Huglæga matið reyndist best í Álafosskvos

Það var mikið deilt á mig og Vinstri græn í Mosfellsbæ fyrir afstöðu okkar vegna fyrirhugaðrar tengibrautar í Helgafellshverfi. Það sem mest fór í taugarnar á Samfylkingunni og félögum þeirra í Varmársamtökunum fyrir utan meirihlutasamstarfið var huglæg afstaða mín til tengibrautarinnar.

Ég sagðist ekki þurfa neitt nema mitt huglæga mat til þess að vera viss um hvaða leið væri best, allra hluta vegna. Stór orð eins og:

  • Hernaður gegn náttúru landsins!!!
  • Eru Vinsri-græn vinir Varmárinnar?!!!
  • Grænt ljós á umhverfisslys í hjarta Mosfellsbæjar!!!
  • Umhverfisspjöll í Mosfellsbæ!!!
  • Valtað yfir lýðræðið!!!
  • Tvískinnungur Vinstri-grænna í umhverfismálum!!!

og svo mætti lengi telja. Allt voru þetta orð sem voru notuð óspart hjá Samfylkingunni og félögum þeirra í Varmársamtökunum ásamt mörgu öðru sem er ekki við hæfi að setja á prent. Ég stóð á því fastar en fótunum að fyrirhuguð leið, eftir þær breytingar sem á henni hafa verið gerðar undanfarið ár, væri sú besta fyrir umhverfið og flesta bæjarbúa.

Nú liggur fyrir ný umhverfisskýrsla um mat á umhverfisáhrifum sem gefur til kynna að sú leið bæjaryfirvalda sem fyrirhuguð er hefur minnst áhrif á umhverfið og er talin best af þeim kostum sem skoðaðir voru og eru mögulegir í hið nýja Helgafellshverfi.

Virðingarfyllst, Karl Tómasson.


Fræðslugöngur í Mosfellsbæ

Varmá á sumardegiÍ síðustu viku stjórnaði ég mínum fyrsta fundi sem formaður atvinnu-og ferðamálefndar Mosfellsbæjar.

Á fundinum var m.a. samþykkt af nefndinni að standa fyrir svokölluðum fræðslugöngum um bæjarfélagið sem öllum er heimil þátttaka í endurgjaldslaust. 

Veg og vanda að öllum undirbúningi hefur haft rithöfundurinn og fræðimaðurinn Bjarki Bjarnason.

Laugardagurinn 26. maí kl. 10-13. Hvítasunnuganga að kirkjustöðum Mosfellsbæjar.

Lagt af stað frá Lágafellskirkju kl. 10, gengið að Varmá og Hrísbrú og endað á Mosfelli. Sagt verður frá fornum og nýjum kirkjustöðum sveitarfélagsins. Frá Mosfelli verður ekið tilbaka að Lágafelli. Leiðsögumaður: Magnús Guðmundsson sagnfræðingur.  

Laugardagurinn 2. júní kl. 10-13. Vorferð Sögufélags Kjalarnesþings.

Gönguferð um Elliðaárdal. Lagt verður af stað frá Árbæjarkirkju kl. 10 og gengið um hinn sögufræga og fagra Elliðaárdal sem áður tilheyrði Mosfellshreppi. Leiðsögumaður: Árni Hjartarson jarðfræðingur.

Laugardagurinn 9. júní kl. 10-13.Hjólaferð fyrir alla fjölskylduna.

Lagt af stað frá Varmárskóla kl. 10, hjólað meðfram Leiruvogi og Korpúlfsstöðum, síðan að Vesturlandsvegi, upp með Úlfarsá og niður í Reykjahverfi. Fararstjóri: Svava Ýr Baldvinsdóttir íþróttakennari.  

Laugardagurinn 16. júní kl. 10-13. Þjóðhátíðarganga meðfram Varmá.

Lagt af stað frá Reykjalundi kl. 10. Gengið niður með Varmá í gegnum Álafosskvos þar sem meðal annars verður sagt frá fánadeginum sem haldinn var hátíðlegur að Álafossi á árum áður. Gangan endar við Skiphól hjá hesthúsahverfinu og þaðan verður bílferð tilbaka að Reykjalundi. Leiðsögumaður: Guðmundur Jónsson á Reykjum.  

Laugardagurinn 23. júní kl. 10- 17. Jónsmessureiðferð með sögulegu ívafi.

Lagt af stað frá hesthúsahverfinu kl. 10 og riðið um Mosfellsdal, Torfdal og Seljadal og síðan meðfram Hafravatni niður í Reykjahverfi. Meðal annars verður áð við Dalsrétt, Nessel og Kambsrétt í Seljadal. Fararstjóri: Bjarki Bjarnason.   

Laugardagurinn 30. júní kl. 10-13. Gönguferð á Helgafell.

Lagt af stað frá Ásum norðan við Helgafell kl. 10. Meðal annars verða skoðuð stríðsmannvirki og gömul gullnáma. Leiðsögumaður: Guðjón Jensson.

Ég skora á alla að gera sér glaðan dag og fara í fróðlega fræðslu- og skemmtiferð með skemmtilegum leiðsögumönnum.

   

Allir eru velkomnir í ferðirnar. Ekkert þátttökugjald!

Karl Tómasson.  


Hernaður gegn landinu sagði Össur

Þessa færslu sem lesa má hér að neðan skrifað Össur Skarphéðinsson  fyrrverandi umhverfisráðherra á heimasíðu sína í febrúar s.l.  Nú er stóra spurningin sú hvort það sé ekki rétt hjá Össuri að taka aftur við umhverfisráðuneytinu til að bjarga landinu frá hervirkjum gegn náttúrunni.  Það skal ég viðurkenna að ég grét úr hlátri þegar ég las þessa færslu Össurar á sínum tíma enda er hann skemmtilegur penni og örugglega skemmtilegur karl líka. 

Á meðan hinir iðjagrænu vinir okkar í VG að taka á sig til skiptis hami Dr. Jekylls og Mr. Hyde í verndarmálum. Meðan  Dr. Jekyll með glampandi skalla ættaðan af Gunnarsstöðum norður berst einsog vitlaus maður fyrir náttúruvernd á Alþingi er hann með Mr. Hyde með umhverfistagl lafandi úr hnakkagrófinni í stóli forseta bæjarstjórnar í Mosfellssveit. Þar hamast Mr. Hyde Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs einsog laminn þræll íhaldsins sem hann situr með í meirihluta í Mosfellsbæ og hafnar á báðar hendur sanngjörnum óskum um umhverfismat á veglagningu um viðkvæmustu svæði sveitarinnar á bökkum Varmár.



Oddviti VG í sveitinni er semsagt orðinn umskiptingur og virðist sérstakt kappsmála að eyðileggja umhverfisperluna sem Varmárbakkar eru og ég flutti um innblásna ræðu í Hlégarði 1994 hjá náttúruverndarsamtökum í sveitinni. Nöturlega var að lesa um að oddviti VG hefði hímt bak við gluggatjöld meðan fólkið mótmælti og þorði ekki að láta sjá sig. Er semsagt nóg að rífa kjaft á Alþingi - en leyfa flokknum í meirihlutanum í Mosfellsbæ að fremja hernað gegn landinu?


Eru hervirki VG gegn náttúrunni í Mosfellssveit dæmi um hamskipti flokksins þegar - og ef - hann kemst í samstarf við Sjálfstæðisflokkinn?

 

 

Já þetta er skemmtileg færsla hjá Össuri og nú er bara að vona og treysta því að undir hans stjórn og Samfylkingarinnar  verði ekki unnin önnur eins hervirki gegn náttúru landsins og gert hefur verið í Mosfellsbæ.

Ég vona einnig satt að segja að 500 metra vegakaflinn í Mosfellsbæ verði viðmið Össurar og Samfylkingarinnar í umhverfismálum næstu fjögur árin.

Það má að lokum  geta þess að náttúruverndarsamtökin sem Össur vitnar í í grein sinni og hann hélt innblásna ræðu um  í Hlégarði  hétu Mosi.  Þessi náttúruverndarsamtök börðust mjög hart gegn því á sínum tíma að Varmá yrði brúuð við Álanes fyrir neðan Reykjalundarskóg. 

Það er sú tillaga sem Varmársamtökin leggja nú til að farin verði inn í Helgafellsland en bæjaryfirvöld Mosfellsbæjar hafa afskrifað.

Ég vona að Össurar vegna að hann þurfi ekki að svara fyrir þá tillögu Varmársamtakanna.

Karl Tómasson.

Af trausti og heiðarleika

Fyrir ári síðan stóð ég í þeim sporum sem félagi minn Steingrímur J Sigfússon stendur nú í varðandi myndun meirihlutastjórnar. Ég var ásakaður um að hafa komið í veg fyrir að vinstri stjórn yrði mynduð í Mosfellsbæ. Fremst í flokki í þeirri umræðu fóru félagar úr Samfylkingunni og Framsóknarflokki.

All flestir held ég að þekki nú orðið þá sögu. Úr þeim stjórnarviðræðum slitnaði vegna karps oddvita Framsóknar og Samfylkingar um bæjarstjórastól. Þar komum við Vinstri græn hvergi nærri. Við sýndum frá fyrstu tíð mikinn vilja og heiðarleika til myndunnar nýs meirihluta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar.

Nú stefnir allt í myndunn nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar og  Sjálfstæðisflokks. Eina ferðina enn er reynt að koma þeim skilaboðum til landsmanna að það sé Vinstri grænum að kenna að ekki hafi tekist að mynda vinstristjórn.

Vinstri græn voru sigurvegarar síðastliðinna sveitarstjórnarkosninga og einnig nú ný afstaðinna alþingiskosninga. Vinstri græn er sá flokkur sem hefur stækkað meira og á styttri tíma en dæmi eru um í íslenskri pólitík.

Ég er mjög stoltur af því að hafa verið einn af fyrstu mönnunum til þess að koma Vinstrihreyfingunni grænu framboði í meitihlutastjórn. Það samstarf hefur gengið vel og er byggt á gagnkvæmu trausti og virðingu.

Karl Tómasson.

Grænt grænt grænt grænt

er grasið út í haga

grænt grænt grænt

er gamla pilsið mitt.

Allt sem er grænt grænt

finnst mér vera fallegt

fyrir vin minn

litla Jón á Grund. 

Verður valtað yfir lýðræðið?

Nú stefnir allt í að mynduð verði ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.

Ekki efast ég um að allt það ágæta fólk sem að hana mun mynda reynir að gera allt sitt besta landi og þjóð til heilla. Vissulega sitja margir eftir með sárt ennið sem höfðu óskað einhvers annars.

Ég er einn af þeim.

Í eitt ár höfum við Vinstri græn í Mosfellsbæ þurft að sæta látlausri gagnrýni vegna meirihluta samstarfs VG og Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn. Þar hafa farið fremst í flokki fulltrúar og félagar úr Samfylkingunni. Mörg þau orð og skrif sem hafa fallið í þeirri umræðu eru með ólíkindum. Flest hafa þau snúist um svik okkar Vinstri grænna við kjósendur og jafnvel aðra bæjarbúa.

Umræða  Samfylkingarinnar um meint svik voru fyrst og fremst vegna samstarfs okkar við Sjálfstæðisflokkinn. Þau orð meðal þeirra félaga hafa oftast snúist um að verið sé að valta yfir líðræðið.

Fljótt skipast veður í lofti.

Karl Tómasson. 

Varmársamtökin funda með Samfylkingunni

Gunnlaugur B. Ólafsson varaformaður Varmársamtakanna átti í morgun fund ásamt öðru stjórnarfólki með Jónasi Sigurðssyni oddvita Samfylkingarinnar. 

Ég hef um nokkurra mánaða skeið reynt að benda á óeðlilega mikil tengsl Varmársamtakanna og Samfylkingarinnar og þess vegna væri ekki hægt að kalla samtökin ópólitísk og laus við alla flokkadrætti.

 

Varmársamtökin eru rammpólitísk hagsmunasamtök, ekki umhverfissamtök eins og ég hef marg bent á.Samtökin hafa einskis svifist til að reyna að ná sínum markmiðum.

Það væri miklu hreinlegra hjá samtökunum að starfa undir nafni síns flokks en ekki undir yfirskini einhvers sem á að heita umhverfisvernd. 

Karl Tómasson.


Grumpy old men

Nú ráðlegg ég Varmársamtökunum og talsmönnum þeirra að láta staðar numið. Það er mál að linni í niðrandi skrifum um menn og málefni í Mosfellsbæ. Ekkert lát virðist vera á þessu hjá samtökunum og helstu talsmönnum þeirra og nýjustu dæmin eru ótrúleg skrif í nýjasta Mosfellingi og skrif á heimasíðu varaformans samtakanna í gær. Þeim skrifum hefur nú verið eytt út af einhverjum ástæðum og fagna ég því.

Að varaformaður Varmársamtakanna leyfi sér að kalla tvo embættismenn bæjarins í áraraðir og mikla heiðursmenn grumpy old men vegna skoðana sinna er forkastanlegt. Þessir menn, Oddgeir Þór Árnason og Ólafur Gunnarsson, skrifuðu báðir greinar í Mosfelling sem var samtökunum ekki að skapi og eins og dæmin hafa sýnt svo vikum og mánuðum skiptir þá er ekki von á góðu frá Varmársamtökunum fyrir þá sem leyfa sér að gagnrýna þau.

Hvað mig varðar náðu skrifin miklum hæðum í Mosfellingi og á bloggsíðu varaformannsins í gær. Það er ekki nýlunda að mér sé líkt við Kölska sjálfan af talsmönnum samtakanna en að heimili mínu og fjölskyldu minnar sé líkt við draugabæli og helli er nýr vinkill í umræðum samtakanna. Þessi grein sem um ræðir var með slíkum ólíkindum að engu tali tekur og undir hana var ritað með dulnefni sem áður hefur verið notað úr innsta hring samtakanna.

Aldrei hafa nöfn og persónur verið dregnar inn í þessa dulnefnaumræðu undan farnar vikur og mánuði af minni hálfu þrátt fyrir rökstuddan grun um tíma og að lokum áreiðanlega vissu. Varmársamtökin hafa hinsvegar dregið nöfn óhikað inn í umræðuna án nokkurrar vitundar um hvort fótur sé fyrir ásökunum þeirra eða ekki. Varmársamtökunum er fullkunnugt um að fólk á þeirra vegum og úr innsta hring hefur skrifað fjölda greina úr nokkrum tölvum undir hinum ýmsu leyninöfnum svo vikum og mánuðum skiptir. Það hefur fengist staðfest.

Var ekki búið að gera grein fyrir því sem samtökin skrifa um í Mosfellingi og biðjast velvirðingar á því? Úr tölvu minni hefur aldrei verið skrifuð ein einasta grein á heimasíðu Varmársamtakanna. Greinarnar sem samtökin tala um birtust á allt annarri heimasíðu. Þar var hvorki um að ræða níð, dónaskap eða meiðyrði á nokkurn hátt.

Varmársamtökin eiga enga kröfu á að vita hverjir skrifa á heimasíður sem koma samtökunum ekki við, að ekki sé nú talað um ef ekkert niðrandi eða særandi er að finna í þeim skrifum.

Það vakti athygli mína að í þessari grein samtakanna í Mosfellingi skrifar ekki öll stjórnin undir. Svo virðist sem um klofning hafi verið að ræða í skoðunum stjórnarmanna um birtinguna hennar, rétt eins og með þá ákvörðun samtakanna að hafa samband við DV á sínum tíma. Er ekki lýðræðið í hávegum haft hjá samtökunum???

Sá grunur um að þessi síendurtekni leikur sé gerður til að koma höggi á Vinstri græn nú rétt fyrir kosningar læðist óneitanlega að mér en aðaltalsmenn Varmársamtakanna er flokksbundið Samfylkingarfólk. Frá þeim bænum hafa samtökin einnig fengið mikinn stuðning allt fram að þessu. Hinsvegar hefur lítið heyrst frá Samfylkingunni frá því að hinar kostulegu hugmyndir Varmársamtakanna að vegtengingu inn í Helgafellsland voru gerðar opinberar.

Það er algjörlega ljóst að allt hefur verið gert til að koma til móts við Varmársamtökin til að dempa áhrif tengibrautarinnar inn í Helgafellsland. Það eru fleiri íbúar í Mosfellsbæ en þeir í samtökunum og til þessara íbúa ber bæjaryfirvöldum og mér undirrituðum, sem hef ítrekað verið dreginn til ábyrgðar í þessu máli, einnig að taka tillit til. Ég er lýðræðislega kosinn bæjarfulltrúi og sem slíkum ber mér skylda til að taka tillit til allra bæjarbúa, ekki aðeins einstakra hópa eða félagasamtaka.

Virðingarfyllst Karl Tómasson.


Ég treysti á Vinstri græn

Óskar Þ.G. EiríkssonAllt hjal um náttúruna vekur hjá mér von.

Von um 97% vissu, von um 35% öryggi, von um 68% hamingju og von um 85% hagsæld.

Allt þarf þetta að tvinna saman við þá þrá sem við berum í brjósti fyrir náttúru og þjóð og hagsæld komandi ára. Ekki ætla ég að samtvinna þetta allt í eitt en ég mun leggja mitt að mörkum.

Gamall nemandi minn sagði eitt sinn. Þú getur ekki sagt allt sem þú hugsar án frekari athugasemda við það sem áður var sagt án fyrirvara og athugasemda hjá þeim sem óttuðust það sem þá langaði ekki að heyra án athugasemda frá lífsins þerapíu.

Áttið ykkur á því góðir gestir á þessari heimasíðu að nú styttist í kjördag. Kjördag alls sem getur þegar upp er staðið orsakað 45% vöxt, 39% trúnað og 76% þvaður. Um þetta höfum við öll eitthvað að segja sama hvort við erum frá Vest Skaft, Mosó eða Mývó við verðum að taka sjensinn.

Þetta lljóð er því til komið.

Menn og konur tala og tala.

Menn og konur mala og mala.

Er ekki kominn tími til að breita?

 

Kær kveðja frá Óskari Þ. G. Eiríkssyni.


Vinstri græn flökta ekki eins og strá í vindi

Nú þegar einungis sex dagar eru til kosninga er brýnt að allir hugsi til þeirrar baráttu sem Vinstri græn hafa staðið fyrir síðastliðin fjögur ár. Einungis fimm þingmenn hafa starfað fyrir flokkinn á alþingi Íslendinga með  slíkum dugnaði og elju að stór partur þeirrar baráttu er orðin að keppikefli allra stjórnmálaflokka að flagga sem sínu.

Stofnaður var nýr stjórnmálaflokkur til að berjast fyrir umhverfisvernd, Samfylkingin rær öllum árum til að öðlast að nýju traust sem umhverfisverndarflokkur svo margklofin sem hún nú er í þeim málaflokki. Flokkurinn hafði ekki einu sinni þor til að taka afstöðu vegna stækkunar álversins í Straumsvík í sjálfum heimabænum en helsta forystufólk flokksins hafði áhyggjur af 500m löngum vegarkafla í Mosfellsbæ á sama tíma. Framsóknarmenn bjuggu til sitt víðfræga slagorð, ekkert stopp, bara áfram með sama bullið. Frjálslyndir vita ekkert hvort þeir eiga að fara til hægri eða vinstri og Sjálfstæðisflokkurinn vill státa af því að vera orðinn umhverfisverndar- og feministaflokkur. Fuglinn orðinn bleikur og allt í standi.

Já, Vinstri græn hafa áhrif. Þegar flokkurinn svo kemst í oddastöðu eins og í Mosfellsbæ og situr þar við stjórn í fyrsta skipti undir eigin merki virðist sem allt ætli um koll að keyra. Þessa staðreynd virðast sér í lagi Samfylkingin og Framsókn engan vegin þola. Rétt eins og góð barátta þingmannannanna okkar fimm undanfarin ár hefur aðkoma Vinstri grænna að bæjarmálum í Mosfellsbæ þegar haft mikil áhrif.

Eitt af okkar stærstu kosningamálum var að gera leikskólann gjaldfrjálsan í áföngum. Nokkrum mánuðum síðar varð það mál að veruleika þegar fimmáradeildin var gerð gjaldfrjáls. Með því varð Mosfellsbær stærsta byggðarlag landsins til að stíga það skref. Í góðri samvinnu við Sjálfstæðismenn, samstarfsflokk okkar í bæjarstjórn, hefur verið ákveðið að Krikaskóli skuli ekki einkarekinn. Nú á næstu dögum verður auglýst til umsóknar ný staða hjá bæjarfélaginu. Starf þeirrar manneskju verður m.a. fólgið í Staðardagskrá 21. Það var eitt af stóru málum okkar Vinstri grænna í Mosfellsbæ. Í góðri samvinnu við samstarfsflokk okkar var einnig ákveðið að endurskoða fyrri ákvörðun og setja Tunguveg í umhverfismat án þess að til þess bæri bæjarfélaginu skylda. Nú á næstu mánuðum mun bæjarstjórn Mosfellsbæjar fara að huga að ýmsum stórum skrefum í menningar-og ferðamálum.

Já, Vinstri græn geta hæglega látið til sín taka en hafa verður í huga að í öllu samstarfi þarf að sýna skilning og sanngirni, á því byggist gott samstarf og á því hefur samstarf meirihlutans í Mosfellsbæ verið byggt. Á gagnkvæmri virðingu og trausti.

Ótrúleg afskiptasemi og áhyggjur pólitískra andstæðinga Vinstri grænna langt út fyrir bæjarmörk Mosfellsbæjar hafa á köflum borið keim af makalausri afbrýðisemi og heift. Einungis eitt dæmi nefna allir þessir pólitísku fulltrúar um skandal Vinstri grænna í Mosfellsbæ og það er hin víðfræga tengibraut í Helgafellsland. Þegar þessir sömu aðilar fara að tjá sig um málið kemur í ljós slík vanþekking á málinu að betur hefði verið heima setið en af stað farið hjá þessu ágæta fólki að tjá sig um málið.

Engir þessara aðila hafa bent á aðra lausn. Það er nú heila málið!!!

Egill Helgason stjórnandi Silfurs Egils var til að mynda ekki betur að sér en svo í þætti sínum í dag að hann stóð í þeirri meiningu að í Mosfellsbæ væru aðeins ein umhverfissamtök. Það er rangt, í Mosfellsbæ eru starfandi tvö umhverfissamtök og hér á árum áður voru starfrækt umhverfissamtökin Mosi. Eitt aðal baráttumál þeirra umhverfissamtaka var að koma í veg fyrir að Varmá yrði brúuð fyrir neðan Reykjalundarskóg inn í væntanlegt Helgafellshverfi. Ef sú leið hefði orðið fyrir valinu þyrfti að beina allri umferð í gegnum tvö stór íbúðarhverfi og þvera ekki bara Varmána heldur eitt vinsælasta útivistarsvæði Mosfellinga og vistmanna Reykjalundar. Það er sú tilllaga sem að Varmársamtökin leggja til nú í dag. Samfylkingin og Framsókn þegja nú þunnu hljóði yfir þeirri tillögu Varmársamtakanna. 

Við Vinstri græn hér í suðvestur kjördæmi teflum fram öflugum lista með dugnaðar- og reynsluboltann Ögmund Jónasson í fararbroddi. Allt stefnir í að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir nái kjöri. Það yrði mikill happafengur að fá hana á alþingi. Hún er einstaklega réttsýn, eldklár og heiðarleg baráttukona með hjartað á réttum stað.  

Vinstri græn geta bæði verið öflugur stjórnarandstöðuflokkur

og öflugur stjórnarflokkur, dæmin sýna það. 

Vinstri græn flökta ekki eins og strá í vindi. 

Vinstri græn hafa hreinar línur.  

Því geta allir kjósendur flokksins treyst. 

Karl Tómasson.


Ein lota eftir

Muhammad AliEinn frægasti bardagi Muhammad Ali var við George Forman á áttunda áratugnum.

Þá var Ali kominn af léttasta skeiði og fáir höfðu trú á því að hann ætti möguleika í þessum bardaga.

Allir helstu sérfræðingar ráðlögðu Ali að leggjast aldrei í kaðlana því þá væri leikurinn búinn fyrir hann. Höggþyngd Formans var slík að enginn venjulegur maður átti að þola látlausar barsmíðar frá honum. Því sögðu allir við Ali  „dansaðu Ali dansaðu“

Það fyrsta sem Ali gerði þegar hann fór í hringinn var að leggjast í kaðlana og þar lumbraði Formann á honum í heilar átta lotur. Í þeirri níundu stökk Ali fram eins og tígrisdýr og rotaði Formann. Það er er að mörgum talið eitt frægasta rothögg hnefaleikanna.

Margir stjórnmálamenn hafa óbeit á hnefaleikum enda er íþróttin ekki leyfð í þeirri mynd sem hér um ræðir. Ekki ætla ég að leggja mat mitt á það enda hef ég svosem lítið pælt í því þrátt fyrir að hafa gaman að því að horfa á góða hnefaleikara.

Undanfarið hef ég velt því fyrir mér hvort að hinn pólitíski boxhringur sé nokkuð skárri þegar öllu er á botninn hvolft. Hann er því miður oft á tíðum óvæginn, ljótur og grimmur bardagi sem jafnvel skilur eftir stærri ör. Allt er gert til að koma höggi á andstæðinginn og oft eru þau undir beltisstað. Það er til að mynda ólöglegt í hnefaleikum.

Ég vona að þessi síðasta vika fyrir kosningar verði drengileg og öllum flokkum til sóma.

Vinstrihandar stungan í græna hanskanum fer ekki undir beltisstað heldur beint í mark þann 12. maí.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband