðrir biðu.
Mér er sérstaklega minnisstætt þegar sá gamli skammaði mig fyrir eitt slíkt atvik. Þá var ég í nokkurn tíma búinn að gera allt sem í mínu valdi stóð til að koma gömlum UAZ Rússajeppa í gang með startköplum á bílasöluplaninu og ekkert gekk. Hann sagði við mig þegar ég kom inn og spurði hvort ekki væri til kaðall til að draga drusluna í gang "Kalli minn, hættu að eyða tíma í þessa vitleysu, þennan bíl selur þú ekki" Til að gera langa sögu stutta hrökk gamli Rússajeppinn ekki í gang, þrátt fyrir endalausan drátt um alla borg en mikið ósköp var Halldór stoltur af síðhærða rokkaranum þegar hann gekk frá sölusamningnum og nýi eigandinn af Rússanum dró bílinn heim til sín.
Halldór sagði við mig að honum hefði ekki þrátt fyrir langan tíma í faginu tekist að selja bíl sem þurft hefði að draga út af bílasölunni eftir marg ítrekaðar gangsetningar tilraunir.
Ekki fylgir sögunni hvort gamli Rússinn komst nokkru sinni í gang. Af þessu sölu "afreki" mínu var ég alltaf jafn stoltur og montinn. Ég vildi samt sem áður óska þess að ég ætti þennan forláta UAZ húsbíl í dag.
Á dögunum fékk ég einn besta sölumann Íslands í heimsókn, söngvarann og tónlistarmanninn góðkunna, Herbert Guðmundsson. Þvílíkur sölumaður og snillingur í faginu er maðurinn. Það rifjuðust upp fyrir mér svo margir taktar frá Halldóri gamla í þann stutta tíma sem Herbert dvaldi hjá mér.
Já fátt er skemmtilegra en að heyra góða sölumenn spreyta sig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)