fös. 30.5.2008
Sveitin og heita vatnið
Á laugardaginn fer fram vígsla á nýgerðu torgi við Þverholt, auk vígslu á útilistaverki eftir Kristin E. Hrafnsson og fræðsluskiltum við hitaveitustokk.
Dagskrá Vígsluhátíðar:
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leikur.
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar Haraldur Sverrisson vígir hið nýja torg við Þverholt.
Karlakórinn Stefnir undir stjórn Gunnars Ben.
Formaður afmælisnefndar Samorku, Guðmundur Davíðsson og forseti bæjarstjórnar, Karl Tómasson vígja hið nýja útilistaverk, sem ber heitið HUNDRAÐÞÚSUNDMILJÓN TONN AF SJÓÐHEITU VATNI. og er eftir Kristin E Hrafnsson.
Fulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur, Kjartan Magnússon, vígir nýtt fræðsluskilti við hitaveitustokk sem enn stendur við enda torgsins.
Að lokum leikur Orkusveitin kvintett Reynis Sigurðssonar.
Kynnir er Helgi Pétursson, fulltrúi OR.
Að vígslu lokinni verður boðið upp á gönguferð fyrir þá sem það vilja á vegum Sögufélags Kjalarnesþings og Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar (UNM) í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur. Um er að ræða fræðslugöngu með leiðsögn sem ber heitið Sveitin og heita vatnið. Gengið verður frá Kjarna, upp með Varmá og að Reykjum og meðal annars áð í Dælustöðinni á Reykjum. Bjarki Bjarnason er leiðsögumaður í ferðinni.
Tilefni hátíðarhaldanna er 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi árið 2008, en þar er miðað við frumkvöðulsstarf Stefáns B. Jónssonar á Suður-Reykjum í Mosfellssveit árið 1908. Ennfremur fagnaði Mosfellsbær 20 ára afmæli árið 2007 og ákvað bæjarstjórn af því tilefni að standa að gerð útilistaverks í bænum.
Útilistaverkið er hringur, sex metrar að þvermáli. Undir verkinu er rennandi heitt vatn sem myndar gufu upp úr 22 áletruðum grindum úr sögu hitaveitu og Mosfellsbæjar. Í miðju verksins er ljósastaur sem lýsir upp hringinn, gufuna og gróðurinn í kring. Í ályktun dómnefndar segir m.a.: Hugmyndafræðilegur bakgrunnur nær á skemmtilegan hátt að samtvinna sögu Mosfellsbæjar og sögu hitaveitunnar. Góð tenging er því bæði við söguna, umhverfið og heita vatnið. Gerð verksins varð samstarfsverkefni SAMORKU og Mosfellsbæjar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mið. 28.5.2008
36% aukning frá kosningum
Ég fékk gleðilega hringingu frá formanni Vinstri grænna nú rétt í þessu þegar hann tjáði mér að félagsmönnum í Mosfellsbæ hefði fjölgað um 36% frá síðastliðnum sveitarstjórnarkosningum nú að hálfnuðu kjörtímabili.
Þetta er gríðarleg aukning og mikil gleðitíðindi fyrir okkur sem stöndum í framvarðarsveit flokksins í meirihluta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar. Eins eru þetta ómetanleg skilaboð og hvatning í seinni hálfleikinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
mið. 28.5.2008
Glæsitorg og útilistaverk
Um næstu helgi þ.e.a.s. á laugardaginn kl. 13 verður vígt nýtt glæsilegt torg, útilistaverk og fræðsluskilti í Mosfellsbæ. Eins og flestir bæjarbúar hafa eflaust orðið varir við hefur hópur manna lagt nótt við dag að fullklára torgið sem er sannkölluð bæjarprýði og mun án vafa eiga eftir að nýtast vel við hin ýmsu tækifæri um ókomin ár.
Um árabil hefur þetta svæði í miðbæ Mosfellsbæjar verið frekar óhrjálegt og jafnvel til vansa ef eitthvað er. Eins og áður segir hefst dagskráin kl. 13 og að henni lokinni verður boðið upp á göngu á vegum Sögufélags Kjalarnesþings og Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar undir leiðsögn Bjarka Bjarnasonar og Guðjóns Jenssonar. Gengið verður frá Kjarna, upp með Varmá og að Reykjum. Í bakaleiðinni verður komið við í Dælustöðinni.
Vonandi sjá sem flestir Mosfellingar og aðrir gestir sér fært að fagna okkar fyrsta eiginlega miðbæjartorgi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
sun. 25.5.2008
Afi borðaði nánast allt brauðið sjálfur
Undanfarin ár höfum við alltaf gert okkur ferð að Bakkatjörn á Seltjarnarnesi að kíkja á Svandísi, kallinn hennar og ungana þeirra. Eins og frægt er orðið og heilmikil umræða spannst um nú á dögunum, var talið að Sílamávar hefðu steypt undan þeim hjónum en annað kom á daginn sem betur fer. Svandís og fjölskylda spókuðu sig í blíðviðrinu í dag en voru ekkert frekar en aðrir fuglar á Bakkatjörn svöng og komu því hvergi nærri bakkanum að bragða á góðgætinu.
Því var ákveðið að fara og gefa fuglunum á Tjörninni í Reykjavík. Ekki tók skárra við þar, allir saddir og sælir og endaði ferðin á því að afi borðaði nánast allt brauðið sjálfur og vakti það mikla kátínu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
fim. 22.5.2008
Gullmoli
Fyrir margar sakir getur það reynst dýrkeypt að skella sér á tónleika og sjá einn af sínum uppáhalds tónlistarmönnum. Ég þekki báðar hliðarnar á því. Það er að segja að verða fyrir hræðilegum vonbrigðum sem búa svo innra með manni lengi vel og svo hitt að upplifa töfra sem standast allar væntingar og jafnvel rúmlega það.
Það skal ég fúslega viðurkenna að ég óttaðist það mikið að gamli, hálf sjötugi, rokkarinn John Fogerty kæmi hingað á skerið, tættur, þreyttur og illa upplagður þar sem hann er nú á löngu tónleikaferðalagi. Sá ótti var algerlega ástæðulaus og snillingurinn sýndi og sannaði fyrir öllum sem lögðu leið sína í Höllina í gær fyrir hvað hann stendur og hefur staðið í áratugi.
John Fogerty fór á kostum og gaf allt í tónleika sína í Höllinni, söng öll sín lög óaðfinnanlega og gaf sig meira að áhorfendum en gengur og gerist hjá oft minni spámönnum. Hljómsveitin stóð sig einnig með prýði og trommuleikarinn var frábær, ekki sá hinn sami og eyðilagði að mínu mati síðustu live plötu meistarans með sannslausum ótímabærum barningi. Ég hafði einstaklega gaman að því hvað Fogerty hrósaði trommuleikara sínum sérstaklega á tónleikunum í gær.
Mér eru mjög minnisstæðir tónleikar sem ég fór á með Paul Mc Cartney og orð sem félagar hans í hljómsveitinni sögðu um miðbik þeirrar tónleikaferðar. Allt saman tónlistamenn sem hafa spilað með mörgum frægum stjörnum. Þeir sögðu allir einstakt að fá tækifæri til að spila með tónlistarmanni sem gæti haldið út heila tónleika og nánast hvert einasta lag sem flutt væri þekktu allir í salnum.
Þannig var það í Höllinni í gær.
Ég vona að tónleikar og heimsókn John Fogerty til Íslands fái heilsíðu, eða hreinlega opnu umfjöllun í Morgunblaðinu á næstu dögum, það eru mörg dæmi um það hjá sumum "snillingum" sem lítið hefur gert annað en að rigna upp í nefið á og hafa hvorki sést fyrr né síðar eftir það. Hvað þá að skilja eftir sig nokkuð í líkingu við það sem tónlistarmaðurinn sem stóð á sviðinu í Laugardalshöll í gær hefur gert.
Það er ekki öllum gefið að galdra fram veisluréttina hvern að öðrum með einfaldleikann einn að vopni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
þri. 20.5.2008
Stóðst ekki mátið
Nú styttist í tónleika John Fogerty og það er eins gott að kallinn verði í sínu besta formi og stuði í Laugardalshöll á morgun. Þá verður gaman að sjá kallinn þenja raddböndin og syngja sín fallegu og mörg mögnuðu lög.
Ástæða þess að ég skelli hér inn einni nýrri færslu fyrir tónleika Fogerty, eru aðrir tónleikar sem verða á morgun á sama tíma og mér var að berast póstur um frá yndislegri frænku minni henni Gyðu sem kemur fram á þeim tónleikum. Þetta er uppfærsla Kórs Fjölbrautarskóla Suðurlands og Magna á lögum Queen.
Tónleikarnir verða haldnir í Íþróttahúsinu Iðu kl. 20 á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
sun. 18.5.2008
Stórval aldar minning
Herðubreið er heillandi og þeir eru margir listamennirnir sem hafa glímt við fjallið með pensli sínum. Aðeins tveir listamenn gerðu fjallið að sínu aðal viðfangsefni, það voru feðgarnir, Jón Stefánsson og Stefán Jónsson frá Möðrudal. Stefán Jónsson, Stórval eins og hann kaus að kalla sig hin síðari ár tók að mála á gamals aldri. Stefán lék einnig á harmonikku og var mikill áhugamaður um söng. Herðubreið setur sterkan svip á sjóndeildarhring Möðrudalsöræfa, æskuslóðir Stefáns. Í dag verður opnuð yfirlitssýning á verkum Stefáns í gallerí Turpentine í tilefni aldarafmælis hans.
Þess er ekki langt að býða að haldin verði sýning á verkum listamanns sem hefur gert Foss á Síðu að sínu aðal viðfangsefni. Nánar um það síðar.
Bloggar | Breytt 11.7.2008 kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
lau. 17.5.2008
Dansari, leikari, tónlistarmaður og síðast en ekki síst íþróttamaður. Ótrúlegur snillingur sem unun er á að horfa
Seint get ég hætt að dást af hæfileikum Muhammad Ali. Því oftar sem ég horfi á hann, þeim mun meira upplifi ég hverslags snillingur hann var. Þetta er rétt eins og með góða hljómplötu. Þannig er það nú bara.
Bloggar | Breytt 18.5.2008 kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
mið. 14.5.2008
Bloggandi þrátt fyrir það
Bloggandi mönnum hefur fjölgað ört undanfarið ár. Nú skipta þeir orðið tugum þúsunda sem fást við þessa annars nokkuð skemmtilegu iðju, öllu jafna að ég held. Bloggandi er eitthvað sem kemur og fer eins og gengur og skiptir svosem ekki öllu máli að hann sé ekki alltaf til staðar. Bloggandi þarf maður nú heldur ekki að vera öllum stundum, ekki frekar en maður vill. Bloggendur eru margir hverjir bráðskemmtilegir, ég þekki nokkra slíka, þrátt fyrir að Þeir virðist ekki standa á bloggöndinni. Bloggandinn virðist samt oftast vera yfir þeim að því er virðist.
Mikið er þetta fallegur krókodíll, hver verða örlög hans.? Vonandi verður hann ekki að veski eða skóm. Uppröðunin á eggjunum er samt skuggaleg.
Bloggar | Breytt 6.11.2008 kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
þri. 13.5.2008
Horfðu tvisvar
Um nokkurt skeið hafa verið leiknar auglýsingar í útvarpi þar sem skorað er á bílstjóra í umferðinni að gá vel að sér og horfa tvisvar áður en lagt er af stað yfir gatnamót. Þetta eru auðvitað góð skilaboð og orð í tíma töluð nú um þetta leyti þegar mótorfákunum fjölgar með degi hverjum í umferðinni.
Í dag varð ég vitni af því að engu mætti muna að stórslys yrði einmitt vegna þess að svo virtist sem bílstjóri hafi ekki séð mótorhjól sem kom brunandi áður en hann lagði af stað yfir gatnamót. Sem betur fer fór allt vel.
Það sem hinsvegar situr eftir hjá mér, þar sem ég var næstur á eftir bílstjóranum sem ók næstum á bifhjólamanninn, var hraðinn á mótorhjólinu. Hann var sennilega helmingi meiri en leyfilegt er á þessum vegarkafla og langt umfram allt sem yfir höfuð getur kallast skynsemi.
Einhvernvegin virðist sem sumir mótorhjólamenn séu eins og kýr að vori, gersamlega stjórnlausir.
Mótorhjólamenn og auðvitað allir í umferðinni, endilega temprið hraðann.
Bloggar | Breytt 18.5.2008 kl. 20:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)