fim. 3.4.2008
Mótorcrossbraut á Tungumelum.

Í staðinn fyrir afnot landssvæðisins mun MotoMos standa fyrir öflugu fræðslu- og kynningarsamstarfi, m.a. um:
- að akstur mótorhjóla sé bannaður á göngu- og reiðstígum bæjarfélagsins.
- að sporna gegn utanvegaakstri mótorhjóla og sömuleiðis akstri innanbæjar á torfæruskráðum hjólum.
- að setja reglur sem banna akstur á vélhjólum, með torfæruskráningu, til og frá aksturssvæðinu. Slík hjól skulu flutt á flutningstækjum.
Mikilliar óánægju hefur gætt hjá bæjarbúum vegna aukinnar umferðar torfæruhjóla um bæinn og m.a. á göngu- og reiðstígum. Miklar vonir eru bundnar við gott samstarf við áhugasama forsvarsmenn MotoMos og að hin nýja aðstaða uppfylli bestu möguleg skilyrði til að stunda íþróttina fjarri allri íbúðabyggð.
Í morgun skrifuðu þeir, Haraldur Sverrisson bæjarstjóri og Guðni Friðgeirsson formaður Motomos, undir samninginn sem er til fimm ára.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
mið. 2.4.2008
Furðulegar heimsóknir og tvískinnungur
Fyrir vikið lét hann rekja sendingarnar og í ljós kom að þær voru frá Borgarholtsskóla.
Þessi ágæti vinur minn átti erfitt með að átta sig á ástæðu sendinganna sem voru algerlega úr takti við alla umræðu á hans síðu.
Slíkar sendingar hef ég einnig fengið og oftar en ekki hafa þær einnig verið algerlega á skjön við alla umræðu.
Þessi ágæti vinur minn hefur ekki legið á skoðunum sínum á minni síðu varðandi ýmis mál sem þar hafa verið til umfjöllunar undanfarið ár og staðið óhikað við skoðanir sínar.
Að öðru
"Ein helsta ástæða þess að "andstæðingarnir" í litrófi íslenskra stjórnmála mynduðu ríkisstjórn var sterkur meirihluti. En stjórnarmyndun var fylgt úr hlaði undir því fyrirheiti að leita sátta um farsælar leiðir við stjórn landsmála."
Þessi stórkostlega lesning var nýlega á síðu Gunnlaugs B Ólafssonar samfylkingarmanns og varaformanns Varmársamtakanna sem hefur ekki haldið heilsu með nokkru móti frá því að sjálfstæðismenn og vinstri græn mynduðu meirihluta í bæjarstjórn Mosfellsbæjar.
Ég spyr, hvaða stjórnvöld vilja ekki leita leiða sátta um farsælar leiðir til stjórnunar?
Maðurinn hefur farið slíku offari í skrifum sínum öllum og atferli að háðulegt er og öll hans veiku vopn hafa beinst að vinstri grænum í Mosfellsbæ fyrir samstarfið við sjálfstæðismenn, allt frá upphafi.
Þvílíkur tvískinnungur og vonlaus pólitísk gríma hefur þetta verið í rúmt ár og ekkert lát virðist á.
Ég held að þetta fari að verða spurning um hin einu sönnu Grímuverðlaun eða bara Valdann sjálfan.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
mið. 2.4.2008
Fuglaskoðunarhús
Fuglaskoðunarhús eru þekkt víða um heim, þar, þar sem fólk kemur saman til að skoða fugla. Hér á landi eru þau fá en virðist þó sem nokkur vakning sé nú að eiga sér stað. Þetta segir Jóhann Óli Hilmarsson sem hefur Mikla þekkingu á þessu sviði.
Á fundi Atvinnu-og ferðamálanefndar var í gær samþykkt að hafin yrði smíði á fuglaskoðunarhúsi sem komið yrði fyrir í Leiruvogi. Haft var samband við Jóhann Óla Hilmarsson og m.a farið með honum í skoðunarferð til að finna bestu hugsanlegu staðsetningu hússins. Jóhann Óli gjörþekkir hið mikla fuglalíf í Leirvoginum og hefur m.a. unnið fyrir bæinn við rannsóknir á því.
Skráðar verða og myndaðir allar fuglategundir sem heimsækja Leiruvoginn og fyrir komið inn í fuglaskoðunarhúsinu helstu upplýsingum um þá. Það er mikið fuglalíf á þessu svæði allt árið um kring.
Það verður spennandi að gera sér ferð með kíkinn og virða fyrir sér fuglalífið í skjóli og í mikilli námunda við þá.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
þri. 1.4.2008
Hvað fékkstu mikið í peningum?
Nú er tími ferminga og við strunsum öll sem eitt í veislurnar.
"Hvað fékkstu mikið í peningum?" var að sjálfsögðu það fyrsta sem skólafélagarnir spurðu mann að eftir fermingarveisluna.
Ég man ekki hvað ég fékk mikið í peningum en það dugði þó fyrir Kasúka, sambyggðu útvarps- og segulbandstæki og nokkrum óáteknum segulbandsspólum. Frá mömmu og pabba mátti ég velja á milli þess að fara með þeim til Ísrael eða að fá trommusett. Auðvitað valdi ég trommusettið frekar og á mjög sennilega aldrei eftir að fara til fyrirheitna landsins fyrir vikið. Ég fékk forláta Ajax trommusett sem að kennarinn minn frábæri og vinur Reynir Sigurðsson fann fyrir foreldra mína og gerði upp. Myndin af mér er við þetta fyrsta trommusett mitt.
Frá móðursystkinum var það Parker pennasett áritað með nafninu mínu, ég vissi það svo sem fyrirfram hvað ég fengi frá þeim, það var reglan á þeim bænum. Ég vissi líka hvað ég myndi fá frá Klöru Klængs, það var Biblían. Klara gaf okkur systkinunum alltaf jólagjafir fram að fermingu og svo kom Biblían. Þetta voru í raun þær gjafir sem ég var hvað minnst spenntur fyrir að fá enda vissi ég hvað mín beið.
En viti menn í dag held ég svo mikið upp á þessar gjafir. Ragnar heitinn Lár móðurbróðir teiknaði kort til mín með mynd af Bogga blaðamanni, teiknimyndafígúru sinni sem var þjóðhetja á þessum tíma. Ég geymi kortið alltaf í Biblíunni frá Klöru. Kasúka-tækið sem ég keypti fyrir alla peningana er því miður ekki lengur til en Biblían og pennasettið er á sínum stað. Ajax trommusettið frá mömmu og pabba hefur vaxið og dafnað í margskonar trommusett af öllum stærðum og gerðum í gegnum árin.
Hvað fékkst þú mikið í peningum?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)