Varmársamtökin, umhverfisvernd?

Eftir frábæra sumarbústaðarferð fjölskyldunnar í vikunni sem nú er liðin kennir ýmissa grasa í tölvunni. Tölvupósti hefur rignt og nokkrar athugasemdir á blogginu mínu sem alltaf er jafn spennandi að skoða. Það er þó tvennt sem vakti hjá mér slíka athygli að ég tel rétt að setja nokkur orð um það á bloggið mitt. Fyrst ber að telja ótrúlega athugasemd og hótun Gunnlaugs B. Ólafssonar varaformanns Varmársamtakanna og hitt var óundirrituð frétt ef frétt skal kalla á heimasíðu Framsóknar í Mosfellsbæ. Reyndar er nú fátt sem kemur manni orðið á óvart á þeirri síðu því oftar en ekki er fréttafluttningurinn allt að því sorglegur á þeim bænum.

Fyrir nokkrum vikum síðan voru skrifaðar athugasemdir á bloggsíðu mætrar konu hér í bæjarfélaginu (ekki á heimasíðu Varmársamtakanna eins og fram kom í frétt DV). Athugasemdirnar voru harðorðar og ljótar. Varmársamtökin komust að því að þessar athugasemdir komu úr minni tölvu. Í kjölfarið hafði Gunnlaugur B. Ólafsson, varaformaður Varmársamtakanna, samband við mig og vildi fá skýringar á skrifunum. Ég gekk strax í málið og í ljós kom að 16 ára sonur minn hafði gert þetta og gekkst hann strax við því. Ég hringdi rakleiðis í Gunnlaug og baðst á þessu afsökunar fyrir hönd sonar míns.Samt sáu Varmársamtökin ástæðu til þess að hafa samband við DV og gera úr þessu mál. Af hverju er mér algjörlega óskiljanlegt og í raun undirstrikaði það fyrir mér þá heift sem samtökin hafa beitt undanfarið.

Nú tæpri viku síðar skrifar Gunnlaugur B. athugasemd á bloggsíðu mína sem ekki er með nokkru móti hægt að túlka öðru vísi en svo að eitthvað meira grugg sé að finna úr minni tölvu og annarra. Hann talar um að viðkomandi aðilar þurfi að axla ábyrgð. Þá spyr ég á móti, á hvaða skrifum þarf ég til að mynda að axla ábyrgð sem ekki hefur þegar verið greint frá og gerð grein fyrir? Framsóknarfréttir sáu svo ástæðu til að reyna að koma sama grugginu í loftið án þess að hafa nokkuð í höndunum annað en bitlaust vopn til að reyna að gera einhvern tortryggilegan.

Athygli vekur að einn aðaltalsmaður Varmársamtakanna hefur þegar gengist við því að hafa skrifað fjölda athugasemda á bloggsíður undir hinum ýmsu nöfnum undanfarnar vikur og mánuði.

Karl Tómasson.  


Smá bloggfrí

Birna í sumarskapi

Er í smá fríi og því verður rólegt á blogginu hjá mér.

Hafið það öll sem best.

Kær kveðja. Kalli Tomm.


Hvernig bregst óharnaður unglingur við?

Hvernig bregst óharnaður unglingur við þegar linnulausar árásir hafa dunið á föður hans svo vikum og mánuðum skiptir? Syni mínum varð á að setja inn ljóta bloggfærslu þar sem hann lét miður vönduð orð falla í garð Varmársamtakanna. Aldrei skal ég réttlæta það og reyni ekki enda erum við feðgar búnir að fara yfir málið og ég hef þegar sett mig í samband við Gunnlaug B. Ólafsson varaformann Varmársamtakanna. Drengurinn iðrast gjörða sinna sem hann framkvæmdi að svo vanhugsuðu máli. Fjölskylda mín hefur þurft að þola ýmislegt slæmt vegna þeirrar ákvörðunar sem að Vinstri græn í Mosfellsbæ tóku vegna fyrirhugaðrar tengibrautar. Margt af því svo ljótt, bæði með símtölum inn á heimilið okkar, tölvupósti og í daglegu lífi. Nafn mitt hefur verið dregið inn í þessa umræðu allt frá upphafi og oft hefur það sem látið hefur verið falla reynt mjög á mig og mína. Ég hef reynt eftir bestu getu að útskýra minn málstað og Vinstri grænna á málefnalegan hátt. Ég vona að þessi færsla sonar míns verði ekki tilefni til þess að enn ein ómakleg hryna fari af stað gegn mér og mínum.

Virðingarfyllst. Karl Tómasson.


Burt flognir Samfylkingarmenn

Það vakti athygli á fundi Varmársamtakanna í dag að tæplega helmingur fulltrúa stjórnmálaflokkanna voru burt flognir Samfylkingarmenn.

Kæri Valdimar

Heill og sæll Valdimar.

 

Ég fagna áhuga þínum á þessu máli og efast ekki um að hann er sannur.

Það vill svo til að áhugi minn er ekki minni á öllu því sem viðkemur Álafosskvos og hefur verið um árabil. Ég fékk góða vinkonu mína til að taka fundinn upp og er búinn að hlusta á hann í heild sinni.

 Þú stóðst þig bara vel gamli minn.

 

Kær kveðja frá Kalla Tomm.


Fámennur fundur Varmársamtakanna

Það er ekkert nýtt að hjá Varmársamtökunum og á fundum þeirra komi fram gagnrýni á Vinstri græn í Mosfellsbæ. Til þess hafa þessi "ópólitísku" samtök notað öll tækifæri Samtökin hafa einnig notið góðs stuðnings hjá Framsóknarflokki og sérstaklega Samfylkingunni í þeim efnum. Enda aðal forsvarsmenn Varmársamtakanna flokksbundið Samfylkingarfólk.

Það var fátt um svör þegar formaður Vinstri grænna í Mosfellsbæ og varaformaður skipulags- og byggingarnefndar bæjarinns spurði fulltrúa Samfylkingar og Framsóknarflokks um það hvort þeir væru ánægðir með afstöðu sinna manna í bæjarstjórn Mosfellsbæjar til Tengibrautarinnar. Enda hafa fulltrúar bæði Samfylkingar og Framsóknarflokks aldrei greitt atkvæði sitt gegn staðsetningu fyrirhugaðrar tengibrautar en hafa haft til þess ótal mörg tækifæri.

Það vekur einnig athygli að einungis 60 manns hafi mætt á þennan vel auglýsta fund um þetta mikla deilumál í Mosfellsbæ að sögn Varmársamtakanna. 

 

Karl Tómasson.


mbl.is Vinstri græn gagnrýnd fyrir að nýta ekki oddastöðu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fámennur fundur Varmársamtakanna

LágafellskirkjaSvo virðist sem vel auglýstur fundur Varmársamtakanna um fyrirhugaða tengibraut í væntanlegt Helgafellshverfi hafi ekki vakið áhuga Mosfellinga. Aðeins 60 manns sóttu þennan fund sem samtökin boðuðu til þar sem þingmenn og framjóðendur í suðvesturkjördæmi sátu m.a. fyrir svörum. Einnig kynntu Varmársamtökin sínar hugmyndir um aðra aðkomu í Helgafellshverfi.

  

Það hlýtur að vera áhyggjuefni hjá samtökunum að umræður  um svo umdeilda tengibraut, að þeirra sögn, skuli ekki vekja meiri áhuga hjá íbúum Mosfellsbæjar. Því miður gat ég ekki setið fundinn þar sem ég var ásamt nokkrum bæjarfulltrúum og fulltrúum úr sóknarnefnd Lágafellssóknar að skoða kirkjur og safnaðarheimili í nokkrum bæjarfélögum. Sú ferð var löngu fyrirhuguð og Varmársamtökunum tilkynnt um það um leið og þau boðuðu bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ á sinn fund. Maður skyldi ætla að það hefði átt að vera hægur leikur hjá samtökunum að seinka fundinum um tvær klst. til að allir bæjarfulltrúa Mosfellsbæjar kæmust.

   Það vekur athygli mína að Samfylkingin í Mosfellsbæ hafi ekki séð ástæðu til að senda  nokkurn fulltrúa sinn í þá ferð sem bæjarstjórnin var í í dag, heldur miklu frekar séð ástæðu til að fjölmenna á fund Varmársamtakanna þar sem umrædd tengibraut var rædd eina ferðina enn.

   Við Mosfellingar hyggjumst nú reisa nýja kirkju og er með ólíkindum að Samfylkingin hafi ekki séð ástæðu til að senda sinn fulltrúa í  skoðunarferð bæjarstjórnar í dag til að kynna sér það áhugaverða verkefni. Þetta var löngu ákveðin ferð þar sem að okkur voru m.a. sýndar mjög svo áhugaverðar tillögur að samnýtingu kirkju og safnaðarheimila með m.a. menningarlegt sjónarmið í huga.


Elsku góða Klara

Klara og KalliEins og bloggvinur minn Hlynur Þór Magnússon sagði í einni athugasemd til mín, elsku góða Klara.

Hann er ekki einn um þessar tilfinningar til hennar.

Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að vera með Klöru þegar hún vígði okkar nýju og glæsilegu Lágafellslaug í dag. Mikið óskaplega var ég stoltur af því að fá það tækifæri og ég mun aldrei gleyma því. Það var sérlega vel til fundið hjá Daða Þór Einarssyni og Ragnheiði Ríkharðsdóttur að fá Klöru til þess að vígja okkar nýju sundlaug. Klara var kennari í Brúarlandsskóla hjá afa Lárusi og síðar hjá pabba mínum Tómasi Sturlaugssyni í Varmárskóla í áratugi. Klara er einstök kona og það ber öllum saman um sem hafa fengið tækifæri til að kynnast henni. Eins og ég hef áður komið að vígði hún einnig Varmárlaug 17. júní 1964. Elsku Klara takk fyrir daginn.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.


Nú árið er senn liðið

Um þetta leiti fyrir ári síðan vorum við Vinstri græn í Mosfellsbæ að undirbúa  okkur fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Allt frá upphafi var mikill hugur og barátta í okkur öllum. Við vorum staðráðin í að láta til okkar taka og leggja á brattann með jákvæðni og gleði að leiðarljósi. Við höfðum mörg hver aldrei tekið þátt í svona baráttu í fremstu víglínu. Allt frá upphafi fundum við meðbyr en bjuggumst við öllu eða engu á kosningardag. Sögulok baráttunnar þekkja flestir, uppskeran varð glæsilegur kosningasigur okkar Vinstri grænna sem kom mörgum á óvart.

   Það sem gerðist í framhaldinu átti einnig eftir að vekja athygli og það um land allt, við mynduðum meirihluta  í bæjarstjórn með Sjálfstæðismönnum.

Í fyrsta skipti voru Vinstri græn í meirihluta undir eigin merki. Samstarf okkar við Sjálfstæðismenn hefur gengið vel, það er byggt á gagnkvæmu trausti og virðingu.

   Á þessu ári sem senn er nú liðið frá myndun meirihlutans höfum við Vinstri græn í Mosfellsbæ sýnt það að við erum flokkur sem getur tekið ábyrgð og sýnt festu þrátt fyrir að á okkur hafi verið sótt og oft á óvæginn hátt.  

   Nú eftir mánuð göngum við til alþingiskosninga og sá meðbyr sem virðist í okkar seglum er mikill. Samkvæmt öllum könnunum er Vinstrihreyfingin grænt framboð nú næst stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Ég held að ástæða þess sé m.a. sú staðfesta og hreinskiptni sem fólk finnur í fari þessa flokks. Línurnar eru hreinar. Þau áhrif sem Vinstri græn hafa haft á alla þjóðmálaumræðu eru orðin ótvíræð, allir vildu nú Lilju kveðið hafa. Nú eru allir grænir. Ýmist til hægri eða  út og suður.

Gleðileg sumar.


Hundrað athugasemda greinin!!!

TengibrautinÉg skrifaði á dögunum grein sem bar yfirskriftina Varmársamtökin og Vinstri græn. Nú er svo komið að hátt í eitt hundrað athugasemdir hafa verið færðar á bloggsíðu mína vegna hennar.

Sennilega slagar það í Íslandsmet. Þessi umdeilda tengibraut sem allir hafa skoðun á og því miður einnig fólk sem hefur ekki kynnt sér málavöxtu hefur fengið mikla athygli í fjölmiðlum. Á myndinni má sjá legu hennar. Þar sem hvítu punktarnir eru mun tengibrautin taka við af gamla Álafossvegi. Fyrir neðan hvítu punktana er Álafosskvosin þar sem svo margir álíta, fyrir einhvern misskilning, að tengibrautin fari í gegnum. Eins og sjá má er það víðs fjarri. Tengibrautin liggur fyrir ofan Álafosskvosina eins og glöggt má sjá. Bæjaryfirvöld Mosfellsbæjar hafa gert allt til að milda áhrif hennar, m.a. með því að lækka hana til muna og færa fjær Kvosinni. Einnig má sjá þar sem rauðu punktarnir eru að  gert er ráð fyrir vegi. Nú er fyrirhugað að leggja þann veg af og tengja Álafosskvosina með vegstubb þar sem hvítu punktarnir með svarta dílnum eru. Þetta er málið.

Þetta er stóra umhverfismálið. Þetta er stóra umhverfisslysið í Mosfellsbæ sem Samfylkingin og Framsókn hafa róið öllum árum til að koma höggi á Vinstri græn í Mosfellsbæ. Það ótrúlega er að flokkarnir báðir hafa aldrei greitt þessari tillögu á legu brautarinnar mótatkvæði sitt og hafa þeir nú haft mörg tækifæri til.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband