mið. 27.6.2007
Allt í standi á þessum bænum
Eruð þið ekki sammála því?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
mán. 25.6.2007
Engu líkur
Það er ekki hægt annað en að heillast af honum, slíkur er krafturinn þrátt fyrir lítillætið.
Það er svo sem engin stórkallabragur yfir honum, hann lætur í raun lítið fyrir sér fara svona öllu jafna. Virkar ekki montinn við fyrstu kynni en þegar maður kemst í tæri við hann fer ekki á milli mála að hann er Vestur Skaftfellingur.
Það er ekkert skrítið að fólk sem hefur slíkann nágranna verði fyrir ævarandi áhrifum.
Foss á Síðu er stórbrotið bæjarstæði um 10 km. fyrir austan Kirkjubæjarklaustur. Fallegur foss fellur ofan af klettunum ofan við bæinn, úr vatni sem nefnist Þórutjörn.
Þetta stórkostlega sjónarspil fangar athygli allra sem leið eiga um.
Greiðfær gönguleið er upp að Þórutjörn og þaðan er fallegt útsýni yfir Síðuna.
Í klakaböndum er hann engu líkur. Einu sinni sá ég mynd af honum þannig.
Foss á síðu er í uppáhaldi hjá mér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
lau. 23.6.2007
Blogg snobb!!!
Hrokinn, snobbið og yfirlætið birtist í ýmsum myndum. Sumir hafa svo mikið og merkilegt til málanna að leggja að þeir geta ekki verið á meðal "almúgans" Þeirra innsperasjón er svo mikil og göfug.
Þeir velja og hafna bloggvinum eftir því sem þeir telja síðu sinni og sér til framdráttar.
Þessi er ekki í þeim hópi og hún eða hann fær ekki að vera bloggvinur minn. Þessi fær ekki að vera memm.
Já, mannskepnan á mikið eftir ólært.
Hafið það öll sem best. Kalli Tomm.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
fös. 22.6.2007
Hestaferð um Mosfellsbæ
Laugardagur til lukku |
Atvinnu- og ferðamálefnd Mosfellsbæjar hefur í sumar staðið fyrir fræðslu- og menningargöngum um sveitarfélagið. Þetta hefur mælst vel fyrir hjá þátttakendum og er vel hugsanlegt að þetta verði árlegur viðburður. Í allar ferðirnar hafa verið fengnir reynslumiklir leiðsögumenn sem hafa haft frá mörgu að segja. Á morgun laugardaginn 23. júní verður Jónsmessureiðferð með sögulegu ívafi kl. 10- 17. Fararstjóri þessarar ferðar verður Bjarki Bjarnason. Það eru allir velkomnir og ekkert þátttökugjald. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
fim. 21.6.2007
Ferðin endaði svakalega
Nonni vinur minn bauð mér í bátsferð um síðustu helgi.Nonni sagði við Sigga son sinn um leið og við gengum um borð: Legðu nú á borð Siggi minn þannig að allt verði klárt þegar við komum í höfn. Við borðum kl. sjö
Það vildi ekki betur til en svo að við sigldum á sker. Nonni sagði við okkur eftir óhappið:
Á meðan við bíðum eftir dráttarbátnum sker ég kétið svo fáum við okkur sker í eftirmat
Sonur Nonna sagði: Svakalega er þetta allt skerí
Ekki vera hræddur Siggi minn, ég er hræddur um að ég sé hættur að sigla, hættur leynast víðar en mig grunaði á hafi. Hafi ég gert mistök er spurning um að læra betur í sumar. Sumar ákvarðanir tekur maður of fljótt. Fljótt skipast veður í lofti. Lofti frænda var oft orð á því. Því miður tók ég ekki mark á hans orðum. Skipið lekur og skipið hásetanum að verka dekkið. Þetta er ekki að verka svona. Dekkið nú borðið upp á nýtt.
Nú hefst nýtt tímabil hjá mér sagði Nonni .
Sláum upp veislu.
Bloggar | Breytt 22.6.2007 kl. 02:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
mið. 20.6.2007
Hann felskir kórinn.
Fyrir all nokkuð mörgum árum síðan sagði ég setningu á vinnustað mínum sem olli talsverðri umræðu og vangaveltum meðal vinnufélaga minna.
Ég sagði: Segulbandið mitt felskir tóninn. Í kjölfarið komu upp heilmiklar vangaveltur um þetta orðalag mitt og flestir voru á því að þetta væri alger afbökun á íslenskri tungu. Ég var á öðru máli og sagði ekkert rangt við þetta.
Í kjölfarið var hringt í mikinn íslenskumann og hann spurður hvort þetta orðalag gengi upp. Sá ágæti maður kvaðst ekki hafa heyrt þetta orðalag áður en sagðist jafnframt ekki sjá annað en að það gengi upp.
Hesturinn á það til að vera haltur. Það heltir hestinn að hafa þennan þunga mann á bakinu.
Kórinn á það til að vera falskur. Það felskir kórinn að hafa þennan mann í honum.
Þetta er kanski svolítið vont þegar Vestur-Skaftfelski kórinn heldur tónleika, ég segi það ekki.
Er það þá kannski Vestur-Skaftfalski kórinn heldur tónleika á Kirkjubæjarklaustri?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
sun. 17.6.2007
Gaman í Mosfellsbæ
Kæru bloggarar. Gleðilega þjóðhátíð.
Hátíðarhöldin í Mosó gengu vel, þau hófust með hátíðardagskrá í bæjarleikhúsinu okkar. Þar flutti ég hátíðarræðuna og læt ég hana fylgja með hér að neðan. Álafosskórinn söng og stóð sig að vanda vel undir öruggri stjórn Helga Einarssonar, fjallkonan var glæsileg og að lokum var bæjarlistamaður Mosfellsbæjar heiðraður. Það var að þessu sinni myndlistarkonan Ólöf Oddgeirsdóttir. Ólöf er sérlega vel að sæmdarheitinu komin. Hún hefur látið mikið til sín taka í menningarlífi okkar Mosfellinga undanfarin ár. Innilegar hamingjuóskir Ólöf.
Að hátíðardagskrá lokinni var fjölmenn skrúðganga að Hlégarði þar sem fram fór fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.
Hér kemur hátíðarræðan:
Ágætu Mosfellingar og aðrir þjóðhátíðargestir.
Fyrir hönd bæjarstjórnar Mosfellsbæjar óska ég ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og vona að við eigum eftir að eiga saman ánægjulegan dag. Enn á ný erum við saman komin til að halda hátíð, þjóðhátíð í bænum okkar sem var sveit fyrir örfáum áratugum - en:
Munum öll að Mosfellssveitin
mótar enn sín fósturbörn.
Sundin fríðu, fellin, leitin
furðugil og heiðartjörn.
Manstu kvöld í mánabliki,
morgunglóð við fjörusand
hörpu slegna í vatnaviki
vafið töfrum griðaland.
Þannig orti Pétur Þorsteinsson kennari og síðar sýslumaður Dalamanna. Hann byggði sér hús á sínum tíma við Lágholt sem var önnur þéttbýlisgata sveitarfélagsins. Þá var ljóst að ör byggðaþróun varð ekki umflúin og árið 1987 lauk Mosfellshreppur aldalangri sögu sinni og Mosfellsbær fagnar 20 ára afmæli sínu í ágústmánuði næstkomandi.
Tvítugt bæjarfélag þarf ekki að líta langt um öxl til að sjá hér kýr reknar í haga, brúsapalla við sérhvern bæ og þá var Mosfellsheiði hvít á sumrin - ekki af snjó heldur sauðfé. Þessi tími er liðinn og nú er svo komið að einungis eitt kúabú er starfrækt í sveitarfélaginu en bankaútbúin eru hins vegar helmingi fleiri en kúabúin í dag. Og iðjagræn tún og beitarhagar hafa sum hver breyst í götur og blómum prýddar lóðir sem ekki þarf að reka sauðfé úr á miðri nóttu eins og algengt var á þeim tíma.
Í Dal og Hverfi, Holti og Túnum
heimilið ég byggja vil.
Í þessum faðmi fagurbúnum
finnst mér best að vera til
Undur vors og angan seiða,
einnig haust með hrímgan svip.
Sakna mundi hafs og heiða
hér bý eg mitt draumaskip.
Í Mosfellsbæ hafa fjölmargar fjölskyldur smíðað sín draumaskip á síðustu áratugum. Þessi skip hafa orðið að fríðum skipaflota sem við köllum íbúðahverfi. Og enn er verið að smíða ný draumaskip því um þessar mundir eru miklar byggingaframkvæmdir hér í bænum. Þegar slík umsvif standa yfir er mikilvægt að við sýnum hvert öðru þolinmæði og tillitssemi. Vissulega hafa slíkar framkvæmdir í för með sér ónæði á meðan á þeim stendur en allt hefur sitt upphaf - og endi.
Góðir þjóðhátíðargestir.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar hér í Mosfellsbæ frá því að haldið var fyrst upp á 17. júní. Það var árið 1964 og þá var Varmárlaug vígð, Klara Klængsdóttir fyrrverandi kennari þreytti vígslusundið og nú rúmum 40 árum síðar vígði Klara einnig hina stórglæsilegu Lágafellslaug. Klara iðkaði einnig og kenndi sund í fyrstu innisundlauginni í Mosfellsbæ sem var að Álafossi þar sem hljómsveitin Sigurrós hefur nú hreyðrað um sig. Einnig tók Klara sundspretti í stýflunni sem Sigurjón Pétursson á Álafossi lét úbúa í Varmánni á sínum tíma. Já Klara er en að.
Við hin fyrstu þjóðhátíðarhöld kom nýstofnuð skólalúðrasveit fram undir stjórn Birgis D. Sveinssonar og hefur hún allar götur síðan verið órjúfanlegur hluti af hátíðarhöldum í sveitarfélaginu. Þennan dag var efnt til víðavangshlaups á hátýðarhöldunum og einn liðsmaður lúðrasveitarinnar var svo önnum kafinn að hann þreytti hlaupið í hvítri skyrtu með slaufu sem var fyrsti einkennisbúningur lúðrasveitarinnar.
Ágætu Mosfellingar.
Í dag minnumst við sjálfstæðisbaráttu íslensku þjóðarinnar. Hún virðist vera langt í burtu en samt er hún nútímalegri en margan grunar því í raun er hún sígild. Sjálfstæðisbarátta getur verið bundin við annað en þjóðir, einnig sveitarfélög eða manneskjuna sjálfa. Og hvort sem sveitarfélagið heitir sveit, bær eða borg kunnum við vel að meta hana Mosfellssveit sem breyttist í bæ á undraskömmum tíma. Hér viljum við iðka okkar víðavangshlaup í guðsgrænni náttúrunni í sátt við menn og dýr, jafnvel í stuttbuxum og hvítri skyrtu - með slaufu.
Gleðilega þjóðhátíð!
Hér kemur Bretinn viðkunnanlegi.
Að verða fyrir áhrifum tónlistar og tónlistarflutnings er einstaklega notaleg tilfinning. Ég varð fyrir þessum áhrifum í morgun áður en ég hélt út í veðurblíðuna til að taka þátt í hátíðarhöldum okkar Mosfellinga. Þetta var góður innblástur fyrir daginn. Þessi viðfeldni og magnaði söngvari vann hug minn allan. Hann hefur undanfarin ár fengist við símasölu.
Já, þeir leynast víða snillingarnir.
Ég læt þetta flakka með þó þetta tengist ekki beint þjóðhátíð okkar Íslendinga.
Góðar stundir kæru félagar.
Karl Tómasson.
Bloggar | Breytt 19.6.2007 kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
lau. 16.6.2007
Gleðileg jól!!!
Það er gaman að upplifa hluti sem eru manni svo minnisstæðir að maður gleymir þeim aldrei. Stundum eru þeir nú samt þannig að þeir voru ekki góðir á þeim tíma sem þeir gerðust.
Þetta þekkjum við væntanlega flest.
Frá þessum ævintýrum segjum við nú samt sennilega oftast þegar upp er staðið.
Ég hef verið svo heppinn að fá að starfa og vinna með fólki sem hefur gefið mér og kennt mér svo margt meðal annars fólki með down syndrum. Hversu oft segjum við ekki sama brandarann ef okkur líkar hann vel?
Einn besti brandari sem ég hef heyrt gerðist þegar ég og Björgvin vinur minn sem er með down syndrum fórum í smá búðarölt saman.
Við félagarnir fórum á einum besta sumardegi sem ég hef upplifað að ná í myndir í framköllun fyrir Bjögga minn. Það var sennilega 25 stiga hiti. Á þeim tíma voru jólin eða jólastemning eins víðs fjarri huga manns og hugsast getur. Þegar við komum inn í framköllunarbúðina kemur á móti okkur maður á besta aldri og býður okkur kurteislega góðann daginn.
Þá sagði Björgvin, gleðileg jól.
Aumingja búðareigandinn fór gjörsamlega í kerfi og vissi hvorki í þennan heim eða annan, ég hljóp út og hló bókstaflega endalaust að brandara Björgvins sem mér fanst slík snilld að ég átti ekki orð og lét þá um að klára málið með myndirnar.
Skömmu síðar kom minn maður út alsæll með myndirnar sínar og við skoðuðum þær í veðurblýðunni.
Já það geta fleiri sagt brandara en Laddi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
fös. 15.6.2007
Tengdamömmur!!!
Já það eru merkilegar konur sem við getum lært margt af.
Ég á eina slíka sem hefur allt frá fyrstu tíð verið mér svo góð. Það er verst hvað ég hef gaman að því að stríða henni en hún tekur því nú sem betur oftast vel.
Henni er meinilla við gas og einu sinni sagði ég henni að nú á næstu dögum vegna viðgerða í götunni þyrfti að koma fyrir gasbúnaði í öll hús og Mosfellsbær myndi standa straum af kostnaði þess. Ég vissi ekki hvert sú gamla ætlaði að fara og óttaðist ég mjög um að hún fengi hjartaáfall, slík voru viðbrögðin. Þegar hún var komin hálfa leið í símann til að afþakka þetta í sitt hús sagði ég henni sannleikann, henni til mikils léttis. Það tók hana samt nokkurn tíma að jafna sig á vitleysunni.
Það sem ég hef reynt að læra af henni og gengur það nú ekkert allt of vel er, allt í hófi reglan
Hún kaupir súkkulaðistykki og á það í viku. Hún kaupir sér kippu af bjór sem dugar í 2 mánuði. Hún reykti tvær sígarettur á mánuði í 20 ár en fanst nú samt ástæða til að hætta. Hún bakar marmaraköku um helgar með 3 eggjum í en notar bara eitt hvunndags. Hún setur bara rjóma í sósuna um helgar. Ég sé hana aldrei þrífa en það er alltaf hreint. Hún er ekki hátekjukona en á alltaf pening. Hún hefur aldrei neitað sér um neitt í mat en er alltaf í kjörþyngd. Hún hefur aldrei farið í líkamsrækt en gengur heilu kílómetrana án þess að blása úr nös. Hún hefur alla tíð verið ótrúlega heilsuhraust á líkama og sál, orðin hálf áttræð.
Hver er lykillinn. Er ekki allt best í hófi?
Bloggar | Breytt 16.6.2007 kl. 00:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fim. 14.6.2007
Karlar broslegir???
Karlar geta sem betur fer stundum verið broslegir. Það má nú heldur ekki taka þetta allt of alvarlega, ekki satt???
Karlar sem eru broslegir þykja af mörgum ekki trúverðugir.
Rétt eins og ákveðnar konur þykja frekar. Þá meina ég ákveðnar en ekki ákveðnar í þeirri merkingu einhverjar sérstakar og nú má engin kona móðgast því auðvitað eru þær allar sérstakar.
Ég þekki einn Karl sem er til að mynda alltaf broslegur. Það er hann Karl Ágúst Úlfsson Spaugstofumaður.
Auðvitað meiga Karlar rétt eins og Jónar, Sigurðar, Helgar, Gunnur, Önnur, Möggur alltaf öðruhvoru reyna að vera broslegir.
Hvernig nær maður í svona broskarla sem sumir nota óspart við athugasemdir í blogginu???
Bestu kveðjur frá BrosKarli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)